Salthúsið 2009.

IMG 9870 

Ég hef áður gert verkefni sem unnið hefur verið að á Stöðvarfirði skil hérna á síðunni http://www.magnuss.blog.is/blog/magnuss/entry/867298/ .  Nú er þetta verkefni orðið að veruleika með frábæru samstarfi fólksins á Stöðvarfirði, ferðamálafulltrúa Fjarðabyggðar, eigenda húsnæðisins að ógleymdum fjölda styrktaraðila og annarra velunnara.  

Árið 2005 var flestum fiskvinnsluhúsum á Stöðvarfirði lokað og togaraútgerð hætt.  Það má því segja að kreppan hafi þá byrjað á Stöðvarfirði.  Við félagarnir um sumarhúsið Sólhól, sælureitinn við sjóinn, keyptum eitt af þessum fiskvinnsluhúsum 2007 og höfum leigt það út fyrir húsbíla, hjólhýsi o.þ.h. yfir veturinn, en nú fær húsið í fyrsta skipti hlutverk yfir sumartímann síðan það var aflagt sem fiskvinnsluhús. 

   

Núna föstudaginn 5. júní opnaði Salthúsið á Stöðvarfirði formlega.  Þar verður handverksmarkaður ásamt ljósmyndasýningu úr sjávarútvegi á Stöðvarfirði opin í allt sumar.  Einnig er skjávarpi notaður til að varpa kvikmyndum af veiðum og vinnslu á vegg auk videoverks frá Gjörningaklúbbnum ILC.  Til stendur að vera með aðrar uppákomur s.s. myndasýningar frá náttúru Stöðvarfjarðar, tónlistaratriði, myndlistasýningar ofl, ofl.

Þessi áfangi að opna Salthúsið var mér mjög kær og sýndi hverju samhent átak jákvæðs fólks getur áorkað án mikilla fjárútláta.  Það má með sanni segja að tækifærin bjóðast þó að kreppi að, tækifæri sem ekki voru svo auðsjáanleg verða allt í einu augljós.  Íslenskt handverk og menning á erindi við erlenda ferða menn sem aldrei fyrr, það gerir hagstætt gengi og sú alheimsathyggli sem landið nýtur.  Þá er það bara fyrir okkur íbúa þessa lands að nýta tækifærið sem ferðaþjónusta býður upp á og njóta sumarsins.  Hér með er öllum boðið í Salthúsið 2009.

Hérna á síðunni má finna myndaalbúm frá opnun Salthússins . 


Hæ, hó og jibbí jæ jei, það er kominn 17. júní.

Hvað gera þeir verkalýðsrekendur, Gylfi og Villi nú?  Fara þeir heim og halda upp á 17. júní?  Það færi vel á því að þessir menn færu á átta sig á íslenskum hagsmunum.

Vilhjálmur var einn helsti talsmaður þess að ASG kæmi hér að málum, báðir hafa þeir talað fyrir því að þjóðinni verði þröngvað inn í ESB með skuldatöðu sem á sér enga líka. 

Ef 17. júní hátíðarhöld þeirra félaga verða til þess að þeir átti sig á íslenskum hagsmunum þá má segja að þessi hörmungarlækkun stýrivaxta hafi einhvern tilgang.  Þó að það væri ekki til annars en að opna augu þeirra félaga fyrir því að það að gefa erlendum lánadrottnum bankakerfi landsins í kaupbæti mun ekki rétta hlut íslenskra hagsmuna.


mbl.is Vextir lækkaðir í 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru stjórnmálamenn "húkkt" á AGS?

Greenspan 

Nú þegar það ætti að vera orðið hverjum hugsandi manni ljóst, hver ræður för í íslensku efnahagslífi, langar mig til að benda á þennan pistil um AGS http://www.vald.org/greinar/090502.html.  Þar má finna  fróðleiksmola um AGS og álykta í framhaldi af því hver framtíð Íslands verður.

 

Niðurlag pistilsins er sérlega táknrænt þegar haft er í huga að nú hafa þrjár ríkisstjórnir farið með völd á Íslandi, ein bylting verið gerð og einar lýðræðislega kosningar farið fram síðan bankahrunið varð.

En í niðurlagi pistilsins segir; "AGS gerði sér þá lítið fyrir og neitaði að afhenda nokkra peninga fyrr en allir frambjóðendur hefðu skrifað undir plagg þar sem þeir studdu samninginn. Þeir gerðu það og kjósendur voru þannig gerðir alveg valdalausir í þessu mikilvæga máli."


mbl.is Þyngri róður en áætlað var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankakerfið endurreist á kostnað heimilanna?

Fyrri hluta ársins 2008 létu stjórnmálamenn hjá líða að aftengja verðtrygginguna þrátt fyrir að fjárglæframenn bankanna spiluðu á hækkun hennar til að fegra efnahagsreikninginn með því að fella gengið á glæpsamlegan hátt.

Í 6.október settu þessir sömu stjórnmálamenn neyðarlög sem hafa komið Íslendingum í mestu ógöngur seinni tíma, án þess að aftengja verðtrygginguna, sem hefði getað hlíft heimilum og fyrirtækum við versta högginu.

Í febrúar 2009 tók við ný ríkisstjórn sem hafði það eina markmið að slá "skjaldborg" um heimili og fyrirtæki svo þau soguðust ekki inní hringiðu eignaleysis.  Þessi ríkisstjórn sá enga ástæðu til að hrófla við þeim bölvaldi sem verðtryggingin hefur verið.

Núna beitir velferðastjórnin sem sveikst um að slá "skjaldborg" um heimilin sömu aðferðum og bankarnir gerðu 2008, þ.e. spilar á verðtrygginguna til að bæta efnahagsreikning bankanna.  Velferðastjórnin nýtir sér það að hækka verðbólguna til að hækka höfuðstól lána.

Fyrsta endurskoðun lánasamnings Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) er langt komin, en aðaláhersla hefur verið lögð á að klára endurfjármögnun bankakerfisins og að jafna stöðu ríkissjóðs. Kom þetta fram á fréttamannafundi með fulltrúum IMF í morgun.

Stjórnmálamenn leysa engan vanda,  það voru þeir sem bjuggu hann til.  Þeir glíma því stöðugt við afleiðingar misstaka sinna en vilja ekki viðurkenna orsakir þeirra.


mbl.is Mjög óvinsælar aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin rænir rústirnar.

 

Ríkisstjórn Íslands tekur nú fullan þátt í að ganga um hamfarsvæði efnahagshrunsins og ræna rústirnar undir leiðsögn IMF. 

Í stað þess að koma með almennar aðgerðir til handa ísenskum heimilum og fyrirtækjum hvernig megi leiðrétta þá miklu skuldaklafa sem lagðir voru á saklaust fólk við hrun bankakerfisins situr ríkistjórn Íslands á rökstólum um það hvernig megi snúa örlítið meri aur í galtóman ríkiskassann. 

Ætli stjórnmálamönnum sé það alveg fyrirmunað, að hafa hugmyndaflug og kjark til að afnema verðtrygginguna?


mbl.is Ríkið fær 2,7 milljarða - lánin hækka um 8 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú átt þér engan líkan. Vertu einstakur.

One of a kind

 Þú átt þér engan líkan, vertu einstakur.  Á alltaf við.  Það er aldrei eins mikilvægt að láta sérstöðu sína ráða eins og á krepputímum.  Þú ert einstakur og með sérstöðu þinni losar þú þig við samkeppni.  Kreppa er oft ekki annað en hörð samkeppni um fánýta hluti þar sem glíman snýst um að komast af á öðru en sköpunarmætti egin sérstöðu.

 

Viðurkennd þekking, þ.e.a.s. menntun tekur lítið tillit til sérstöðu einstaklinganna.  Menntun gengur út á að þjálfa rökhugsun eftir ákveðnum fyrirfram gefnum staðreyndum fremur en að efla sköpunargáfu og frumkvæði.  Þessi tegund þekkingar hefur marg oft verið til mikilla hindrana fyrir samfélagið og er oftar en ekki notuð til að halda einstaklingnum innan vissra viðurkenndra marka, burtséð frá augljósum rökvillum. 

 

Sem einfalt dæmi má nefna hversu lengi haldið var fram að jörðin væri flöt og hversu illa Galileo gekk að koma þeirri þekkingu á framfæri að jörðin snerist í kringum sólina, í óþökk akademískrar þekkingar þess tíma.  Þannig má sjá að þekking sem aðlöguð er að fyrirframgefnum kenningum þarf ekki að vera rétt.

Nú má ætla að þekkingu mannsins hafi fleytt það mikið fram að ekki komi til þess að augljósar rökvillur verði varðar með offorsi og heift.  En er það svo?  Heimurinn situr uppi með peningakerfi sem sem er byggt upp á augljósri rökvillu.  Þeirri staðreynd að lánuð eru verðmæti í formi peninga sem aldrei voru til sem raunveruleg verðmæti og af þeim eru innheimtir vextir.  Hin viðurkennda þekking gengur út á að þessu kerfi verði að viðhalda með öllum tiltækum ráðum.  Að öðrum kosti er okkur sagt að samfélagið hrynji  með tilheyrandi hörmungum. 

 

Mentakerfið á að undirbúa einstaklingana fyrir lífið, þjálfa þá til nytsamra starfa.  Skyldi það vera tilviljun að þetta sama menntakerfið gengur lengst í að undirbúa einstaklinga til að aðlagast alþjóðavæddu peningakerfi?  Er það tilviljun að þetta sama menntakerfi eyðir nánast engum tíma í að vara einstaklinga við til hverskonar skuldaþrældóms þetta kerfi leiðir?  Er þetta hin sanna þekking dagsins í dag og er þeir sem eru á öðru máli einungis fylgjendur samsæriskenninga?

Law of attraction

Sú þekking sem hvern einstakling mestu máli skiptir er þekking hans á sjálfu sér, að lifa í fullu samræmi við eigið hjarta.  Okkur er sagt að vinnan göfgi manninn auk þess að afla honum lífsviðurværis.  En gætum þess að sú vinna sé í samræmi við  hjartað.  Því það getur verið svo margt sem hugann glepur.

http://thecrowhouse.com/aw1.html


Hvort er mikilvægara heimilið eða ríkið?

 

Steingrímur er kominn í þá undarlegu stöðu að verja stefnu IMF.  Fyrir völd virðast íslenskir stjórnmálamenn vera tilbúnir til að fórna heimilum á altari skuldaþrældóms. 

Jafnvel heimilum sem eru blásaklaus af því að hafa látið glepjast af græðgisvæðingunni er ætlað að endurreisa gjaldþrota bankakerfi auk þess að greiða skuldir óreiðumannanna eftir uppskrift IMF.


mbl.is Framsóknarmenn í afneitun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Is it true og landið bláa á grænu ljósi.

 IMG 9819

Það er alltaf fallegra að sjá lífið í litum.  Jóhann Guðrún söng "Is it true" í bláum lit af sannri innlifun fyrir Ísland og var auðvitað lang flottust.  Það átti engin litur betur við Jóhönnu og "Is it true" en litur landsins bláa.   

Undanfarnar tvær vikur hef ég verið upptekinn af litríku verkefni við að breyta flísabúðinni minni, eða réttara sagt að auka við vöruúrvalið.  Það má orða það sem svo að ég hafi veri að laga verslunina að þeim tímum sem nú eru uppi.  Nú verður flísabúðin, auk þess að vera flísa og gólfefna verslun með öllu fyrir baðherbergið, ferðamannaverslun í sumar.  Þar verður aðalsmerkið íslensk ull og handverk.  Verslunin er vel staðsett í miðbæ Egilsstaða með tvö hótel í nágrenninu og Vínbúðin er í næstu dyrum.

 IMG 9821 IMG 9797 IMG 9825 IMG 9815

Með því að smella á myndirnar má sjá hvernig verslunin hefur verið að breytast án þess að flísarnar missi sitt hlutverk.

Vörurnar sem bættust við í búðina eru framleiddar af Matthildi konunni minni og Nínu systur hennar auk fjölda annars handverksfólks sem hefur falið versluninni að selja framleiðsluna sína fyrir sig í umboðssölu.  Matthildur og Nína er miklar handverkskonur og hönnuðir.  Þær hafa núna í nokkur ár getað selt meira af framleiðslu sinni en þær hafa haft möguleika á að anna.  Nína hefur rekið handverkshús á Djúpavogi síðustu fimm sumur.  Nú veitist minni verslun sá heiður og það krefjandi verkefni að selja fyrir þær auk þess handverksfólk sem óskar þess að vörur þess séu teknar í umboðssölu.

Það má sjá myndaalbúmið "Handverk" hérna á síðunni en þar eru vörur þerra Nínu og Matthildar.

Það má semsagt segja að ég sé kominn á grænt ljós og stefnan næstu mánuðina sé skýr.  Fyrir nokkrum vikum var ég á gulu ljósi þar sem ákvörðun var tekin um að hætta að vera verkefnalaus verktaki, gerast þess í stað athafnamaður sem spilar úr þeim spilum sem hafa verið gefin.  Það má lesa um það hvenær ég var á gulu ljósi http://www.magnuss.blog.is/blog/magnuss/entry/848659/ .

Það var í október og nóvember sem ég var á blóð rauðu ljósi ásamt Ólafi Ragnari og íslensku þjóðinni.  Þá sem rann upp fyrir mér, hvort sem mér líkaði betur eða verr, að sem iðnaðarmaður var ég kominn í langt og að mörgu leiti kærkomið frí.  Það var á því "rauða ljósi" sem ég áttaði mig á að sú atvinnugrein sem ég starfa við yrði á löngu rauðu ljósi og sennilega væri best að fá konuna til að kenna mér að prjóna http://www.magnuss.blog.is/blog/magnuss/entry/708668/  .

Verkefnalausi iðnaðarmaðurinn kominn í lopapeysu og tilbúinn fyrir nýtt hlutverk.

En nú er ég semsagt kominn með krefjandi verkefni á nýjum vettvangi, hef notið stuðnings og velvildar minn nánustu auk fjöldann alls af góðu fólki.  Þannig að nú er komið að því að standa undir traustinu.  Vonandi tekst mér eins vel upp að kynna handverk frá landinu bláa eins og Jóhönnu tókst að kynna sitt land með "Is it true".


Sumarið er tíminn.

Ég er frelsið 

Undanfarna daga hef ég haft margt á hornum mér eins og sjá má hér á blogginu.  Skuldavandi heimilanna sem mikið hefur verið í fjölmiðlum hefur snert mig ólýsanlega.  Ég hef hreinlega verið kominn að því að springa í loft upp.  Þó svo að ég telji mig sjálfan vera í nokkuð góðum málum heima fyrir hef ég  samt sem áður horfst í augu við skuldavandi fyrirtækja minna. Eignabruni hefur því ekki farið fram hjá mér frekar en öðrum íslendingum undanfarna mánuði.

Þjóðráð

Núna þegar sumarið er á næsta leiti hef ég ákveðið að beina huga mínum að öllu því jákvæða sem sumrinu fylgir.  Því hef ég ákveðið að blogga ekki um, né eiða orku minni í þá neikvæðu umræðu sem er í gangi að sinni.  Þó að sú umræðan eigi því miður fullan rétt á sér.  Þess í stað ætla ég að beina allri orku minni að því að halda huganum heiðum og einbeita mér að öllum þeim skemmtilegu verkefnum sem framundan eru.  Þeim ætla ég gera skil hér á síðunni.

 

Þessu vil ég þó beina til þeirra sem horfa nú upp á vanda sem virðist óleysanlegur; 

Tíminn er eini raunverulegi gjaldmiðillinn.  Þegar hann líður er ekki ein sekúnda sem þú getur unnið til baka.  Peningar eru því ekki hinn raunverulegi gjaldmiðill.  Þegar þú hefur látið frá þér krónu geturðu alltaf útvegað þér aðra í staðin.   Verum því varká þegar við ráðstöfum tíma okkar í skiptum fyrir peninga. 

Law of attraction

Látum tækifærið til að njóta augnabliksins aldrei fram hjá okkur fara, því eins og Gandhi sagði; Dagurinn í dag er morgunndagurinn sem þú hafðir áhyggjur af í gær.  Var það þess virði?

Vil benda á færslu á hinni síðunni minni hérna á mbl blogginu. http://maggimur.blog.is/blog/maggimur/entry/737300/


Rústirnar rændar og fórnarlömbunum misþirmt.

Kunningi minn sem er mikill rekstrar maður, lýsti því oft fyrir mér á dramatískan hátt, þegar bankarnir léku þann leik að fella gengið í aðdraganda hrunsins á síðasta ári, hvernig  þeir níddust á fólki og fyrirtækum.  Ekki er hægt að fara nánar út í lýsingar hans nánar á prenti, en líkingamálið tengdist óæðri endanum.

Nú þegar Ísland er rústir einar má nota sama líkingamálið og kunningi minn notaða allt síðasta ár.  Erlendir stigamenn vaða um hamfarasvæðið rænandi og ruplandi með fullu samþykkja hverrar ríkissjónarinnar af annarri. 

Hver skyldu eftirmæli þeirra stjórnmálamanna verða, þegar fram líða stundir, sem að þessu IMF samstarfi hafa staðið? 


mbl.is Stýrivextir lækka í 13%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband