5.5.2019 | 06:07
Eru Bakkabræður komnir á Þjóðminjasafnið?
Það eru til margar sögur af Bakkabræðrum, en sennilega er sú lífseigasta um sólskinið. Halldór Laxness taldi að birtuskilyrðin í húsum þeirra hefðu lítið lagast þó svo það opinbera hefði sett reglugerð um glugga á þeirra tíð. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra sagði að þó svo Bakkabræður hefðu stundað mögnuð heimskupör hefði þeim samt aldrei dottið í hug að setja flöt þök á húsin á Bakka. Nóbelskáldið og menntamálráðherrann voru nokkuð samstíga með það að sálin væri heillavænlegri en reglugerðin þegar kæmi að húsum.
"Það er þessi fegurð sálarinnar sem á Íslandi hefur átt heima í torfbyggingarlistinni fornu, einhverri sérstæðustu og merkilegustu náttúrubyggingarlist heimsins." sagði skáldið árið 1939 í ritinu Húsakostur og híbýlaprýði. Síðan þegar torfbærinn leið undir lok eftir 1000 ára þjónustu við þjóðina taldi skáldið að Íslendingar hefðu ekki fundið sálina í neinni stílmenningu þegar byggingalist væri annarsvegar, heldur hafi hún einkennst af handahófskenndum eftiröpunum, flumbrulegum stælingum og skynlausum afbökunum.
Þessar áratuga gömlu hugrenningar þeirra 20. aldar mannanna má sjálfsagt allar til sannsvegar færa. Einnig er hægt að færa rök fyrir því að við nálgumst nú óðfluga ókosti torfbæanna á ný, rakan og mygluna, við byggingu sálarlausra eftirapana byggðum í flumbrugangi með afbökuðum stæl. Þar sem myglan er borin inn samkvæmt ströngustu reglugerðum ásamt innfluttum byggingarefnum. Hvernig sem á því stendur þá virðast handabökin mislagðari eftir því sem reglurnar verða strangari og langt aðkominn efniviðurinn CE vottaðri.
Undanfarin ár hefur verið árviss skoðunarferð að vori út í byggingalist náttúrunnar. En þá hef ég farið að Galtastöðum-fram í Hróarstungu. Aksturinn þangað tekur mig ekki nema um 20 mínútur og er alltaf þess virði. Fyrst þegar ég fór í Galtarstaði fyrir nokkrum árum þá tók ég eftir því að það virtust standa yfir endurbætur á bænum og fór ég því þangað fljótlega aftur til að vita hvernig þeim miðaði. Nú hafa þessar skoðunarferðir staðið á fjórða ár og allt er við það sama, nema tímans tönn.
Galtastaða bærinn er sagður í vörslu Þjóðminjasafnsins frá 1976 og hafi þá þótt merkilegur m.a. vegna þess að þar er fjósbaðstofa. Aðeins ein önnur var til á öllu landinu, og áhugavert væri fyrir nútíma fólk að geta skoðað þannig mannabústað. Hinn merki hleðslumeistari Sveinn Einarsson (1909-1994) frá Hrjót endurbyggði suma torfveggina að Galtarstöðum skömmu eftir að bærinn komst í vörslu Þjóðminjasafnsins en síðan eru liðin mörg ár,,, - áratugir.
Þess vegna var svo ánægjulegt að sjá það fyrir nokkrum árum að framkvæmdir voru við Galtarstaði, kannski kæmi að því aftur að hægt væri að fá að skoða bæinn að utan og innan. Reyndar ber bærinn byggingasögu landsins vitni á margan hátt því við hann var byggt íbúðarhús úr asbesti árið 1960, með tíðarandans flata skúrþaki. Fyrir fjórum árum frétti ég að framkvæmdirnar hefðu verið á vegum Þjóðminjasafnsins og staðið þá í sambandi við asbest húsið með flata þakinu, sem stæði til að gera upp og koma upp í leiðinni loftræstikerfi fyrir gamla bæinn.
Nú í vetur frétti ég það á förnum vegi að talsverðir fjármunir hefðu komið í Galtastaðabæinn á síðasta ári. Hefðu féð verið notaðir í vegagerð og það að koma fyrir pípuhliði. Hvernig mönnum hefur dottið í hug pípuhlið er ekki gott að átta sig á en sennilegra er að einhver hafi drepið niður fæti í rolluskít, frekar en að eitthvað hafi farið úrskeiðis á milli eyrnanna.
Pípuhliðið stendur eitt og sér langt úti í mýri og því spurning hvað miklar fjárveitingar þarf í girðingar áður en hægt verður að fara í að sinna merkilegustu náttúrubyggingalist heimsins.
Hin árlega vorferð í Galtarstaði var farin í gær og eru myndir úr henni hér fyrir neðan.
Upp við þilið á bæjardyrunum hafa staðið aflóga gluggar úr asbestviðbyggingunni s.l. fjögur ár
Fjósbaðstofan: beljurnar voru hafðar niðri og fólkið var upp í ylnum frá beljunum
Að baka til má sjá að einn bær er heil þyrping af húsum, sem líta út eins og grænir hólar að sumarlagi, þarna er m.a. hlóðaeldhús í einum hól, búr í öðrum, heylaða, skemma osfv., alls 7 hús
Hús og híbýli | Breytt s.d. kl. 07:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)