31.3.2011 | 16:15
Auðvelt val í icesave.
Margir hafa tekið þá Lee Buchet og Lárus Blöndal sem óræk vitni um hversu góður icesave3 samningurinn er, þar sem þeir hafi nú skipt um skoðun og tali fyrir því að þjóðin samþykki icesave þá hljóti samningurinn að vera eins og best verður á kosið. Það sé því rangt að láta réttlætið ráða afstöðunni til icesave, heldur "ískalt hagsmunamat" eins og einn löglærður stjórnmálaforinginn orðaði það, innmúraður í hrunadansinn. það er svolítið síðan að ég áttaði mig á því að lögfræðingar tala fyrir þeim málstað sem þeir fá borgað fyrir. Þegar eitthvað er að marka lögfræðing þá talar hann frá hjartanu og það gera lögfræðingar frítt eins og aðrir menn.
Þegar við þurfum orðið að borga fyrir það með ævi okkar að búa í landinu sem við fæðumst í er kominn tími til að hugsa sinn gang. Jafnvel eftir hrun þar sem ríkisvaldið og eftirlitsstofnanir þess stendur strípað, líkt og keisarinn forðum, er ætlast það til að afrakstur vinnu okkar renni í formi skatta til manna sem brutu öll siðferðisviðmið náungakærleikans, og ekki nóg með það, nú er okkur jafnvel ætlað að greiða skatta til annarra ríkja vegna tjóns sem þessir sömu aðilar urðu valdar af.
Sagt er að grundvallar tilgangur ríkisstjórna nútímans sé að vera verkfæri fjármagnseigenda að vösum almennings. Með samþykkt icesave á að nota skatta Íslendinga til að greiða skuldir sem ríkið tekur á sig til að greiða skuldir glæpamanna sem urðu til þegar þeir þeir tæmdu sparfjár eign í erlendum útibúum innanfrá og með þá syndaaflausn ætla sömu aðilar að koma "hjólum atvinnulífsins" áfram. Er furða að okkur finnist við vera rugluð og ráðvillt? Með valdi hefur verið unnið hörðum höndum að því að telja okkur trú um að við höfum ekkert val, við eigum að sýna ábyrgð. En þetta er allt sjónhverfing, ef við aðeins náum að átta okkur á hvað er réttlæti og hvað er ábyrgð munum við aldrei vinna gegn okkur sjálfum með því að segja já við icesave.
Okkur hefur verið margsagt að icesave samningarnir séu flóknir og aðeins á færi sérfræðinga að skilja þá. Stjórnmálamenn sem jafnvel töluðu gegn samningnum eru orðnir skíthræddir við sérfræðingana með exel þekkinguna, sem hafa samt sem áður enga sýn nema aftur fyrir sig og það í gegnum rör sem er hálfstíflað af kúlulánum. Þessir sérfræðingar, afætur og kúlulánþegar, treysta hvorki ímyndunarafli sínu né innsæi, hvað þá tilfinningunni fyrir réttlætinu. Þeir halda að til að vera fullkomlega faglegir þá þurfi að þurrka út allar tilfinningar og vilja að þjóðin taki skellinn því aðeins þannig komist þeir af.
En hvað er rétt að kjósa? Það getur hver manneskja fundið í hjarta sínu, til þess að skíra út icesave þarf ekki sérfræðing eða stjórnmálamann, hvað þá löglærðan frímúrara, ekki einu sinni þó hann væri flokksbundinn framsóknarmaður. Öll höfum við leiðsögukerfi hjartans sem segir okkur hvað er rétt og hvað er rangt. Ef við efumst er gott að grípa til gullnu reglunnar "Allt sem þú vilt, að aðrir menn geri þér, það skalt þú þeim gera". Því eins og meistarinn sagði á þeirri reglu hvílir lögmálið
Þú varst fæddur frjáls og munt deyja frjáls. En muntu lifa frjáls? Valið er þitt. Þú ert hinn óendanlegi möguleiki.
![]() |
Ekki auðvelt að komast að niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.3.2011 | 09:24
Skyldi Steingrímur vita af þessu?
Það er ýmislegt sem bendir til þess að skattgreiðendur á vesturlöndum fjármagni nú stríðið í Líbýu frá öllum hliðum, þ.m.t. al kaída, sem þrálátur orðrómur hefur verið um frá fleirum en Gaddafi, að standi á bak við vopnaða uppreisn í Líbýu.
Abdel-Hakim al-Hasidi, the Libyan rebel leader, has said jihadists who fought against allied troops in Iraq are on the front lines of the battle against Muammar Gaddafi's regime.
In an interview with the Italian newspaper Il Sole 24 Ore, Mr al-Hasidi admitted that he had recruited "around 25" men from the Derna area in eastern Libya to fight against coalition troops in Iraq. Some of them, he said, are "today are on the front lines in Adjabiya".
Mr al-Hasidi insisted his fighters "are patriots and good Muslims, not terrorists," but added that the "members of al-Qaeda are also good Muslims and are fighting against the invader". meira......
![]() |
NATO ber nú ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2011 | 08:35
Komið á Chernobyl stigið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2011 | 06:37
Með belti, axlabönd og fallhlífar.
Samþykki þjóðin icesave 9. apríl næstkomandi og verði neyðarlögunum hnekkt fyrir dómi munu 600 - 1.200 milljarðar falla á Íslenska skattgreiðendur.
Margir hafa tekið þá Lee Buchet og Lárus Blöndal sem óræk vitni um hversu góður icesave3 samningurinn er, þar sem þeir hafi nú skipt um skoðun og tali fyrir því að þjóðin samþykki icesave þá hljóti samningurinn að vera eins og best verður á kosið. Það sé því rangt að láta réttlætið ráða afstöðunni til icesave, heldur "ískalt hagsmunamat" eins og einn löglærður stjórnmálaforinginn orðaði það, innmúraður í hrunadansinn. það er svolítið síðan að ég áttaði mig á því að lögfræðingar tala fyrir þeim málstað sem þeir fá borgað fyrir. Þegar eitthvað er að marka lögfræðing þá talar hann frá hjartanu og það gera lögfræðingar frítt eins og aðrir menn.
Okkur hefur verið margsagt að icesave samningarnir séu flóknir og aðeins á færi sérfræðinga að skilja þá. Stjórnmálamenn sem jafnvel töluðu gegn samningnum eru orðnir skíthræddir við sérfræðingana með exel þekkinguna, sem hafa samt sem áður enga sýn nema aftur fyrir sig og það í gegnum rör sem er hálfstíflað af kúlulánum. Þessir sérfræðingar, afætur og kúlulánþegar, treysta hvorki ímyndunarafli sínu né innsæi, hvað þá tilfinningunni fyrir réttlætinu. Þeir halda að til að vera fullkomlega faglegir þá þurfi að þurrka út allar tilfinningar og vilja að þjóðin taki skellinn því aðeins þannig komist þeir af.
Það er með ólíkindum að fólk skuli geta gengið í takt við öfl sem þrömmuðu með íslenskt þjóðfélag fram af hengifluginu haustið 2008, eftir að þau höfðu útdeilt sjálfum sér neyðarlaga fallhlífum. Ef endurreisn þessara afla á íslensku samfélagi hefði sýnt árangur nú 2 1/2 ári síðar væri kannski hægt að skilja blindu fólks á hvað JÁ við icesave þýðir. En að ætla að ganga í takt fram af hengifluginu í annað sinn á innan við þremur árum er með ólíkindum og þeim um meiri þegar það er farið fram á skilyrðislausa taktgöngu heillar þjóðar til greiðslu skulda sem glæpamenn eru að kaupa sig frá.
Það er ekki flókið að átta sig á að 32 milljarðar eru meira en 600 hvað þá 1200 og það má vera alveg ljóst að allir þeir sem brotið var á með neyðarlögunum munu leita allra leiða til að fá þeim hnekkt verði þrotabú Landsbankans notað til að greiða ríkissjóðum Breta og Hollendinga. Vill þjóðin taka ábyrgð á icesave fyrir liðið sem bjargaði sér með neyðarlögum?
![]() |
600 milljarða neyðarlög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.3.2011 | 22:54
Aðstoða al kaída.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.3.2011 | 20:21
Íslendngar til sölu.
Þetta var athyglisverð fréttaumfjöllun í Kastljósinu á henni mátti einna helst skilja að hægt væri að selja íslenskan ríkisborgarrétt til góðgerðasamtaka sem hefðu áhuga á að "koma hjólum atvinnulífsins af stað".
Ekki skemmdi forsaga sumra innlendu athafnamannanna fyrir trúverðugleikanum um einlægan vilja til að bjarga Íslandi. Hvað þá alþingismaðurinn knái, formaður allsherjarnefndar, sem hefur skapað ótæmandi verkefni fyrir erlenda athafnamenn við að dæla upp úr Sandeyjahöfn.
![]() |
Vilja ríkisborgararétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2011 | 06:57
Alþjóðasamfélagið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.3.2011 | 21:20
Myndi kál nægja til einingar um Líbýu?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2011 | 09:17
Hin myrku öfl.
Nýleg grein Henry Makow, um hin illu öfl koma upp í hugann þegar "bandaríska blaðið The Wall Street Journal segir, að í bók Lelyvelds komi fram að Gandhi hafi verið kynferðislega brenglaður, ómögulegur stjórnmálamaður og öfgafullur sérvitringur."
Enda hentar "Wall Street" ekki viska Gandhi; "Dagurinn í dag er morgunndagurinn sem þú hafðir áhyggjur af í gær. Var það þess virði?"
Þessi orð Makow lýsa vel markmiðum hinna myrku afla; " Þau eru ábyrg fyrir bælingu okkar á eðlilegu kærleika okkar hvors til annars, sem dregur öll mannleg samskipti niður á plan kynferðislegrar fróunar. Þeir nota kynlíf markvisst til þess að draga okkur í dilka og gera okkur að fénaði sínum."
Greinina má sjá alla hér.
![]() |
Ný bók um Gandhi veldur uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.3.2011 | 07:12
Heimsmet í heimsku.
Þegar við þurfum orðið að borga fyrir það með ævi okkar að búa í landinu sem við fæðumst í er kominn tími til að hugsa sinn gang. Jafnvel eftir hrun þar sem ríkisvaldið stendur strípað, líkt og keisarinn forðum, er ætlast það til að afrakstur vinnu okkar renni í formi skatta til manna sem brutu öll siðferðisviðmið náungakærleikans, og ekki nóg með það, nú er okkur jafnvel ætlað að greiða skatta til annarra ríkja með milljarða vaxtaálagi vegna tjóns sem þessir sömu aðilar urðu valdar af.
Heykvíslahjörðin, ómenntaða liðið og landsbyggðarskríllinn hefur verið notað til að lýsa þeim sem segja NEI við icesave. Þessi lýsingarorð eiga ágætlega við fólk sem hefur hjartað á réttum stað. Það er JÁ fólkið sem lætur stjórnmálaöflin segja sér hvað er best að gera í icesave. Það fylgir ráðum húsbændanna sem sauðir til slátrunar, jafnvel "ísköldu hagsmuna mati" prinsins í Hruna.
Það er með ólíkindum að fólk skuli geta gengið í takt við öfl sem þrömmuðu með íslenskt þjóðfélag fram af hengifluginu haustið 2008, eftir að þau höfðu útdeilt sjálfum sér fallhlífum. Ef endurreisn þessara afla á íslensku samfélagi hefði sýnt árangur nú 2 1/2 ári síðar væri kannski hægt að skilja blindu fólks á hvað JÁ-ið þýðir. En að ætla að ganga í takt fram af hengifluginu í annað sinn á innan við þremur árum er með ólíkindum og þeim um meiri þegar það er farið fram á skilyrðislausa taktgöngu heillar þjóðar til greiðslu skulda sem glæpamenn eru að kaupa sig frá.
Hvernig sem fer 9. apríl þá verður stór kafli skrifaður í mannkynsöguna, kannski verður sá kafli um það þegar heil þjóð tók að sér sjálfviljug að greiða skuldir glæpamanna heimsins og gerði þar með heimsmet í heimsku.
![]() |
Bretar og Hollendingar græða milljarða á vaxtamun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)