7.3.2024 | 20:53
Lýðskrum
Veröld illskunnar er tvöföld, verður að hafa tvö lið sem berjast í endalausu stríði vonlausra hjaðningavíga mennskunnar. Þú byrjaðir og skalt gjalda fyrir þú hefur drepið fleiri nú má ég. Ástæðan fyrir því að sjá ekki það, sem ávalt hefur verið skrifað í skýin, er blinduð andleg vitund fjöldans.
Það er ofviða okkur sem sækjum visku í medíu sérfræði og sviðsmynda, að treysta á eigin vitund. Þessi innrætta vitund upplýsinganna er keppnis, hún skipar í lið, -innrætir að taka afstöðu með eða móti óásættanlegum kostum. Dómgreind byggð á þannig visku velur þann skárri sem medían býður.
Flokkadrættir eru ekki byggðir á upplýsingu, þeir eru áróður byggður á upplýsingaóreiðu og oftar en ekki falsfréttum. Ef eitthvað ber að forðast þá er það dómgreind sem réttlætir að skjóta sig í gegnum barnahópinn, með það að markmiði að ráða niðurlögum myrkrahöfðingjans, -í stað bænar til almættisins.
Dægurmál | Breytt 9.3.2024 kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2024 | 14:52
Á hverfanda hveli
Sjálfsagt kemur upp í huga einhverra Hollywood, -Gone with the Wind við þetta orðatiltæki. Allavega er það fyrst til að koma upp á google. Eins mætti hugsa sér eitthvað sem er að hverfa af yfirborðinu eða út í veður og vind, líkt og skilningur á íslensku máli.
Þetta máltæki er reyndar ævafornt, ættað úr Hávamálum, einum af gersemum íslenskrar tungu. Orðasambandið kemur fram í 84. erindi, sem er fyrsta kvæði Mansagna Hávamála, annars hluta heilræðanna;
Meyjar orðum
skyldi manngi trúa
né því er kveður kona,
því að á hverfanda hveli
voru þeim hjörtu sköpuð,
brigð í brjóst um lagin.
Af þessu má ætla að kvenfólki sé hreint ekki treystandi þar sem hjörtu þeirra séu hverflynd (á hverfanda hveli) og að upplagi svikul (brigð í brjóst um lagin). Hverfanda er lýsingarháttur nútíðar af sögninni hverfa sem merkir snúa. Hvel var orð yfir hjól í fornu máli.
Bókin Örlög orðanna þættir um Íslensk orð og orðtök eftir Halldór Halldórsson byrjar einmitt á Hvervanda hveli. Og þar er þetta máltæki krufið ítarlega á mörgum síðum, með því að vitna í vísa menn og forna texta. Einn af textunum má finna í Alvíssmálum Eddukvæða;
Máni heitir með mönnum,
en mylinn með goðum,
kalla hverfanda hvél helju í,
skyndi jötnar,
en skin dvergar,
kalla alfar ártala.
Þarna er vísað til kvartilaskipta tunglsins sem tímatals, og mánans sem hvels sem hverfur í hringferli. Mörg þjóðtrúin bendir til þess að tíðahringur kvenna hafi með hverflyndi og sviksemi að gera, en því er ekki haldið fram í Örlögum orðanna að þar sé uppruna orðasambandsins að finna.
Höfundur Örlaga orðanna telur uppruna máltækisins eiga eingöngu rætur að rekja til Hávamála. Hann nefnir þó kenningar um að það kunni að hafa komið í Hávamál í líkingu Rota Fortuna -hamingjuhjólið sem hafi verið þekkt þegar Hávamál voru færð í letur.
Einnig kemur fram athyglisverð kenning um að hvelið í gæti verið leirgerðarhjól. Samkvæmt þeirri kenningu hafa hjörtu kvenna verið sköpuð við leirsmíði. En það telur höfundur Örlaga orðanna langsótt og fái tæplega staðist að höfundi hafi verið það í huga.
Eins og mátt hefur greina í síðustu bloggum þá hefur síðuhafi verið uppnuminn í garði Gunnlaðar. Í gegnum tíðina hafa það verið konurnar sem veitt hafa okkur karlmönnunum skáldskaparmjöðinn.
Berum því virðingu fyrir þeim sem okkur hafa á brjóstum borið og gefið okkur innblástur til orðs og æðis, -gefum þeim blóm.
Dægurmál | Breytt 6.3.2024 kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2024 | 09:47
Með kostulegri kveðju
Á meðan himnarnir hrynja
yfir þá heimilislausu
stend ég keikur í dyrunum
og öskra út í tíðarandann
Haldið kjafti snúið skafti
étið skít heima hjá ykkur
óþjóða hryðjuverkalýður
og skelli hurðinni
Geng inn og sest
við upplýstan skjáinn
-innbyrði sannleika heimsins
í postulegri kveðju Morgunnblaðsins
Leyfislaus söfnun fyrir Palestínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
25.2.2024 | 01:25
Munið þið þegar miðlínan var gul?
-Það var fyrir EES, Schengen, túristavaðalinn og mest af þeirri óáran sem unioninu fylgir. Nú er búið að heilaþvo heilu kynslóðirnar með þeirri möntru að allt sé betra. Stuttbuxnadeildin varð sú fyrsta, sem var vöskuð milli eyrnanna í trú á að Dabbi kóngur hefði komið Íslendingum inn í nútímann. Það dugði þangað til hann hrapaði af Svörtuloftum og fór sem próventukarl upp í Hádegismóa.
Eftir hið svokallaða hruni kom smá icesave glæta, en þá voru blessuð börnin vöskuð enn betur á milli eyrnanna með falsfréttum, ólæsi og hroða ensku, -af Davos dúkkulýsum. Og nú er svo komið að kynslóðin sem er að vaxa úr grasi veit varla hvað Ísland er annað en millilandaflugvöllur sem flytur landann í sólina á Tene og flækinga á klakann.
Á meðan hefur landráðaliðið framselt fullveldi og auðlindir landsins út í eitt og það verður trauðla endurheimt nema að taka afleiðingunum af því að segja sig frá EES og Schengen. Þó svo að það gæti kostað smá töf til Tene þá yrði Ísland á eftir meira á íslenskum forsemdum, -fiskurinn sem unnin var í Grindavík yrði unnin á landinu bláa en ekki á meðgjöf í unioninu.
Útlendingaiðnaðurinn er orðin helsti tekjumöguleiki innfæddra s.s ferðaþjónusta mönnuð með erlendu starfsfólki, byggingaiðnaðurinn er í sama fasa, -ekki nema nokkrir dagar síðan að rúmenskur vinnuflokkur bjargaði hitaveitunni á Suðurnesjum sem er í erlendri eigu. Allt gert til að hirða mismun af lágum launum og okri auðrónum til yndisauka.
Glópelskur landinn er orðinn eins og kotbændur fyrri tíma, sem héldu að þeir væru stórbokkar ef þeir fengu niðursetning, því það var borgað með þeim og hægt að fara illa með þá að auki. Allt heila helvítis fræðingabáknið og sviðsmyndaveldið þrífst orðið á niðursetningum og flækingi.
Í grófum dráttum eru niðursetningar lögfræðistóðsins hælisleitendur, og innflutta vinnuaflið þjónustar túristavaðalinn og byggir innviðina. Á meðan flestir innfæddra erum orðnir fákunnandi bjánar með fræðigráður á fundi.
-Eða í starfshóp á vegum ríkisins og fá frábærar hugmyndir á færibandi, en hafa hvorki hendur né verkkunnáttu til að framkvæma, hvað þá sjálfstæði, - og geta nú orðið varla þrifið eftir sig skítinn.
Já man einhver þegar miðlínan var gul? -og Ísland var Ísland Bubbi hafði hár og söng óræð ljóð.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
23.2.2024 | 17:00
Fífl
Ég missti út úr mér á kaffistofunni um daginn; -eins og þú veist nafni þá er sveitarstjórnarfólk mestu fífl sem fyrir finnast. Þá firrtist nafni við og sagði; -og þetta þykist þú geta sagt hafandi verið sjálfur í sveitastjórn. Já láttu mig vita það, -svaraði ég þá með þjósti.
-Þetta með fíflskuna er reyndar alls ekki einhlítt hún getur haft sínar ýmsu birtingamyndir í gegnum alla flóruna, og þegar fíflunum fer fjölgandi er rétt að líta í eigin barm.
Nú hefur verið ákveðið að hefja bílastæðagjaldtöku á þremur innanlands flugvöllum. Á það að vera til að bæta upplifun flugfarþega með því einu að setja upp gjaldtöku myndavélar, eftir því sem mannauðstjóri upplifunar hins opinbera hlutafélags orðar það, - ISAVIA sem hét áður Flugmálastjórn ríkisins er eftir sem áður jafn mikið ríkisins.
Hvernig bætt upplifun á að fást út úr því að vera rukkaður sérstaklega fyrir að fara á flugvöll er jafn hulin ráðgáta og þegar Reykjavíkurborg rukkar gamalt og fatlað fólk um stöðumælabrot í stæðinu heima hjá sér bara vegna þess að fábjánar með frábærar hugmyndir halda að hægt sé að breyta bílastæði í göngustíg með nýju deiliskipulagi, eða að setja upp skilti með mynd af Óla prik.
Einhverjir tæknilegir örðugleikar urðu reyndar á því að bætta upplifunin gæti hafist þegar til stóð á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum fyrr í vetur, -vegna Reykjavíkurflugvallar. Þeim hefur nú verið rutt úr vegi, sennilega með því að lauma reglugerð í gegnum ráðuneyti sem leifir myndatöku af fólki í landi ríkisins og rukka það.
Það er rétt að hafa í huga að ekki verða önnur bílastæði á flugvöllunum en þau sem bjóða upp á bætta upplifun og að Akureyrar og Egilsstaðaflugvellir eru notaður af fleirum en íbúum þessara staðar. Á Egilsstöðum eru mikið meira en næg bílastæði, bílaleigurnar raða tugum bíla í flest malbikuð stæði utan þeirra sem eru allra næst innganginum með tímamörkum.
Flugvöllurinn er notaður af öllum austfirðingum í tilfelli Egilsstaða. Farlama og fótafúnir fjarðabúar úr innviðaleysinu í neðra, búandi við lélegar eða engar almenningssamgöngur geta þurft að komast í flug vegna sjúkleika til Reykjavíkur og átt yfir 100 km leið á flugvöll, en engin deildskipulögð bílastæði eru fyrir þá í efra og nú fá þeir ekki einu sinni að leggja úti á túni án þess að njóta bættrar upplifunar.
Þá, sem hafa ekki annað en eigin bíl til að komast leiðar sinnar í og úr flugi, gæti þessi bætta upplifun kostað meira en flugferðin suður og jafnvel sjúkrakostnaðinn. Þetta ráðslag ISAVIA ohf í eigu ríkisins er því gott betur en á pari við þá þjóðarsátt sem birtist í heimabönkum landsmanna núna eftir áramótin, -bæði frá ríki og bæ.
Varla heyrist múkk í bæjarstjórnarfólki eða kjörnum fulltrúum löggjafasamkomunnar, hvað þá þjóðarsáttarsemjurum á vöfflukaffistofunni. Og þeir fáu sem fá að tjá sig af almúganum í fjölmiðlum bera sig bara mannalega. Setningar á við - löngu komin tími til og - mig munar nú lítið um 350 kall fyrir korter eru efst á vinsældarlistanum.
Sjálfur er ég fljótari á flugvöllinn gangandi enn á bíl svo þessi upplifun snertir mig ekki neitt.
Enda,,, -yfir bættri upplifun nöldra náttúrulega bara fífl.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.2.2024 | 05:44
Bárujárnsrokk
Í gegnum svefninn
hlusta ég á snjókomuna
þekja þykka þögnina
sem gjálfrar á hleinum
neðan við kot
Heyri hnullunga
rúlla og mala
í sogi úthafsöldu
niður básinn
í Þúfnafjörunni
Ég kom til að sofa
tímana tvenna
á brim strönd
úti við ysta haf
í hundrað ára
gulu húsi
Í faðmi bárujárns
læt ég sem ég sofi
en mun samt vaka
-vonandi til vors
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2024 | 05:32
Væringinn mikli og hin blóðuga, mállausa ákæra
Einn af þeim sem talin hefur verið til mikilmenna þessarar þjóðar er Einar Benediktsson. Í æsku heyrði maður þá lygasögu að Einar Ben hefði náð að selja norðurljósin í fylleríi. Hitt er rétt að hann hafði uppi stórhuga virkjanaáform löngu á undan sinni samtíð.
Sumar hugmynda Einars komust til framkvæmda áratugum eftir hans daga. Búrfellsvirkjun varð t.d. að veruleika hálfri öld eftir að Einar fékk hugmyndina. Hún varð fyrsta stórvirkjun Íslands til þess að útvega rafmagn fyrir erlenda stóriðju.
Einars Benediktssonar hefur einkum verið minnst sem einnar af sjálfstæðishetjum þjóðarinnar, auk þess að vera athafnamaður og þjóðskáld sem veitti innblástur fram eftir 20. öldinni. Eitt af þekktari ljóðum hans er einmitt um rafmagnað aðdráttarafl norðurljósanna sem nú í dag eru virkjað af ferðaþjónustunni.
Veit duftsins son nokkra dýrlegri sýn
en drottnanna hásal í rafurloga?
Sjá grundu og vog undir gullhvelfdum boga!
Hver getur nú unað við spil og vín?
Sjálf moldin er hrein eins og mær við lín,
mókar í haustsins visnu rósum.
Hvert sandkorn í loftsins litum skín,
og lækirnir kyssast í silfurósum.
Við útheimsins skaut er allt eldur og skraut
af iðandi norðurljósum. (sjá meira)
Snemma á 20. öldinni keypti Fossafélag Einars Benediktssonar land meðfram Jökulsá á Fjöllum ásamt náttúruperlunni Ásbyrgi. Hugsjón hans var að virkja ána og sagðist hann ætla að nýta raforkuna til að framleiða áburð á blóm og birki í örfoka landi.
Einar átti Ásbirgi í 15 ár, -hafði áður orti þar ódauðlegt ljóð á sumarmorgni. Jökulsá á Fjöllum rennur óbeisluð frá Vatnajökli, um Dettifoss og Hljóðakletta, allt til sjávar enn þann dag í dag, sem betur fer, ekki er ólíklegt að Sumarmorgunn í Ásbyrgi eigi sinn þátt í því.
Alfaðir rennir frá austurbrún
auga um hauður og græði.
Glitrar í hlíðinni geislarún,
glófaxið steypist um haga og tún.
Signa sig grundir við fjall og flæði,
faðmast í skrúðgrænu klæði.
En hvað var það raunverulega, -sem gerði Einar Benediktsson eins mikinn og af er látið? Ég hef verið að lesa bókina Væringinn mikli, ævi og örlög Einars Benediktssonar eftir Gils Guðmundsson, og kemur það mér nokkuð á óvart hvað gerði þennan stóra mann svo mikinn.
Vissulega var Einar með stærri og myndarlegri mönnum, stór ættaður, komin af betur stæðum Íslendingum. Móðir hans Katrín Einarsdóttir heimasæta á Reynisstað í Skagafirði, sem sagt er að hafi verið trúlofuð manni 12 ára gömul, en áratugur var á milli þeirra í aldri. Foreldrar hennar styrktu föður Einars, -Benedikt Sveinsson til mikilla mennta og út á þær komst hann til æðstu metorða, -sem Landsdómari.
Þau Katrín og Benedikt skildu eftir stormasama sambúð á Elliðavatni þar virðist óregla Benedikts hafa ráðið mestu, -og skiptu með sér barnahópnum. Benedikt hafði missti Landsdómara embættið, en varð síðan sýslumaður í Þingeyjarsýslum og þingmaður N-Múlasýslu, bjó á Héðinshöfða á Tjörnesi við Skjálfanda. Einar ólst upp hjá föður sínum.
Þegar fræðst er um Einar þá gerir maður sér grein fyrir hvað gerði manninn eins mikinn og af er látið. Segja má að það sem hafi gert Einar mikinn hafi hann sjálfur komið hvað best í orð sem örstuttri hendingu í ljóði. Allir þekkja orðatiltæki sem lifað hefur með þjóðinni allar götu síðan Einar kom þeim orðum í ljóð; -aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Það virðist vera sem næmni Einars fyrir þessum sannindum hafi umfram annað gert hann mikinn. Og sú aðgát átti ekki einungis við sál okkar mannanna heldur alls þess er prýðir sköpunarverkið.
Í bókinni er frásögn Einars af því þegar hann uppgötvaði hvernig allt tengist og hve mikilvægt er að bera virðingu fyrir öllu og öllum, -alltaf, -og að ekki verði bæði sleppt og haldið. Þar segir hann frá veiðiferð sem hann fór ungur maður út á Sjálfandaflóa. Ég ætla að leifa mér að birta valda kafla úr frásögninni því hún segir mikið um mikilmennsku.
Við vorum þrír á kænunni, kátir ungir og vel nestaðir. Hvað á dauðlegt líf ágætara að bjóða en slíkan dag og þvílíka volduga, dragandi fegurð? Eilífðin brosti í þessari skínandi skuggsjá, hafi öræfanna, og átti um leið náðargeisla handa þeim minnsta smælingja, sem leita vildi upp ljósið frá myrkrum djúpsins. Rétt við vörina vöktu birtingarnir og létu heila heima glitra á hreistrinu. Hrognkelsi sveimuðu á grunni, með blakka, hrjúfa hryggi í vatnsborðinu, til þess að dýrð sólarinnar mætti líta þá og snerta. Landselskóparnir iðuðu í látrunum, sælir og glampandi, með síopin augu. Veldi og skaut norðlenskrar náttúru ríkti yfir öllu á sjó og landi.
- 0 - 0 - 0 - 0 - 0 -
Í þetta sinn vorum við óheppnir. Selurinn kom upp langt fyrir aftan bátinn. Ég tók það ráð að leggja upp árar og hafast ekkert að. Ég hafði séð, að þetta var afar stór útselur, af því sama kyni, sem kallast kampur, en þeir eru haldnir ganga næst landsel að skynsemd og forvitni. Selurinn tók dýfu frá bátnum, en ekki mjög langa. Annar hásetinn var neftóbaksmaður, ég lánaði af honum rauðan vasaklút, sem ég lét lafa aftur af stýrinu. Svo biðum við kyrrir, án þess að láta neitt minnsta hljóð heyrast.
Eftir nokkur köf fór kampurinn að færast nær, og loksins kom ég skoti á hann, en hitti illa. Hann tók fyrst langa dýfu, en nú gátum við séð, hvert róa ætti. Bráin á sjónum sagði til og svo fór óðum að draga saman með okkur. Selurinn var auðsjáanlega særður til ólífis. En þá kom það fyrir, sem ég get aldrei gleymt.
Kampurinn tróð marvaða og rétti sig upp, á að giska fimmtíu faðma frá bátnum. Þetta færi var heldur langt fyrir högl, en samt miðaði ég og ætlaði að fara að hleypa af. En þá greyp selurinn til sunds beint á bátinn. Ég hafði heyrt sagt frá því hvernig selir réðust á báta, þegar líkt stóð á. En það var eins og eitthvað óskiljanlegt hik kæmi yfir okkur alla. Við hreyfðum okkur ekki í bátnum og kampurinn rétti sig aftur upp örfáa faðma frá kænunni.
Blóðið lagði úr sári á kverkinni og yfir granirnar. Mér sýndist hann einblína á mig, þarna sem ég stóð í skutnum á selabyttunni með morðvopnið til taks á móti þessum saklausa, forvitna einstæðing hafsins, sem var viðskila við sitt eigið kyn, sjálfur aðeins óvopnaður meinleysingi.
Eflaust hefur sú breyting verið áður að ná tökum á mér, smátt og smátt, að aumkva dýrin eins og mennina, þegar þau eru í nauð eða verða fyrir meiðslum og dauða. Mér finnst það nú til dæmis með öllu óskiljanlegt, hvernig ég hef getað fengið af mér að drepa saklausa fugla mér til gamans, án þess að nein neyð kreppti að mér. Endurminningar um þetta fylla mig oft viðbjóði og andstyggð á minni eigin tilgangslausu og léttúðugu grimmd. En í þetta skipti opnuðust fyrst augu mín. Þessi blóðuga, mállausa ákæra stendur mér oft í hugskoti en ég hef aldrei fyrr komið mér til þess að færa neitt um það í letur.
Kampurinn gjörði enga tilraun til árásar á bátinn og svo leið þetta andartak, sem verður að notast með skutli eða áróðri, ef veiðin á ekki að mistakast. En selurinn stein sökk í sama svip og eitthvað hulið afl lagði þögn og kyrrð yfir þessa litlu bátshöfn, sem fremur hafði lagt af stað í þessa veiðiför af leik heldur en þörf.
Maður í álögum segir gamla sagan! Ég get ekki gjört mér grein fyrir, hve oft ég hef, síðan þetta kom fyrir, hugsað um lið Faraós og sækonur þjóðsagnanna. En óendanlegur tregi og iðrun kemur upp hjá mér, þegar ég minnist þess augnaráðs, sem selurinn beindi á mig, þegar hann hvarf í djúpið.
Ég hef ætið orðið staðfastari með árum og reynslu í sannfæringu minni um algjört orsakasamband, milli alls og allra. Þessi viðburður, sem er mér svo minnisstæður, hefur sjálfsagt átt að vera mér bending, samkvæmt æðri ráðstöfun. Ef til vill hefur mér verið ætlað, þegar á þessu skeiði æsku minnar, að innrætast einhver neisti af miskunnsemi við aðra, sem máttu sín miður eða báru þyngri byrði.
En hvílíkur fjöldi atvika birtist í örsnöggri svipan fyrir athugulum augum í borgum þúsunda og milljóna, í kvikmyndastraumi strætalífs og skemmtihalla, - þar sem ætið og alls staðar endurtekur sig hin sama saga. Er ekki hamingja heimsins grundvölluð á samanburði auðæva, yfirburða, fegurðar og fróðleiks gagnvart þeim snauðu, gunnhyggnu, miður menntuðu og ósjálegri, er byggja umhverfi staðanna, margir við eymd og tötra? Hver ómælisgeimur af örbirgð og læging þarf að hlaðast undir stétt hinna æðri, sem svo kallast, til þess að þeir geti þóknast sér sjálfum og fundið sinn mikilleik.
Hve ótölulega mörg bleik, deyjandi andlit sökkva í þetta friðaða, lygna yfirborð mannlífsins, sem geymir dauða og glötun? Gangi ég framhjá tötruðum beiningamanni, sný ég stundum aftur. Er blóðug myndin, sökkvandi við borðstokkinn, sem gægist upp úr öræfum minninganna?
Þessi voru orð skáldsins um eigin mikilmennsku á Skjálfandaflóa og hygg ég að samferðamenn hans hafi oft upplifað hana á þennan hátt, því í þeim vitnisburði sem þeir hafa um Einar, -sem hann þekktu, -ber aðgát í nærveru sálar hæðst.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leynist strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
Eins og sjálfsagt allir vita, sem náð hafa að lesa þetta langt, þá endaði skáldið, heims- og athafnamaðurinn ævina í Herdísarvík á Reykjanesi svo að segja við sjálfsþurftarbúskap, á stað sem ekki var bílfært á á þeim tíma. Það gerði Einar samkvæmt eigin vali.
-KVEÐIÐ Í HERDÍSARVÍK-
Í æsku hugði ég á hærra stig.
Það heldur fyrir mér vöku,
að ekkert liggur eftir mig
utan nokkrar stökur. (EB)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
18.2.2024 | 02:25
Í garði Gunnlaðar
Huganum má líkja við skafrenning í snjall væddum nútímanum, þar sem Óminnishegrinn leiðir um villu vegar með þriggja sekúndna gullfiskaminni.
Þegar hugsun vekur upp tortryggni, kvíða eða efa, -og síðan skeytingaleysi, -orsakar hún dulda væntingu.
Ef flett er yfir í næstu nýmæli, án þess að ná áttum í þeim fyrri, sest hugmynd, -óafgreidd af innsæinu í undirvitundina.
Þannig er stafrænum nútímanum leyft að leiða hugann með tvískynungi, og viðhorfið til veruleikans litast af ranghugmyndum.
Hliðin sem er snúið er að heiminum mótast mest af innrætingu, fordómum og snjalltækni. -Á kostnað sköpunargáfu, kærleika og bænar.
Óminnishegrinn spígsporar
yfir auðnir vitundarinnar
en í skúmaskoti hjartans
lifir von um hið eilífa vor
á meðan vindar tímans
halda áfram að gnauða
á gluggum sálarinnar
Dægurmál | Breytt 20.2.2024 kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.2.2024 | 18:32
Skaufhalar og þursameyjar
Það er greinilegt að sá í neðra leikur sér að ríkisstjórninni, eins og köttur að mús. Varnagarðar hér og varnargarðar þar og allt í fári. Heil Grindavík ónýt, en samt svo til óbætanleg úr viðlagatryggingu. Heita vatnið farið af Suðurnesjum í frostinu og rafmagnsofnarnir í landinu annað hvort uppseldir aða fastir í Grindavík, þar sem engin fær að ná í þá á meðan landinu er stjórnað með spálíkani og sviðsmyndum úr Skógarhlíðinni.
Það vantar samt ekki að ríkisstjórnin er kokhraust. Allt verður komið í lag á morgunn. Vísindamennirnir okkar gerðu ráð fyrir öllum sviðsmyndum. Þó svo að það hafi komið örlítið á óvart hvernig þær rættust. En það má alltaf gera nýja sviðsmynd og bæta á nýjum sköttum fyrir nýjum garði. Jafnvel selja mjólkurkýrnar fyrir þjóðarsjóð úr því að bæði hamfara- og ríkissjóður eru tómir, -bara að muna að hafa borð fyrir báru í eigin vasa.
Því var haldið fram á þessari síðu að þessi ríkisstjórn væri ekki á vetur setjandi og er lítið annað að segja úr þessu en I told you so. Nú hefði verið gott að hafa ekki eitt öllu púðrinu í að fegra bókahaldið með dekri við auðróna, loftslagsvá, erlendan stríðsrekstur og sitja uppi með þúsundir erlendra flækinga ofan á ósköpin.
Einhverjum kann að detta í hug you ain´t seen nothing yet en við skulum vona að svo veði ekki, og þess í stað biðja fyrir ríkisstjórninni, -við höfum enga aðra. En ég ætla að setja hér inn samsuðu elds og ísa, -skoffín úr Völuspá og Skaufhalabálki, ríkisstjórninni til viðvörunnar svo margrómuð þjóðarsáttin fari ekki veg allrar veraldar.
Surtur fer sunnan
með sviga lævi
skín af sverði
sól valtíva.
Hafði áður
hætt útvegi
nægtir voru þá
og nógar vistir.
Geisar eimi
við aldurnara
leikur hár hiti
við himin sjálfan.
Matur er eigi meiri
mér í höndum:
halarófu bein
og hryggur úr lambi
bógleggir þrír
og banakringla
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)