Færsluflokkur: Dægurmál
29.11.2015 | 13:40
Hvað er að því að halda plani A?
Síðan um 1850 er talið að hitastig jarðar hafi hækkað um tæpa eina gráðu. Hvert kjörhitastig jarðar er hlýtur allt fara eftir því við hvað er miðað og hversu mikið má menga til að ná því hitastigi. Í landi elds og ísa þá geta hnattræn exel-meðaltöl kvótafræðinnar verið skjön við allan veruleika. Þar sem vonlaust er að halda aftur af eiturspúandi eldfjöllunum, enda ekki nema ár síðan að meinlaust eldgos í Holuhrauni mengaði margfalt á við alla Evrópu þrátt fyrir einlægan vilja stjórnvalda til að takmarka tjónið. Jafnframt er ekki úr vegi að rifja upp það um hitafar sem sagan telur vera upphaf byggðar í þessu landi.
Fyrir meira en þúsund árum síðan þá á að hafa ríkt hlýindaskeið sem gefur nútímanum lítið eftir nema síður sé. Jafnvel er talið að Ísland hafi verið svo til jöklalaust og uppi eru um það sögusagnir að þar sem nú er Vatnajökull hafi verið þjóðleið á milli Litla-héraðs (nú Skaftafell í Öræfum) og Möðrudals á fjöllum, Vatnajökull á að hafa verið kallaður Klofajökull. Einnig á Bárður nokkur að hafa flutt sig úr samnefndum dal á norðurlandi suður yfir bunguna sem við hann er kennd, ólíklegt er að hann hafi öslað snjóskafla á þeim ógnarslóðum að óþörfu.
Því er alltaf spurningin við hvað er miðað. Þegar ég spurði afa minn og nafna að því hvort ekki hefði verið notalegt að búa í torfbæ á fyrstu áratugum 20. aldar, en þessarar spurningar datt mér í hug að spyrja vegna þess að torfabæjar lífstíllin hlyti að hafa verið notalegt værðarlíf miðað við okkar tíma. Svarið sem sá gamli gaf bergmálar enn í mínu minni minnstu ekki á það helvíti ógrátandi nafni minn. Nú ber svo við að hitastig er talið hátt í sögulegu samhengi staðlaðra hitamælinga sem ná örfáa áratugi aftur í tímann. Þegar maður kynnir sér íslandssöguna þá skilur maður vel hvað fyrri kynslóðir máttu glíma við en þar var helvítið ekki alltaf heitt.
Í bókinni Fátækt fólk segir 20. aldar maðurinn, Tryggvi Emilsson, sem var uppalinn í torfbæ í Öxnadal, svo um sitt samferðafólk á fyrstu áratugum sinnar aldar; Þetta fólk bar grjót á höndum og hlóð garða og veggi, risti torf á hey og á þök, gerði sér eldivið úr suðataði sem varð að ösku til að þurrka upp leka og vann meðan hugurinn hjarði. - Þyngsta þrautin var að standast afleiðingar vetrarhörkunnar þegar seint voraði, börnin voru mögur og lasburða en reyndu þó að skríða á eftir henni móður sinni þegar hún var að hreinsa túnið, með bláar hendur eftir frostbólguna um veturinn, faðirinn fór sér hægt, þrótturinn var ekki upp á marga fiska. En eftir að fært var frá og mjólkin og skyrið og smjörið var aftur í búrinu og hver fékk sinn skammt fór lífsstraumurinn frá kjarngresi dalsins um alla mannkindina og að því bjuggu menn langt fram á næsta vetur.
Þó upphafi 20. aldar hafi verið kalt ,m.a.með sínum frostavetri 1918, þá var seinni hluti þeirrar 19. öllu kaldari, og eru frásagnir sem Tryggvi hefur eftir föður sínum til merkis um það. Á þessum hraunslóðum skeði sá atburður að ung kona þar úr sveit gekk við ásauði og hóaði saman til kvía, hún hélt á prjónum eins og venja var á tímum vinnuhörkunnar og hraðaði göngunni. Þessi kona var smalavön og kunnug hrauninu en í þetta sinn kunni hún ekki fótum sínum forráð og féll í hraungjótu, líka þeirri sem faðir minn dró lambið úr. Ekki slasaðist hún í fallinu svo til baga væri en kom niður á fæturna og hélt á leist og bandi. Þessa sögu sagði faðir Tryggva frá þeim tíma sem hann hafði verið vinnumaður á Straumi þar sem nú stendur álverið í Straumsvík. Þess má geta að konan á að hafa klárað að prjóna sokkana úr bandinu í hraungjótunni sem hún komst ekki uppúr og lognaðist að lokum út af á sjötta degi en vaknaði svo á einhvern yfirnáttúrulegan hátt komin upp úr ókleifri gjótunni. Töldu menn að henni hafi tekist það í svefni sem ekki tókst í vöku.
Ef menn halda að Tryggvi hafi fært í stílinn um köld kjör í bók sinni þá hafa opinberar heimildir ekki gert það síður. Í bókinni Gróandi þjóðlíf-sagan sem aldrei var sögð, má finna eftirfarandi; Þau válegustu tíðindi höfðu nú gerst, að yfir landið dundu einhver ægilegustu harðindi í sögu þjóðarinnar. Það var líkast því sem nokkur aðdragandi væri að þessu, eins og vetrarríkið og hafísinn væri smámsaman að magnast og sækja í sig veðrið og koma í hviðum yfir landið. Mjög harður þriggja ára kafli vetrarríkis og frosta hafði komið árin 1866-69 og þá varð til kvæði Kristjáns Fjallaskálds Nú er frost á fróni. Það fjallar um bjargarskortinn víða á Norðurlandi, voru þá mikil grimmdarfrost með spilliblotum inn á milli svo jörð varð klakastorkin og voru jarðbönn langt fram á vor með 20-30 stiga frostum. Var hann kallaður klakavetur hinn mikli.
En nú tók steininn alveg útyfir. Geysilegar frosthörkur hófust um landið allt strax fyrir jólin 1880 og lagði bráðlega allar víkur og firði, svo að gengið varð á ís úr Reykjavík og upp á Akranes og um allan Breiðafjörð eins langt og eyjar náðu. þá fyrst hóf hið hamramma heimskautslega vetrarríki innreið sína í fullu veldi 9. Janúar 1881, þegar á skall einhver sú skelfilegasta norðanhríð sem sagnir fara af. Þessi bylur stóð að segja má vikum saman með óskaplegri veðurhæð, svo hús og bátar og hey fuku og með hörkufrosti sem komst langtímum niður í 40 stig. Með þessu fárviðri rak ófyrirsjáanleg hafþök af ís að landinu um miðjan vetur svo allir firðir fylltust og fjöldi bjarndýra gekk á land og ráfuðu langt fram í sveitir. Þegar svo hafði staðið vikum saman með litlum hléum og nýjum og nýjum stórhríðum ríkti alger neyð og bjargarskortur um mikinn hluta landsins. Lá jafnvel við að fólk króknaði í húsum inni.
Næsti vetur var ekki eins stórviðrasamur né kaldur, en þá tók ekki betra við, því þá hófust harðindin að ráði með vorinu, í apríl-mánuði, með fádæma norðanstormi svo hafísbreiður rak upp að Norðurlandi og lá hann þar allt sumarið fram í september og orsakaði það, að stórhríðarkaflar komu af og til allt sumarið og ár voru riðnar á ís í júlí-mánuði. Í seinni hluta ágústmánaðar segir sýslumaður, Benedikt Sveinsson, í bréfi frá Héðinshöfða við Húsavík; Hér er dæmalaus ótíð. Hún tekur hreint ekki neinu tali. Enginn baggi hirtur í garð, og einlægir snjóar og krapa-hríðar, svo menn sitja dag eftir dag inni verklausir. Guð má ráða hvar þessi ósköp enda.
Við Berufjörð austanlands segir Marteinn Þorsteinsson frá bernsku sinni í viðtalsbókinni Gengin spor, þó svo að ártölunum skeiki um eitt ár á lýsingin greinilega við um sama tímabil; Fátt eitt man ég úr fyrstu bernsku, þá voru harðindaár og þröngt í búi hjá öllum almenningi. Veturinn 1881-1882 var geysilega frostharður og mikil ísalög. Hafís kom þó aðeins skammt inn fyrir Djúpavog. Þangað út lagði Berufjörð og eru það þrjár mílur danskar. Var allstaðar ekið á ísum landa á milli heim að hverjum bæ.
Árið 1883 varð fellisvetur. Þá kom ísinn á síðasta vetrardag. Flestir bændur voru heylausir og þrjár fyrstu vikur sumarsins stanslaus stórhríðarbylur. Faðir minn slátraði því sem nær hverju lambi um leið og það fæddist og fóru aðeins ellefu lömb á sumarhaga þetta vor, en fullorðið fé lifði allt. Mér er þetta minnisstætt vegna þess, að eitt þessara 11 lamba var mér gefið. Að Fossgerði, næsta bæ við Steinaborg, hafði þá nýlega komið maður, er Árni hét Sigurbjörnsson. Kona hans hét Hallfríður. Þau áttu nokkrar skjátur og misstu þær allar. Urðu síðan að hrökklast burt.
Seinni hluta 19. aldar komu svo árin sem landinn mátti auk kuldans glíma við afleiðingar eldgosa, líkt og Öskju gosins 1875. En þessa lýsingu má finna í bókinni Gróandi þjóðlíf-sagan sem var aldrei sögð; Allt virðist ein tilgangslaus auðn, þar sem við erum á ferð um foksanda hjá Hrossaborgum. Beinagrindur hesta liggja gulnaðar í malarbingjum gosöskunnar og vekja kenndir um skrælnaðan dauðadal, - hinsti fugl flögrar með ámátlegu væli yfir líflaus moldarbörð með skorpnuðu lyngi, - Krafla og Víti krauma og spú frá sér daunillri eimyrju úr brennisteinsgasi yfir flögin. - Hvernig datt mannfólkinu nokkurntíma í hug sú fásinna að setjast hér að og velja niðjum sínum ævikjör og átthaga á þessari heljarþröm,,,
Það er ekki svo langt síðan reglulegar mælingar hitastigs hófust á heimsvísu og hér á landi ekki fyrr en um miðja 19. öld þegar danska veðurstofan hóf að skipuleggja veðurathuganir á Íslandi. Hvernig dettur mannfólki okkar tíma sú fásinna í hug að kalla til ráðstefnu vegna göróttrar skýrslu Alþjóðabankans? Stofnunnar sem hefur gengið lengst í að arðræna auðlindir jarðar í nafni hagvaxtar. Og notar til málatilbúnaðarins, þau ár með í meðaltal hnattrænnar hlýnunar sem þeim sem þau lifðu vildu helst gleyma, eða í það minnst að á það helvíti væri ekki minnst ógrátandi.
![]() |
Það er ekkert plan B |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2015 | 06:35
Verðtryggingarglæpóið - það sem láðist að kynna frá 2001
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2015 | 20:30
Helvíti af himni ofan
Sagt er að þetta myndskeið á jörðu niðri sýni frá lofrárásum Frakka í Sýrlandi 15.11.2015, og er svo sem ekki nein sérstök ástæða til að vefengja það.
![]() |
Við sáum inn í helvíti í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2015 | 21:44
Veðrabrigði
Haustið hefur verið litskrúðugt og hlítt, sannkallað indíánasumar hér austanlands. Það má segja að almættið hafi toppað lognstillur haustsins með ævintýralegum hrímþokudögum nú um miðja viku. En núna eru veðrabrigði í lofti, dagurinn í dag bauð upp á kalsa rok og rigningu, þannig að gránaði niður í miðjar hlíðar Fjarðarheiðarinnar og spáin er kólnandi. Þessi blíðviðristími haustsins hefur verið sannkallaður sumarauki á sumar sem hafði að geyma þriðja kaldasta júlímánuð á Egilsstöðum frá því mælingar hófust.
Ég hef átt því láni að fagna að fá að þvælast um með vinnufélögunum í steypuvinnu, þó ég sé tæplega til meira gagns orðið en að styðja mig við stútinn á steypudælunni þá eru svona stundir gömlum steypukalli ómetanlegar. Steypuflokkurinn samanstendur vanalega af þremur pólskum víkingum og þremur íslendingum. Manni hefði einhvertíma þótt það tíðindi að á Íslandi væri erfitt að manna steypuflokk nema með einum pólverja á besta aldri tveimur miðaldra. Svo fornköppum íslenskum, bakveikum, hjartabiluðum og löggiltu gamalmenni, en að meðaltali er allur flokkurinn kominn vel á sextugaldurinn.
Þetta video er tekið við steypu í leikskólanum á Neskaupstað í gær, þar sem áður var slippur og dráttarbraut sem ekki er talin þörf fyrir lengur í sjálfum útgerðarbænum. Svona er Ísland í dag, en mikið er ég ánægður með að fá að vera einn af steypuköllunum af gömlu gerðinni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2015 | 12:19
Minnstu ekki á það helvíti ógrátandi
Hvert kjörhitastig fyrir fátækt er, hlýtur allt fara eftir því við hvað er miðað og hversu mikið þarf að menga til að ná því hitastigi. Í landi elds og ísa þá geta hnattræn exel-meðaltöl kvótafræðinnar verið skjön við þann veruleika. Þar sem vonlaust er að halda aftur af eiturspúandi eldfjöllunum, enda ekki nema ár síðan að meinlaust eldgos í Holuhrauni mengaði margfalt á við alla Evrópu þrátt fyrir einlægan vilja stjórnvalda til að takmarka tjónið. Jafnframt er ekki úr vegi að rifja upp það um hitafar sem sagan telur vera upphaf byggðar í þessu landi.
Fyrir meira en þúsund árum síðan þá á að hafa ríkt hlýindaskeið sem gefur nútímanum lítið eftir nema síður sé. Jafnvel er talið að Ísland hafi verið svo til jöklalaust og uppi eru um það sögusagnir að þar sem nú er Vatnajökull hafi verið þjóðleið á milli Litla-héraðs (nú Skaftafell í Öræfum) og Möðrudals á fjöllum, Vatnajökull á að hafa verið kallaður Klofajökull. Einnig á Bárður nokkur að hafa flutt sig úr samnefndum dal á norðurlandi suður yfir bunguna sem við hann er kennd, ólíklegt er að hann hafi öslað snjóskafla á þeim ógnarslóðum að óþörfu.
Því er alltaf spurningin við hvað er miðað. Þegar ég spurði afa minn og nafna að því hvort ekki hefði verið notalegt að búa í torfbæ á fyrstu áratugum 20. aldar, en þessarar spurningar datt mér í hug að spyrja vegna þess að torfabæjar lífstíllin hlyti að hafa verið notalegt værðarlíf miðað við okkar tíma. Svarið sem sá gamli gaf bergmálar enn í mínu minni minnstu ekki á það helvíti ógrátandi nafni minn. Nú ber svo við að hitastig telst hátt í sögulegu samhengi staðlaðra hitamælinga sem ná örfáa áratugi aftur í tímann. Þegar maður kynnir sér íslandssöguna þá skilur maður vel hvað fyrri kynslóðir máttu glíma við en þar var helvítið ekki alltaf heitt það gat alveg eins verið kalt.
Í bókinni Fátækt fólk segir 20. aldar maðurinn, Tryggvi Emilsson, sem var uppalinn í torfbæ í Öxnadal, svo um sitt samferðafólk á fyrstu áratugum sinnar aldar; Þetta fólk bar grjót á höndum og hlóð garða og veggi, risti torf á hey og á þök, gerði sér eldivið úr suðataði sem varð að ösku til að þurrka upp leka og vann meðan hugurinn hjarði. - Þyngsta þrautin var að standast afleiðingar vetrarhörkunnar þegar seint voraði, börnin voru mögur og lasburða en reyndu þó að skríða á eftir henni móður sinni þegar hún var að hreinsa túnið, með bláar hendur eftir frostbólguna um veturinn, faðirinn fór sér hægt, þrótturinn var ekki upp á marga fiska. En eftir að fært var frá og mjólkin og skyrið og smjörið var aftur í búrinu og hver fékk sinn skammt fór lífsstraumurinn frá kjarngresi dalsins um alla mannkindina og að því bjuggu menn langt fram á næsta vetur.
Þó upphafi 20. aldar hafi verið kalt ,m.a.með sínum frostavetri 1918, þá var seinni hluti þeirrar 19. öllu kaldari, og eru frásagnir sem Tryggvi hefur eftir föður sínum til merkis um það. Á þessum hraunslóðum skeði sá atburður að ung kona þar úr sveit gekk við ásauði og hóaði saman til kvía, hún hélt á prjónum eins og venja var á tímum vinnuhörkunnar og hraðaði göngunni. Þessi kona var smalavön og kunnug hrauninu en í þetta sinn kunni hún ekki fótum sínum forráð og féll í hraungjótu, líka þeirri sem faðir minn dró lambið úr. Ekki slasaðist hún í fallinu svo til baga væri en kom niður á fæturna og hélt á leist og bandi. Þessa sögu sagði faðir Tryggva frá þeim tíma sem hann hafði verið vinnumaður á Straumi þar sem nú stendur álverið í Straumsvík. Þess má geta að konan á að hafa klárað að prjóna sokkana úr bandinu í hraungjótunni sem hún komst ekki uppúr og lognaðist að lokum út af á sjötta degi en vaknaði svo á einhvern yfirnáttúrulegan hátt komin upp úr ókleifri gjótunni. Töldu menn að henni hafi tekist það í svefni sem ekki tókst í vöku.
Ef menn halda að Tryggvi hafi fært í stílinn um köld kjör í bók sinni þá hafa opinberar heimildir ekki gert það síður. Í bókinni Gróandi þjóðlíf-sagan sem aldrei var sögð, má finna eftirfarandi; Þau válegustu tíðindi höfðu nú gerst, að yfir landið dundu einhver ægilegustu harðindi í sögu þjóðarinnar. Það var líkast því sem nokkur aðdragandi væri að þessu, eins og vetrarríkið og hafísinn væri smámsaman að magnast og sækja í sig veðrið og koma í hviðum yfir landið. Mjög harður þriggja ára kafli vetrarríkis og frosta hafði komið árin 1866-69 og þá varð til kvæði Kristjáns Fjallaskálds Nú er frost á fróni. Það fjallar um bjargarskortinn víða á Norðurlandi, voru þá mikil grimmdarfrost með spilliblotum inn á milli svo jörð varð klakastorkin og voru jarðbönn langt fram á vor með 20-30 stiga frostum. Var hann kallaður klakavetur hinn mikli.
En nú tók steininn alveg útyfir. Geysilegar frosthörkur hófust um landið allt strax fyrir jólin 1880 og lagði bráðlega allar víkur og firði, svo að gengið varð á ís úr Reykjavík og upp á Akranes og um allan Breiðafjörð eins langt og eyjar náðu. þá fyrst hóf hið hamramma heimskautslega vetrarríki innreið sína í fullu veldi 9. Janúar 1881, þegar á skall einhver sú skelfilegasta norðanhríð sem sagnir fara af. Þessi bylur stóð að segja má vikum saman með óskaplegri veðurhæð, svo hús og bátar og hey fuku og með hörkufrosti sem komst langtímum niður í 40 stig. Með þessu fárviðri rak ófyrirsjáanleg hafþök af ís að landinu um miðjan vetur svo allir firðir fylltust og fjöldi bjarndýra gekk á land og ráfuðu langt fram í sveitir. Þegar svo hafði staðið vikum saman með litlum hléum og nýjum og nýjum stórhríðum ríkti alger neyð og bjargarskortur um mikinn hluta landsins. Lá jafnvel við að fólk króknaði í húsum inni.
Næsti vetur var ekki eins stórviðrasamur né kaldur, en þá tók ekki betra við, því þá hófust harðindin að ráði með vorinu, í apríl-mánuði, með fádæma norðanstormi svo hafísbreiður rak upp að Norðurlandi og lá hann þar allt sumarið fram í september og orsakaði það, að stórhríðarkaflar komu af og til allt sumarið og ár voru riðnar á ís í júlí-mánuði. Í seinni hluta ágústmánaðar segir sýslumaður, Benedikt Sveinsson, í bréfi frá Héðinshöfða við Húsavík; Hér er dæmalaus ótíð. Hún tekur hreint ekki neinu tali. Enginn baggi hirtur í garð, og einlægir snjóar og krapa-hríðar, svo menn sitja dag eftir dag inni verklausir. Guð má ráða hvar þessi ósköp enda.
Við Berufjörð austanlands segir Marteinn Þorsteinsson frá bernsku sinni í viðtalsbókinni Gengin spor, þó svo að ártölunum skeiki um eitt ár á lýsingin greinilega við um sama tímabil; Fátt eitt man ég úr fyrstu bernsku, þá voru harðindaár og þröngt í búi hjá öllum almenningi. Veturinn 1881-1882 var geysilega frostharður og mikil ísalög. Hafís kom þó aðeins skammt inn fyrir Djúpavog. Þangað út lagði Berufjörð og eru það þrjár mílur danskar. Var allstaðar ekið á ísum landa á milli heim að hverjum bæ.
Árið 1883 varð fellisvetur. Þá kom ísinn á síðasta vetrardag. Flestir bændur voru heylausir og þrjár fyrstu vikur sumarsins stanslaus stórhríðarbylur. Faðir minn slátraði því sem nær hverju lambi um leið og það fæddist og fóru aðeins ellefu lömb á sumarhaga þetta vor, en fullorðið fé lifði allt. Mér er þetta minnisstætt vegna þess, að eitt þessara 11 lamba var mér gefið. Að Fossgerði, næsta bæ við Steinaborg, hafði þá nýlega komið maður, er Árni hét Sigurbjörnsson. Kona hans hét Hallfríður. Þau áttu nokkrar skjátur og misstu þær allar. Urðu síðan að hrökklast burt.
Seinni hluta 19. aldar komu svo árin sem landinn mátti auk kuldans glíma við afleiðingar eldgosa, líkt og Öskju gosins 1875. En þessa lýsingu má finna í bókinni Gróandi þjóðlíf-sagan sem var aldrei sögð; Allt virðist ein tilgangslaus auðn, þar sem við erum á ferð um foksanda hjá Hrossaborgum. Beinagrindur hesta liggja gulnaðar í malarbingjum gosöskunnar og vekja kenndir um skrælnaðan dauðadal, - hinsti fugl flögrar með ámátlegu væli yfir líflaus moldarbörð með skorpnuðu lyngi, - Krafla og Víti krauma og spú frá sér daunillri eimyrju úr brennisteinsgasi yfir flögin. - Hvernig datt mannfólkinu nokkurntíma í hug sú fásinna að setjast hér að og velja niðjum sínum ævikjör og átthaga á þessari heljarþröm,,,
Það er ekki svo langt síðan reglulegar mælingar hitastigs hófust hér á landi, eða um miðja 19. öld þegar danska veðurstofan hóf að skipuleggja veðurathuganir á Íslandi. Hvernig dettur mannfólki okkar tíma sú fásinna í hug að taka þau ár með í meðaltal hnattrænnar hlýnunar sem þeim sem þau lifðu vildu helst gleima eða í það minnst að á það helvíti væri ekki minnst ógrátandi.
![]() |
Milljónir fátækra vegna hlýnunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2015 | 12:19
Hús fortíðarinnar kostuðu ekki krónu
Sem betur fer koma stöðugt fram hugmyndir um ódýrara húsaskjól. Oftast koma þeir með athyglisverðustu hugmyndirnar sem tilheyra ekki byggingabransanum. Svo virðist vera í því tilfelli, þar sem helstir virðast vera tilnefndir athafnamaður í plastbátaframleiðslu og viðskiptalærður ölgerðarforstjóri sem vakti athygli á sér fyrir skemmstu með því að benda Færeyingum á að ekki mættu þeir nota nafnið Gull lengur yfir Færeyjabjórinn sinn sem þeir seldu á Íslandi, vegna reglna um skrásett vörumerki, þó svo að Færeyjabjórinn hefði mun lengur gengið undir nafninu Gull á Íslandi en gullið frá Ölgerðinni.
Ástæðan fyrir því að hús kosta ekki lengur krónu eins og var með torfbæina í denn er óhóflegt reglugerðarfargan. Þetta getur hver sem er sannreynt með því að fara út í móa og gera tilraun til að byggja sér þak yfir höfuðið. Þó svo að hann steypti það upp úr viðurkenndri steinsteypu í staðlaðri vörugámastærð er líklegast að það yrði brotið niður af yfirvöldum áður en hann lyki verkinu. Meiri líkur eru á að sá sem reyndi að sniðganga byggingareglugerðirnar kæmist upp með að búa í vörugámi sem plantað væri niður úti í móum, jafnvel í nokkur ár. En yrði samt að gera sér að góðu bréfaskriftir frá yfirvöld þar sem farið væri fram á að umræddur gámur yrði fjarlægður og stöðugjalds krafist þangað til.
Sennilega er afturhvarf til fyrri tíma í við húsbyggingar hagstæðast fyrir allan almenning hvað kostnað varðar því allar líkur eru á því að fólki yrði ekki skotaskuld úr því að byggja sér hús fyrir ekki svo mikið sem krónu. Ef fólk efast eitthvað um að svo megi vera þá ættu það að kynna sér videoið hér að neðan þar sem aðeins þurfti að greiða þorpshöfðingjanum tvær hænur fyrir byggingaleyfið. Allavega mætti segja að á Íslandi sætu allir við sama borð, hvað kostnað við reglugerðafarganið varðar, ef þeim yrði ekki gert að greiða ráðherra húsnæðismála nema tvær hænur fyrir byggingaleyfið en hefðu síðan frjálsar hendur að öðru leiti og hugmyndafluginu væri um leið leift að njóta sín.
![]() |
Hús framtíðarinnar úr plasti? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 3.4.2016 kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.10.2015 | 21:56
Lögbundinn þjófnaður
Fram á þennan dag hafa greiðslur til lífeyrissjóða oft á tíðum verið hreinn þjófnaður af launum fólks. Það eru ekki lengra síðan en 2008 að verðtryggingarhyskið hefði tapað bróðurpartinum af lífeyri landsmanna ef ekki hefði komið til þess að hægt var að stórhækka skuldir fólks og láta það fjármagna tapið eftir elítan í sjóðstjórnunum hafði skitið upp á bak.
Nú færir sama hyski sig upp á skaftið og boðar að 15,5% af launum landsmanna skuli nú renna í brasksjóðina þeirra án þess að spyrja þá sem aurana eiga og ekki þarf að efast um að mannvitsbrekkurnar á alþingi munu leggja blessun sína yfir verknaðinn.
Til áminninagar um fyrri gjörðir þessa hyskis þá læt ég gamlar minningar fylgja um lögbundinn þjófnað. Sjá hér.
![]() |
Lífeyrisiðgjald fer í 15,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.10.2015 | 17:33
Verðtryggingar glæpóið
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2015 | 20:23
Indíánasumar
Hestarnir á Finnstaðatúninu höfðu það gott við sólarupprás síðasta dag september
Undanfarna daga hefur ríkt sannkallað indíánasumar austanlands með veðurblíðu daga eftir dag. Síðustu vikur hafa verið kærkominn sumarauki eftir blautt og kalt sumar. Í dag 1. október var hlý suðvestan átt með 14°C upp á héraði og hitinn fór í 17°C niður á fjörðum.
Útsýnið af svölunum í Útgarðinum hefur verið ljúft undan farin kvöld
September hefur verið hlýjasti mánuður sumarsins þar sem dags hitinn hefur oft farið í 15 - 20 stig og nætur hitinn sjaldan mikið niður fyrir 10 gráður. Náttúran er farin að skarta sínu fegursta í haustlitunum.
Veðrabrigði á kvöldhimninum núna í kvöld, 1. október
Undanfarnar vikur hef ég notið þeirrar gæfu að fá að flækjast um með vinnufélögunum í eintómri steypu dag eftir dag. Það má segja að hlýindin hafi svipuð áhrif og á lífverur með kalt blóð, lífsneistinn glæðist í hitanum.
En einu hef ég mikið verið að velta fyrir mér. Sagt er að karlmenn geti ekki straujað, því heilinn á þeim ráði ekki við svo flókið verkefni, en ætli kvenfólk geti steypt?
Dægurmál | Breytt 20.10.2015 kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2015 | 21:43
Ekki er allt sem sýnist.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)