6.3.2021 | 17:20
Grímulaus lögbrot
Mér varð á að fara inn í verslun núna í vikunni en í þær fer ég ekki ótilneyddur. Inn í þessa verslun hef ég þó oft þurft fara í gegnum tíðina vegna vinnu og hef þá komið þar inn fyrir dyrnar eins og ég er klæddur, enda yfirleitt fámennt og góðmennt í búðinni.
Á meðan ég beið eftir afgreiðslu, -aleinn- því sú sem var við afgreiðslu þurfti að bregða sér inn á lager, -komu inn eldri hjón, -eldri en ég allavega. Grímuklædd konan pataði grímu í átt að manninum. Hann leit vongóður yfir til mín og spurði -"er ekki grímuskilda hérna" - ég svaraði -"ég er allavega ekki með grímu".
Þá hvessti sú gamla á mig augun yfir grímuna og sagði -"þú ert þá lögbrjótur". Ég játti því, en maldaði svo í móinn með að -"þetta væru reyndar ólög". "Það verður sjálfasagt seint hægt að gera öllum til geðs" -eða eitthvað í þá áttina tautaði sú gamla. Sá gamli tók við grímunni en þrjóskaðist við að setja hana upp og hóf grímulaus lögbrot í versluninni.
En ég snautaði út eftir afgreiðslu án þess að segja eitt aukatekið orð til viðbótar, enda bæði lögreglustöð og dómsalur hinu megin við götuna, og tíðarandinn orðinn þannig að glæpamennirnir ganga um grímulausir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.3.2021 | 09:22
Þegar fábjánar fá frábærar hugmyndir
Íslandspóstur er eitt skýrasta dæmið um það þegar opinber þjónusta snýst upp í að hámenntað fólk tekur sig til við að verja tilveru sína til tekna frá því opinbera.
Þjónustu, sem átti að gera landsmönnum jafnt undir höfði burt séð frá búsetu, er nú íhugað að afleggja svo ekki þurfi að segja upp silkihúfunum.
En það verður áfram hægt að hagræða með því að segja upp ómenntuðu póstburðarfólki og fábjánar með fimm háskólagráður halda vinnunni.
![]() |
Íhuga að hætta útburði bréfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)