Passið ykkur á skepnunni

Nú hefur opinberast sá tími að ráðamenn landsins eiga samtal við þjóðina um teiknaðar sviðsmyndir upp úr spálíkani, sem þarf ekki meðalgreindan mann til að átta sig á að búið er til í Langtíburtkistan. Spálíkan þetta flýtur í gegnum stjórnsýsluna en er soðið saman af allsendis ókunnum, -en samt sem áður allra færustu sérfræðingum veraldar.

Almenningi er smá saman gerð grein fyrir veruleika sviðsmyndanna af lýðræðislega kjörnu fulltrúum, sem reglulega hafa birst og borið fram boðskapinn í mýflugumynd flissandi fábjána, Panama prinsa og rykaðra raðlygara með gagnsætt plexigler í ræðupúltunum fyrir framan sig, en bluetooth á bak við eyrað, sem hvíslar súluritum sérfræðinnar upp á vegg með fjarlægðar bláma aðgerðapakka sýndarmennskunnar úr myndvarpa.

Vonandi trúir engin til lengdar á að banvæni kínverski kvef vírusinn sé kominn til að vera, eða styður hans vegna efnahagslega eyðileggingu á almennum lífskjörum. Það eru einfaldlega ekki annað en trúarbrögð hins illa. Hvað þá að almenningur styðji í hjarta sínu framrás gervigreindar-lögreglu-ríkisins með bólusettum móttökurum fyrir smitrakningarapp sem skanna má á öllum stöðum jarðkúlunnar.

Þó svo að margir hafi glapist á því í eirðaleysinu undanfarið að niðurhala appinu í snjall símann sinn við að hlýða á Víði. Þá er þetta sama spálíkanið og var teiknuð upp úr sú sviðsmynd, sem setti fólk í útgöngubann vikum saman víða um veröld. Skipti þá engu hvort fólk hafði aðgang að góðum garði eða einungis heilsuspillandi, glugga- og svalalausa kytru. Allt að fyrirmynd mannréttindavaktar kommúnistanna í Kína.

Við lifum á tímum þar sem trúarbrögðin hopa í sínum hroka með því að læsa dyrum sínum um páska og kærleikann niðri á tveim metrunum, þegar rödd samúðarinnar er orðin eins og hvert annað orðagjálfur í fjarfundarbúnaði.

Við lifum á tímum þar sem 1.maí var aflýst í mesta fjöldaatvinnuleysi lýðveldissögunnar í þögn lífskjarafólks verkalýðsins. Þar höfðu formenn vinnandi stétta glapist á að þenja bringuna í "klúbbi" svokallaðra "aðila" vinnumarkaðarins fljótandi að feigðarósi á skíðum um Alpana ofan í margfaldra lágmarkslauna sóttkví, -umlandi "ég hlýði Víði".

Þetta er sá tími sem ritningin hefur spáð fyrir um. Nú glittir í stund dýrsins sem kastaði marki sínu á mannfólkið, þess er sagt var auðkenna sig með tölunum 666, og kemur því til leiðar að engin kemst lönd né strönd án merkis þess. Þetta er sú viðsjá þar sem við gætum öll verið krossfest af stjórnmálamönnum, auðrónum og trúarbragðarefum, -ef við sofnum á verðinum.

Við erum nú um það bil að dotta í „draumi„ eigin vanmáttar, komin í erfiðleika með hverja stund við að lifa af án aðstoðar yfirvaldanna. Við horfum, dragandi ýsur, á ísaldarleirinn vella úr stundaglasi fjölmiðlanna, og flest virðumst við ekki einu sinni hafa meðvitund til að greina hvort við erum talin lífs eða liðin án fyrirmæla úr beinni.

Lífsrétturinn hefur verið seldur yfir til grimmdar og hugaróra peningaaflanna. Lögfest hefur verið slátrun hinna hinna ófæddu og staðfest innlokun þeirra öldnu þar sem þeim er neitað um að kveðja sína nánustu með sæmd. Öndunarvélar og andlitsgrímur eru „mannréttinda“ tákn þessa tíma. Allir skulu eiga „rétt“ á því að verða ekki varir við andardrátt náungans þar til þeir geispa golunni í öndunarvél.

Við erum fyrir löngu komin framhjá þeim stað þar sem hægt var að spyrna við fótum með því einu að benda á að keisarinn er ekki í neinum fötum. Vestræna veikindavædda  heilbrigðismódelið var upp vakið fyrir meira en öld síðan. Veikinda vædda spálíkanið er grundvallað á samsuðu ranghugmynda og vúddú vísinda, þar sem peningar og talnabókhald gilda umfram samúð og heilbrygði. Við erum samt ennþá í grunninn hinn óendanlegi möguleiki þegar við fæðumst til jarðlífsins, -og verðum áfram.

Það er að segja ef við höfum ekki alla meðvitundina á hinni heilögu tölu "dýrsins", og látum vera að draga fólk í dilka meðvirkninnar. Okkur hefur verið kennt með örvandi innrætingu allt frá blautu barnsbeini að trúa því að við séum bæði aðskildir „einstaklingar“ og á sama tíma samtengd á heimskringlu „glóbalsins“ gegnum misstórar einingar s.s. fjölskyldu, þjóðerni, kynþætti, samfélagsstétt, stjórnmálaskoðanir að ógleymdu fjölskrúðugu kynferðinu.

Nú sitjum við uppi með sameiginlega veiru sem hrjáir okkur mest andlega og leggst undarlega mismunandi á fólk líkamlega. Flestir geta verið fárveikir og smitandi án þess að vita nokkurtíma af því, -að okkur er sagt.

Þetta er uppskrift hinnar fullkomnu ringulreiðar, sem er vörðuð hillingum hinna fullkomnu sjónhverfinga, tilvalinni fyrir alræðis gandreið auðsins, -og draumsins um upprisu hins rafræna Babelsturns.

Þegar draugur hefur verið upp vakinn er ekki hægt átta sig á því hvað hann gerir. Um það má lesa í þjóðsögum fyrri alda. Hann getur allt eins átt það til að gera allt annað en honum var ætlað, jafnvel snúist gegn þeim sem hann upp vakti, svo lengi sem hann vekur ekki ótta þeirra sem hann var settur til höfuðs. En magnaðir uppvakningar eiga það samt sem áður til að vera mikil virkir í áratugi.

Nú hefur verið magnaður upp pestardraugur, fyrir honum ber að vernda þá öldruðu, einnig þá sem eru með „undirliggjandi“ sjúkdóma í veikinda væddu heilbrigðiskerfi heimsins, sem uppvakið var líkt og draugur af auðrónum fyrir meira en hundrað árum síðan í líki læknisfræði til þjónustu fyrir lyfjaiðnaðinn og krónu á móti krónu sjálftökunnar.

Lyfjadraugurinn hefur alið á þeirri ímynd, svo til óáreittur, að það eina sem er öruggt þegar við fæðumst sé óeðlilegt. Heilbrigðisstaðall heimsins hefur gert sjálfa upplifunina af dauðanum að „tabúi“. En viljum við búa í heimi þar sem meir að segja táfýla og gillinæð eru orðin að undirliggjandi sjúkdómum, sem gætu þá og þegar stökkbreyst í smitandi drepsótt innan spákúlu skepnunnar?


Bloggfærslur 4. maí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband