Færsluflokkur: Dægurmál

Fíflagangur

Ég sagði frá því í vetur að það ætti að taka upp á því að taka myndir af fólki á landi ríkisins og rukka. Mér hafði orðið það á að kalla sveitastjórnarfólk mestu fífl sem fyrir fyndust vegna þess að það hvorki æmti né skræmti fyrir sína umbjóðendur, þegar fyrirhugauð var gjaldtaka af hálfu ISAVIA ohf á bílastæðum við þrjá af innanlandsflugvöllum landsins.

Ég benti á að ISAVIA ohf, sem hét áður Flugmálastjórn ríkisins, væri eftir sem áður jafn mikið ríkisins. Sveitastjórnarfólk rumskaði og hafa sum þeirra reyndar þóttust hafa staðið vaktina allan tímann þó þess hafi ekki orðið vart fyrr en búið var að setja upp myndavélabúnaðinn og komið var að gjaldtöku til að bæta upplifun flugfarþega að sögn mannauðs- ,viðmóts- og upplifunarstjóra ISAVIA ohf.

Við sama tækifæri og ISAVIA kynnti þessi bættu upplifunar áform, var bent á að ISAVIA hefði ekki heimild til að taka lán til viðhalds bílastæða, en alveg skautað fram hjá því að ohf með starfsmenn í óunninni yfirvinnu hefur leyfi til að segja upp fólki ef þarf að taka lán fyrir laununum.

Einhverjir tæknilegir örðugleikar höfðu reyndar orðið á því að bætta upplifunin gæti hafist þegar til stóð. Ég giskaði í vetur á að þeim hefði verið rutt úr vegi, sennilega með því að lauma reglugerð í gegnum ráðuneyti sem leifir myndatöku af fólki í landi ríkisins og rukka það.

Nú hefur komið í ljós hver fífl fíflanna eru, -í öllum fíflaganginum. það eru innviða- og fjármálaráðherra samkvæmt RUV.

Farið hefur fé betra.


Þjóðvegurinn

Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá landsmönnum að umferðin um vegi landsins hefur aukist gríðarlega undanfarin ár, með tilkomu túrismans, -bæði fólksbílaumferð og þungaflutningar. Og enn eru uppi áform um að bæta í túrismann.

Það sem af er ári hefur alvarlegum umferðaslysum fjölgað frá fyrri ári og síðast í gær var rútuslys norður í Öxnadal, sem er annað hópferðabílslysið á þessu ári, en alvarlegt slys var á suðulandi fyrir skemmstu.

Öllum sem fara reglulega um þjóðvegi landsins er það ljóst að viðhaldi þeirra er stórlega ábótavant miðað við umferðaþunga, -og að eitthvað mikið er að, svo mikið að ástandið er lítið skárra en þegar voru malarvegir. Nú má segja að þjóðveginum blæði allan hringinn.

Tvo daga núna í vikunni vorum við steypustrákarnir að steypa bryggjuþekju á Fáskrúðsfirði og útheimti hún talsverða steypu. Seinni daginn leið ekki á löngu þar til að það fór að verða bið á milli steypubíla. En steypunni var keyrt ofan af Héraði niður á Fáskrúðsfjörð.

Settar voru hraðatakmarkanir á Fagradal vegna blæðinga og steinkasts. Kannski má segja að álagið á veginum hafi verið mun meira þessa daga en vanalega. En málið er samt eftir sem áður, að blæðingar í slitlagi er algengar þrátt fyrir að álagið sé ekki meira en á vanalegum degi.

Hvað veldur? - eðlilegt þótti fyrir áratugum síðna að vegklæðing blæddi í miklum hitum, en nú virðist þeim blæða við miklu lægra hitastig, jafnvel undir frostmarki.

Þegar við keyrðum um Fagradalinn í þoku, en þurru, niður á Fáskrúðsfjörð snemma á miðvikudagsmorgunninn var það líkast því að keyra í blautu lími og veghljóðið eins og vegurinn væri rennandi blautur.

Sumir segja að þetta ástand á veganna hafi ekki svo mikið með álag að gera. Tekin hafi verið ákvörðun um að nota svokölluð umhverfisvæn efni í vegklæðningar, því sé ástandið eins og það er.

Það verður að teljast undarleg umhverfissérfræði þegar það er tekið upp á því að flytja til landsins möl erlends frá með tilheyrandi kostnaði, sem hefur meiri hörku og slitþol en innlend möl, til að auka slitþol þjóðvegarins

Samtímis sé notast við svo lélegt bindiefni af umhverfisástæðum að vegurinn er meira en ónýtur til þess sem hann er ætlaður, -hreinlega stórhættulegur, þegar fína innfluttu mölinni vöðlast um dekk bíla, slettist upp í loftið eða í besta falli út fyrir veg löðrandi í ónýtri tjöru.


Nýsköpunar séní og carbfixaðar kellingar

Aumingja ólæsu drengirnir, það er alveg hrikalegt að Running Tide á Íslandi þurfi að segja upp 14 manns vegna þess að stjórnvöld draga lappirnar um allan heim. Kannski ættu nýsköpunarséníin  hjá Running Tide að hafa samband við Carbfixuðu kellingarnar á ESB styrkjunum, sem eru vel læsar á tíðarandann og dæla nú niður alskins gumsi í fósturjörðina, jafnt á láði sem legi.

Það mátti svo sem búast við því að svona færi, -ættjörðin yrði ruslakista heimsins og að vormenn og fjallkonur Íslands tjölduðu öllu til til að gera sig mikilsmetandi og eiga fyrir salti í grautinn, -eða jafnvel bara til að komast til Tene.

En af því að ég nenni ekki þvæla í langlokur fyrir dygga lesendur þessa dagana, þá læt ég kafla úr einni frá því á síðustu öld fljóta hér aftan við eins hvern annan kúk í lauginni. Enda er margt af því sem var þvælt seint á síðustu öld að koma fram í dag

Þessi langloka birtist í Austra árið 1997 undir heitinu Ísmolar, þegar hyllti undir Kárahnjúka, -og Kringilsárrani var enn til á landakortinu. Þá var farið að glitta í hver vegferðin væri.

Nú gæti svo farið að spennandi tímabil væri í uppsiglingu. Stærsta álver landsins ásamt virkjunum í túnfætinum hjá okkur. Það eiga efalaust eftir að koma fram mörg sjónarmið ef málið verður ekki slegið af alveg á næstunni.

Sennilega allt frá því að best sé að grafa sig inní næsta moldarbarð og tyrfa vandlega yfir þannig að ásjónu landsins verði ekki spillt og stinga svo hausnum upp úr jörðinni og líta yfir ósnortna dásemdina á sunnudögum og ná sér í arfa tuggu í nafni lífrænnar ræktunar í ósnortinni náttúru.

Síðan alveg í hina áttina að best sé að nota landið undir eiturspúandi fabrikkur sökkva öllu á kaf undir miðlunarlón með þeim formerkum að verið sé að leysa mengunarvanda umheimsins og ekki saki að við stórgræðum á öllu saman.

Þarna gætu átt eftir að takast á sjónarmið þeirra grænu og þeirra eiturgrænu. Þeir grænu munu helst telja að vernda skuli sem mest af landinu ósnortnu fyrir komandi kynslóðir. Atvinnumöguleikarnir felist í því að fá ferðamenn til að sjá ósnortna dásemdina á kafi í snjó eða fjúkandi á haf út. Einnig halda á lofti miklum möguleikum lífrænnar ræktunar og að gróðurhúsaeigendur eru tilbúnir til að nýta það rafmagn sem til fellur til að rækta grænmeti, þó ekki nema á sérkennilegu verði.

Þannig er nú komið að stórskuldurum eins og ég dauðkvíði fyrir því þegar kartöflur eða önnur grænmetisuppskera er á ferðinni eftir að lánskjaravísitalan var svo snilldarlega afnumin og verðbætur tengdar við vísitölu neysluverðs.

Þeir eiturgrænu koma sennilega ekki til með að sjá hagkvæmni þess að rækta agúrkur í snjósköflum og framleiða kindakjöt á moði. Telja að betra sé að nýta orkulindirnar til erlends fabrikkureksturs. Skiptir þá ekki máli hvort fögrum gljúfrum verði sökkt, gæsahreiður sett á flot og að snjóskaflar verði að svelli stærstan hluta af ári. Framþróunin verði að hafa sinn gang og skipti þá ekki máli hvort varnarlaus almúginn þurfi að greiða hærra verð fyrir orkuna um tímabundna eilífð. Best sé að reyna að telja okkur vesalingunum trú um að verið sé að niðurgreiða orkuna til húshitunar úti á landi, svo kölluð orkuverðsjöfnun með niðurfellingu virðisaukaskatts.

Svo mætti ímynda sér að þeir sjálflýsandi grænu kæmu fram til að sætta þessi ólíku sjónarmið og leggja til að klakinn yrði seldur undir geymslu fyrir kjarnorkuúrgang heimsins úr því að Grænlendingar nýttu ekki tækifærið. Þá væri hægt að leysa eitt af stórvandamálum heimsins gegn góðri greiðslu, landinn fengi ógrynni fjár og landskika til að lifa á suðlægari slóðum, grænmetisframleiðendur gætu ræktað gúrkur við kjöraðstæður og náttúra landsins myndi haldast óbreytt um langa framtíð því ekki nokkur maður myndi voga sér að vera með átroðning í sjálflýsandi grænni dásemdinni.

Sá sem mest áhrif hefur haft á mínar skoðanir í þessum málum var gamall bóndi á Héraði, nú genginn. En á almennum fundi fyrir nokkrum árum, um þessi mál, hélt hann þá bestu ræðu sem ég hef heyrt. Megin inntak hennar var að vissulega væri landið fallegt ósnortið en eftir að vegurinn kom hefðu mun fleiri litið þá fegurð augum. Það væri nú svo að mennirnir færu eftir veginum, hreindýrin færu eftir veginum, fuglarnir flygju fyrir ofan veginn og rollurnar á Eyrarlandi færu núorðið líka eftir veginum og væru hættar að drekkja sér í Bessastaðaánni.

Sennilega eru flestir sammála Héraðsbóndanum þegar grannt er skoðað þó skoðanir séu skiptar um hvorumegin við hólinn vegurinn á að liggja.


mbl.is Óskýr skilaboð stjórnvalda ein ástæða uppsagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svart hvítar hetjur

Í vikunni kom fram í fréttum að Hafnafjarðarbær hefði gert samkomulag til 65 ára við HS-orku um auðlindaréttindi í Krýsuvík. Kom fram í frétt að þetta væri gríðarlegt hagsmunamál. HS-orka er í erlendri eigu og hefur greitt eigendum sínum ríflegan arð af starfseinni, svo gríðarlegan að leggja varð á sérstakan skatt á íslensk heimili fyrir skemmstu til að verja orkuverið Svartsengi með varnargörðum.

Dúkkulísan í utanríkisráðuneytinu, -já einmitt þessa með tryllingslegu augun, skrifaði um það grein núna undir lok viku að stríðið í Úkraínu væri svart-hvítt og það væri því göfugt góðgerðamál af íslenskum skattgreiðendum að fjármagna vopnakaup til manndrápa. Þar að auki er hún aftur komin með bókun 35 á sína könnu sem flestir aðrir en hún miskilja.

Í dag kom svo fjármálaráðherrann fram í fréttum og sagði að ríkið tæki í varúðarskini tuga milljarða að láni hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins, ef til þess kæmi að  fjármuni í erlendri mynt þyrfti vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Sagðist rykaði ráðherrann við það tækifæri hafa fundið fyrir áhuga Þróunarsjóðsins á að hjálpa Grindvíkingum.

Er ég að missa af einhverju?


Bessastaða tilberinn

Það dylst varla neinum að nú er verðbólgugróði af okurvöxtum Landsbankans notaður til að kaupa TM af náhirðinni. Gripið var til gamla góða galdursins, að senda tilbera á ríkisjötuna, eftir að viðundrið í Seðlabankanum hefur viðhaldið verðbólgnum vöxtum eins og hverri annarri froðu á hlandforinni við fjóshauginn.

Það má öllum vera ljóst að þjóðin situr áfram uppi með hyskið í sínum húsum eftir að náhirðin hefur fullkomnað TM söluna, þar til sígild forgangsverkefni hafa verið fullkomnuð, -og ungt fólki mun áfram fá að sjá sveita síns andlits gufa upp úr þakinu á okurvöxtum.

Nú þegar náhirðin hefur fullkomnað söluna á TM til Landsbankans í gegnum Kviku fær hún upp í arðgreiðslurnar til að kaupa restina af Íslandsbanka. Síðan verður Landbankanum og Landsvirkjun komið í lukkupottinn, enda hafa Davos dúkkulísur ríkisstjórnarinnar þegar sagt að ekki komi til greina að ríkisbanki reki tryggingafélag.

Það skildi engin velkjast í vafa um að litlu lukkudýrunum við Austurvöll liggur á að tæma verkefnalistann svo komast megi með fenginn frá borði með endanlegu fullveldisframsali til glópalsins. Og þá er rétt betra að hafa stimpilpúðann kláran á Bessastöðum.


mbl.is Landsbankinn búinn að ganga frá kaupum á TM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða sjálfstæðismenn kellingar þegar á hólminn er komið?

Nú styttist í að kjósendur fleyti kellingar samkvæmt skoðanakönnunum í Morgunnblaðinu og víðar; -svo formsatriði verði fullnægt. Og svo megi vekja upp andvana fæddan tilbera, sem ekki hefur komist á legg, -glópelskunni, EES og Geysis Green auðrónunum til arðs og æðis.

Formsatriði hefur ekki enn verið fullnægt, en allt hefur þetta samt einhvernvegin reddast, -enda sá helferðarhyskið á sínum tíma um að verja þetta ógeðslega þjóðfélag náhirðarinnar, -"þar sem eru engin prinsipp, engar hugsjónir, bara tækifærismennska og valdabarátta".

Sjálfstæðismenn þökkuðu fyrir með því að efla framgang helferðarinnar og kusu Gunnarsstaða móra sem forseta alþingis og tildruðu svo þeirri flissandi til forsætis ríkistjórnar. Nú ætla margir þeirra, málsmetandi á meðal, að kjósa Davos dúkkulísu sem forseta lýðveldisins.

Því verður seint trúað að sjálfstætt fólk á Íslandi ætli að kjósa gegn fullveldi lands og þjóðar, enda væri það með miklum eindæmum, og verður varla að óreyndu trúað að kjósendur standi ekki með sjálfum sér eftir að í kjörklefana kemur.

-Er nema von að hvískrað sé um skrímsladeild þegar skoðanakannanir eru annars vegar? -Það er nánast engin málefnalegur munur á þrem efstu kellingunum, hommanum og borgartrúðnum. Forseti kosin úr hópi fimm efstu, -samkvæmt könnunum, -fengi u.þ.b. 80-90% atkvæða málefnalega.

Þessu ætti sjálfstætt fólk nú þegar að hafa gert sér grein fyrir, þrátt fyrir stöðugar kannanir og þriggja sekúndna gullfiskaminni, -nema þá kannski metoo myllan hún Grísalappalísa með augun vatnsblá glær og galtóm.

 


Á að kjósa samkvæmt könnunum?

Á steypukalla andaktinni er nú svo komið að flestir félagarnir eru orðnir málefnalegir. Stór orð um svik og landráð eiga ekki lengur upp á pallborðið, þau hafa verið sett undir kaffikönnuna. Nú ber að kjósa rétt því atkvæði má ekki kasta á glæ.

Skoðanakannanir eru smá saman að gíra okkur upp í að kjósa "kepnis" til að eiga von um að vera í liði með sigurvegaranum. Þó engin skoðanamunur sé á efstu frambjóðendum samkvæmt kjaftavaðlinum. Nú skal ekki kjósa þann frambjóðanda sem mestur samhljómur er við, heldur þann sem á mestan möguleika á að koma í veg fyrir að fá þann sísta, og komast þannig bakdyramegin í sigurlið .

Skoðanakannanir hafa sjaldan verið meira áberandi en fyrir forsetakosningarnar núna. Nánast engu máli skiptir málefnalega hver af fimm efstu í könnunum nær kosningu hvað bæði alþjóðahyggju og málskotrétt þjóðarinnar varðar. En ef ekki er kosið "keppnis" samkvæmt taktík skoðanakannananna trúum við því flestir steypukallarnir, að atkvæðinu sé kastað á glæ.

Þannig höfum við ávalt kosið til alþingis eftir að skoðanakannanir komu til sögunnar, -reyndar oftast setið á eftir uppi með marghöfða svarta Pétur, sem vellur frá hægri til vinstri eins og ölæðisæla. Vitandi samt að þjóðin á ekkert betra skilið en það sem hún kýs, og við alveg saklausir af þeirri kosningu vegna þess að aðeins flokkurinn var kosinn, -í samsteypustjórnina sem fer með landráðin.

Fleiri en einn forseta frambjóðenda hafa samt afdráttalaust sagst standa vaktina og skjóta málum til til okkar í steypunni ef þörf verður á samkvæmt stjórnarskrá. En þeir njóta því miður ekki fylgis svo ekki tjóir annað en kjósa þann næst versta sem á möguleikann af mörgum slæmum til að vera bæði í sigurliði og halda andlitinu.

Og úr nógu er að moða á þeim vettvangi; fyrrverandi flissandi , minnislaus icesaveálfur og borgarbjálfinn, -og svo Davos dúkkulýsur sem finnst eitthvað og fara um það fögru máli vel gervigreindu. Þeir sem segjast ætla að stand með þjóðinni eða efla friðinn í heiminum, jafnvel koma í veg fyrir að kjarnorkusprengju verði kastað á Ísland, -koma því miður ekki til greina í þetta sinn samkvæmt könnunum.

Mér dettur ekki eitt augnablik í hug að mín stuðningsyfirlýsing verði einhverjum forsetframbjóðenda til framdráttar og læt þar við sitja, svo steyptur ótaktískur sem ég er. En finnst samt einhvernvegin að ég eigi ekki eftir að kjósa bleika lukkuriddara sem millilenda öðru hverju á landinu bláa eins hverjar aðrir hundadagakonungar.


Íslenda

Eini forseta frambjóðandinn sem hefur afdráttalaust sagst standa vaktina fyrir þjóðina og skjóta málum til hennar samkvæmt stjórnarskrá, -nýtur ekki fylgis. Enda hefur hann af mikilli hógværð gefið það út að hann ætli ekki að styggja nokkurn mann og beðið fylgjendur sína um að að gæta hófs í orðræðu. Það getur verið snúið að standa með fólki, sem stendur ekki með sjálfu sér, -hvað þá heilli þjóð.

Flestum öðrum frambjóðendum finnst um málskotsréttinn hitt og þetta áheyrilegt, þegar eftir er leitað, hvort þeir muni skjóta málum til þjóðarinnar, en skjóta sér jafnframt hárfínt undan að svara afdráttarlaust. Það er einmitt þegar frambjóðendum fer að finnast eitthvað, sem rétt er fyrir kjósendur að hlusta vel eftir því hvað er nákvæmlega sagt, -og standa síðan með sjálfum sér, -því að kjósa keppnis er að kasta atkvæði á glæ.

Hér fyrir neðan má finna lesningu í bóki Benedikts Gíslasonar frá Hofteigi, -Íslendu. Benedikt vildi meina að þeir sem námu hér fyrst land hefðu ekki einungis verið heiðnir, heldur hefði stór hluti landsmanna þá þegar veri kristið fólk, og hér á landi hefði í raun ríkt trúfrelsi. Siðaskiptin árið 1000, þegar tekin var upp einn siður, hefði í reynd verið ákvörðun um að gefa þjóðina á vald Rómakirkjunni.

Siðaskipti voru á Íslandi árið 1000. Árið 1056 var fyrst settur biskupsstóll í Skálholti. Erkibiskupsstóll var settur í Niðarósi árið 1122 sem hafði þá yfir að bjóða biskupsdómi á íslandi, en þá voru orðin hér tvö biskupsdæmi.

"Þetta útlenda yfirboð á kirkjumálefnum á Íslandi átti eftir að verða örlagaríkt fyrir íslenska þjóð, en smásaman færðist íslenska þjóðlífið meira og meira undir vald og aðra hætti kirkjulífsins. Þetta hlaut að blasa við þjóðlega hugsandi mönnum á þeirri tíð og vekja þeim ugg um sjálfstæða tilveru þjóðarinnar, er kirkjan sýndist stefna að því að draga undir sig þjóðfélagsvaldið og innlenda fjármálastjórn, því fyrstu fjárlög Íslendinga eru tíundarlögin, sem Gissur biskup fékk sett 1096 og gáfu kirkjunni forræði á þessum fjárlögum.

Mótvægi á móti þessu var fyrst og fremst saga þjóðarinnar. Í sögunni hlaut þjóðin að muna til sjálfrar sín og sagan hlaut að vernda skýringuna á þjóðinni, og þaðan bar að taka stefnumiðið um verndun og framgang þjóðarinnar móti alþjóðlegri samsteypu ríkja af sameiginlegum trúarbrögðum undir samþjöppuðu valdi á einum stað heims.

Menntun þjóðarinnar hafði farið mikið fram, einmitt af kristilegri menntatækni, lestri og skrift. Mátti því sýnast örðugt að greina á milli þess, sem þjóðin var sjálf og þess, er hún hafði hlotið, enda komu ekki fram skörp tímaskil í málinu, og má segja hitt, að taumur kirkjunnar var slegin ótæpilega, þótt hún yrði stundum að steyta fót sinn við steini.

Má segja það strax, að ritverk Íslendinga, er nú komu til sögunnar, urðu flest mjög höll undir kirkjuna, og þá á aðra grein ekki síður höll undir höfðingjavaldið, en höfðingjavald var einkunn hins íslenska þjóðfélags, frá því það komst á laggirnar."

Ég læt lesendum eftir að færa þessa lýsingu úr Íslendu til okkar tíma.


Íslandsvinir

Stundum, -þegar ég verð dapur, -segi ég við hana Matthildi mína að við séum að daga uppi eins og náttröll í eigin landi, rammflækt í rafmagngirðingum og öðru rusli. Þetta kemur helst til þegar við zikk zökkum þjóðveginn innan um túristana, -upp til heiða og niður til fjarða.

Hún með lopa á tifandi prjónunum og ég gónandi út um hliðarrúðuna eftir stað til að stoppa. Eftir því sem sveitin verður eyðilegri í kyrrð og fuglasöng, þá þéttast rafmagngirðingarnar, -og eftir því sem fjörðurinn verður sléttari í lognstyllunni þá verða laxeldiskvíarnar meira áberandi á spegli hafsins.

Flestir myndu ætla að þessar girðingar séu til að halda rollunum frá þjóðveginum og fiski í kvíunum. En svo þarf ekki að vera, lítið er orðið um sauðfé á landinu bláa, enda ver ullin rollurnar fyrir rafmagni. Og laxinn er á heljarþröm í kvíunum, ef ekki dauður eftir enn eina neyðarslátrunina. Ég hef grun um að rafmagnsgirðingin sé til að halda fólki á veginum og kvíarnar séu til að halda öllum firðinum.

Þessi girðingavinna hefur margfaldast með tilkomi hinna svo kölluðu Íslandsvina. Eru dæmi þess að dalir og annes haf verið afgirt með með rafmagni, keðju og hengilás. Einn Íslandsvinurinn var reyndar svo klókur að breyta þjóðveginum inn dalinn í bílastæði við veiðihús og merkti sem einkastæði á skilti með mynd af dráttarbíl. Nú hyggst hann hefja hamfaraórækt í dalnum með erlendum trjágróðri, sem á að verða villta norður Atlantshafs laxastofninum til afdreps og yndisauka.

Á sumardaginn fyrsta héldum við Matthildur mín okkur samt á Sólhól sem áður stóð á Kömbum á Kambanesi. Okkur datt í hug, á milli þess sem við horfðum út á hafið bláa hafið af sólpallinum, að keyra yfir á Kambanes og skoða neðstu hæðina á Sólhól, sem stendur enn steinsteypt við fjöruna á Kömbum, eftir að húsinu var fleytt yfir fjörðinn fyrir 80 árum síðan. Nú er allt Kambanesið komið í eigu Rússa og keðja með hengilás þverar þjóðveginn út á nesið með rafmagnsgirðingum meðfram, og skilti sem á stendur privat.

Heiðardalurinn í Mýrdalshreppi hefur verið um langan tíma lokaður. En í kóvítinu 2020 fékk Svissneski Íslandsvinurinn vegagerð ríkisins til að  hefla þjóðveginn um dalinn, og rétt á meðan var hengilásinn opinn. Við Matthildur röngluðum þangað, -en þar var ekki lengur mikið að sjá annað en fagra náttúru og dalakyrrð - ásamt ævafornri fjárrétt, önnur ummerki um búsetu í dalnum frá landnámi var að mestu búið að afmá.

Við rönglum samt oftast af Héraðinu yfir Öxi zikk zakk niður í okkar fyrr um heimabyggð við Berufjörðinn, sem um árabil hefur verið alsettur flotkvíum IceFishFarm, ásýndar eins og opin holræsi með lellanum fljótandi á í gamla daga. Fyrir stuttu heyrði ég af því að forvitnast hefði verið um hvort flotkvíar, sem ekki væru í notkun, yrðu fjarlægðar af fyrrum fiskibleyðum smábáta. Svarið var skýrt og skorinort, að það stæði ekki til, enda kvíarnar með leyfi og í fullum rétti á fjörðum til margra ára í viðbót, og verða það líklegast til eilífðarnóns ef fer sem horfir.

Í mörg ár höfum við ekki komist svo langt að rangla alla leið suður, hvað þá utanlands. En mér skilst að á Hellisheiðinni sé búið að setja upp Carbfixuð Climeworksver á nýsköpunarstyrkjum frá Evrópusambandi, þar sem Davos dúkkur í gulum verkfræðinga vestum með hvíta hjálma á kollinum trítla glaðhlakkalegar um hlaðvarpann rétt eins og hverjar aðrar landnámshænur.

Hvort til stendur að afgirða carbfixaða climetverkið með rafmagnsgirðingu eða hamfaraórækt til að hefta aðgengi mörlandans hefur ekki enn komið fram í fréttum. Opið hlið verður allavega til útlanda svo megi flytja óloftið þaðan á kútum til gereyðingar á íslenskum láði og legi, alheims loftslaginu til hreinnar blessunar með endurnýtanlegri íslenskri orku í öllum orkuskortinum.

Innan skamms munu litlu lukkutr0llin við Austurvöll afhenda firðina formlega Norskum fjárfestum. Það er nokkuð vist að ef gjöfin veldur gjaldþroti þá verður það ekki fjárfestunum að kenna, hvað þá þeirra að hreinsa firðina. Frekar en það hefur verið erlendu auðrónanna að taka niður rafmagnsgirðingar eða hefla þjóðvegi innan þeirra - kannski geta verkfræði púturnar sótt um nýsköpunarstyrk til ESB, -hver veit.

Já er það nema von að við gömlu brýnin upplifum okkur sem viðundur í öllum herlegheitunum. Á okkar ungdóms árum var talað um Ísland fyrir Íslendinga, að þjóðin þyrfti að brauðfæða sig sjálf og land í byggð. Ekki það að fólk færi þá vaðandi yfir ræktarland annarra, eða um hrjóstur án leyfis landeigenda. En í þá tíð var landeigandinn bóndi, búsettur við þjóðveginn og hægt að ná af honum tali.

Á þeim árum var fólk ekki snjallvætt og vissi hvorki af Víði hlíði né Skógarhlíðinni, því þótti það heyra öryggi til að land væri í byggð þegar nátttröll kæmu af fjöllum og var dæmisagan um bíltjakkinn því til staðfestu.

Sú dæmisaga var á þann veg að dekk hafði sprungið hjá ferðalangi upp á heiði og þegar hann ætlaði að skipta um dekkið þá vantaði tjakkinn í bílinn. Hann vissi af bæ við rætur heiðarinnar og ákvað að ganga þangað og fá lánaðan tjakk.

Á göngunni mundi hann eftir því að bóndinn á bænum var talin bæði ógreiðvikinn og ágjarn. Ferðalangurinn fór að hugsa um það hvað það myndi kosta hann að fá tjakkinn lánaðan og komst að þeirri niðurstöðu að sennilega myndi það kosta hann meira en aleiguna.

Hann bankað samt upp á bænum og þegar bóndinn kom til dyra öskraði hann framan í bóndann, að hann gæti bara átt sinn helvítis tjakk sjálfur, áður en hann strunsaði áfram til næsta bæjar. Nú er enn lengra að fara hvort sem það er til að fá tjakk, -eða leyfi til að skoða snjallvætt Ísland.

Dæmi eru þess að það þurfi að kaupa sig inn á Old Traffort til hitta landlortinn til að spyrja um leyfi svo skoða megi heilu landshlutana og alls ekki víst að nokkur skilningur sé á því þó eitthvert nátttröllið öskri í öllum fagnaðarlátunum þar; -þú getur átt þinn helvítis tjakk sjálfur.


Náhirðin

Það bregst ekki að um þetta leit mánaðar fara Svörtulofta séníin með himinskautum. Engum dylst lengur að stýrivaxtadags þráhyggjan er í besta falli orðin að meinloku sem örvar veðbólguna, -en er líklegast útsmoginn illska, -enda græða allir málsmetandi menn á tá og fingri.

Verðbólgudraugurinn er orðinn eins og hver annar sjálfbær hrossalæknir sem má nýta til að hafa sakleysingja að féþúfu og jafnvel af þeim aleiguna einn ganginn enn. Þetta er samt allt á réttri leið, vanskil sögulega ekki í hæðstu upphæðum.

Enda má kippa vanskilunum í liðin með yfirdrætti á okurvöxtum þangað til vextirnir bíta á veðbólguna, -og ekki skaðar yfirdregin hrossalækningin á meðan athyglisbresturinn er örvaður með einum og einum Tene túr í leiðinni. Ef ekki, -þá má alltaf deyfa ofvirkan landann með nógu mörgum forsetframbjóðendum fram að sumarfríi.

Verkalýðsforustan muldraði í barminn fram undir hádegi, um að fríar skólamáltíðir hafi farið í súginn í allri matvælasóuninni við hrossalækningu dagsins. Yppa síðan öxlum eftir hádegi enda styttist í mánaðamót og útborgunardag með óþrjótandi fjárfestinga tækifærum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband