4.3.2011 | 23:13
Icesave er verkfæri djöfulsins.
Það sem ekki hefur komið fram er Benedikt XVI páfi tjáði Ólafi Ragnari Grímssyni forseta vorum þegar icesave málið bar á góma, að hann hefði það eftir áreiðanlegum heimildum að icevesve123 væri verkfæri Djöfulsins.
Þetta hafa reyndar flestir Íslendingar vitað í hjarta sínu allt frá kristnitöku og jafnvel frá þeir að þeir yfirgáfu ríki Haralds hárfagra, þrátt fyrir að allir helstu lögspekingar landsins séu komnir á launskrá hjá Mammon við að tala fyrir icesave.
Það myndi ekki sakaða að fá þessi ummæli staðfest hjá hans heilagleika páfanum sjálfum. En vegna viðkvæmrar stöðu hans heilagleika munu ummælin ekki verða eftir honum höfð á opinberum vettvangi.
![]() |
Forsetinn á fréttastöð páfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.3.2011 | 22:36
Evran er gjaldeyrishöft.
![]() |
Segir krónuna kalla á gjaldeyrishöft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.3.2011 | 10:16
Ekki varanleg lausn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.3.2011 | 07:19
Maðurinn með hattinn.
Ef ég á að segja alveg eins og er þá líður mér eins og ég hafi verið rændur. Eignarhluturinn í húsnæði heimilisins er horfinn, fyrirtækið mitt er í andarslitrunum og ég er án atvinnu. Bréfin streyma inn frá Motus, inmomentum og lögreglan ber til mín boðanir á kvöldin. Nú er ég í fyrsta skipti á ævinni orðin eins og;
Maðurinn með hattinn
stendur upp við staur,
á að borga skattinn,
en á ekki aur.
Mér líður eins og ég hafi verið rændur undir handleiðslu skipulegra glæpasamtaka, sem í daglegu tali kallast ríkið.
![]() |
Lögregla fái aukið fjármagn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)