1.6.2021 | 16:46
Paradísarfuglinn
Í dögun hvarf hún innum aðrar dyr
mig óraði ekki fyrir því sem skeði
en fyrren varði fyrirgefiði
mér feimnina hún gjörðist veik á geði
hún gjörðist veik
hún gjörðist veik á geði.
Þeir gáfu henni truntusól og tungl
og tróðu hana út með spesstöðluðu smæli
en hann sem vissi allt var ómálga
afsakiði meðan að ég æli
meðanað ég,
meðanað ég æli
en paradísarfuglinn fló og gelti
mér finnst því líkast sem ég sé í svelti.
Loks kvað hún uppúr innri mann með sinn
og æpti: ég vil heim í hass og sýru og basa
þeir glottu útað eyrunum í spíss
og önsuðu: þú hefur gervinýru og vasa
þú hefur nefnilega fengið
risagervinýru með vasa
og paradísarfuglinn fló og gelti
ég fíla mig eins og ég sé í svelti.
Höfundur Megas
![]() |
Þykir bréfið til Lilju stórfurðulegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)