Færsluflokkur: Dægurmál

Þúsundir fábjána við störf.

Það er svo mikið af fólki á Íslandi sem hefur orðið vinnu af því að gera hinum erfitt fyrir að margir sjá þann einn kost að hverfa úr landi.  Einu störfin sem hafa orðið til frá hruni eru  störf hámenntaðra sérfræðinga háskólasamfélagsins við að gera fólki sem vill skapa sér vinnu upp á gamala mátann það ókleift með reglugerða fargani og ósjálfbærum arfavitlausum atvinnuúrræðum.  Eitt af mörgum svakalegum dæmum sem hægt er að nefna er atvinnusköpun þessara sérfræðinga í kringu kræklingarækt.

Úrræði stjórnvalda hafa svo hingað til einkennst af því að narra fólk í nám til að búa til enn fleiri sérfræðinga, af algjöru skilningsleysis á því hvað er arðbær atvinna.  Fimm gráðu sérfræðingar háskólasamfélagsins er smá saman að takast það að gera Ísland að Kúbu norðursins.  Hér segir einn sögu sína af því hvernig hann var narraður á vonarvöl samkvæmt námsúrræðum stjórnvalda

Síðuhöfundur er einn af þeim sem sá sér þann kost vænstan að hverfa úr landi í atvinnuleysi í kjölfar áratuga reksturs eigin fyrirtækja.  Eftir að hafa fengið atvinnutilboð í Noregi hefði mátt ætla að auðvelt væri að fara og skoða aðstæður, en viti menn til þess að fara úr landi og halda rétti til atvinnuleysisbóta þarf að sækja um leifi hjá Vinnumálastofnu.  Mér var tjáð að hún tæki sér 3 vikur í að svara erindinu.  Það var því ekki um annað að ræða en að fara og vona það besta.

Það er ekki ofsögum sagt að margir hverjir sem véla með atvinnu annarra hafa ekki snefil af því um hvað málið snýst.  Þetta er oft á tíðum fólk sem situr á skrifstofum stjórnsýslubattería s.s. sveitarfélaga sem hafa blásið óendanlega út síðustu áratugina.  Þetta fólk skilur svo ekkert í því að ekki skuli vera hægt að fá fólk t.d. í 10 -30% umönnunarstörf í öllu atvinnuleysinu, sem það ætlar að stjórnast með án þessa að detta það svo mikið í hug að bjóða sig til þess sjálft, sem það þyggur þó launin fyrir. 

Núna á að koma atvinnurekendum til að ráða fólk sem þeir fá greiddar með fullar atvinnuleysisbætur, svo það sé hægt að halda áfram uppi háu tryggingagjaldi í atvinnutryggingasjóð til atvinnuleysisbóta, sem er fyrir löngu orðið það hátt að fyrirtæki treysta sér ekki til að ráða fólk vegna hins svimandi óbeina kostnaðar sem þeir greiða orðið starfsmönnum sem eru á launum hjá Vinnumálastofnun.   Síðan er tryggingagjaldinu útdeilt til valinna fyrirtækja af sérfrðingunum jafnframt því sem það er notað til að halda uppi þeim stjórnsýslu stofnunum sem eru að möndlka keisið.


mbl.is 1300 störf í boði - 600 ráðnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláar myndir á sunnudagskvöldi.


Það verður ekki á þá logið.

Það verður seint á sveitarstjórnarmenn logið, þvílíkir afglapar.  Þeir hafa nú þegar í mörgum sveitarfélögum selt allar skólabyggingar, leikskóla og aðrar fasteignir sveitafélagana á leiga þær síðan aftur.  Þetta hafa þeir gert án þess svo mikið sem að spyrja íbúana. Þannig hafa þeir náð í skotsilfur til að þenja út stjórnsýsluna og launin sín um mörg hundruð prósent á örfáum áratugum.

Nú eru þeir ekki í rónni nema geta selt víðerni fósturjarðarinnar undir ímyndað hótel. Þess verður ekki langt að bíða að þessir "seðlar" selja land heilu sveitafélaganna til "fjárfesta", sem hækka svo lóðarleiguna á íbúana á svipaðan hátt og sumarhúsaeigendur víða um land hafa mátt standa frammi fyrir, þar sem þeim er annaðhvort gert að ganga að stökkbreyttri lóðaleigu eða fjarlægja húsið.  Það sem er þó almerkilegast í þessu tilfelli er að afglaparnir ætla að láta íbúana borga brúsann við að sniðganga lögin. 


mbl.is Bæjarstjórinn er bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð í tíma töluð.

Þarna er komin rödd í hóp frambjóðenda til forsetaembættis sem þarft er að heyrist hátt og skýrt.  Það er nokkuð ljóst að þarna er tæpt á þeim málum sem á þjóðinni brenna. 

Eins er það kristaltært að ef þeir sem með lögjafarvaldið fara settu sér það að þingmannslaun yrðu á pari við lágmarkslaun í landinu byggju allir við velferð.  Áfram Andrea.


mbl.is „Þar sem er vilji er vegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláar myndir á sunnudagskvöldi.


Happa þrenna.

Til hamingju Íslendingar, í dag hefur það endanlega verið staðfest að gamla Ísland hrundi ekki haustið 2008.  Það má jafnvel segja að staðan sé orðin 3:0 fyrir gamla Ísland.

Náhirðin sem setti Ísland á hausinn nýtur ævikvöldsins ábyrgðarlaust á fínum eftirlaunum greiddum úr ríkissjóði.  

Landsliðið í kúlu vermir bekkina á alþingi og bönkum eftir að hafa afskrifað skuldirnar af sjálfu sér með afrakstur kúlulánanna í verðtryggðu skjóli ríkisins.  

Helferðarhyskið sér um þjóðnýta ærlegt fólk til að borga brúsann.

Sannkölluð "happa þrenna".


mbl.is Sakfelldur fyrir eitt ákæruatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláar myndir á sunnudagskvöldi.


Hver er maðurinn?

Fyrir fjórum árum vissi hann allt um ESB, en eftir þriggja ára rannsóknir veit hann ekki neitt.  Eða er þetta kannski fugl dagsins?


mbl.is Betra að hætta en setja málið á ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláar myndir á sunnudagskvöldi.


Bláar myndir á sunnudagskvöldi.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband