27.2.2010 | 17:47
Pása / The Show Must Go On.
Það er að verða eitt og hálft ár síðan að ég opnaði þessa bloggsíðu og hóf að setja fram mínar skoðanir á málefnum dagsins oft tengt mbl fréttum. Eins og sannur karlmaður þá get ég hvorki straujað eða hugsað um meira en eitt í einu. Það að tyggja tyggjó og labba samtímis er jafnvel of flókið fyrir mig. Því hef ég ákveðið að taka pásu frá þessum bloggskrifum allavega næstu sex mánuðina. Hugurinn stefnir annað og ég vil ekki láta fréttir dagsins trufla þá vegferð. Það að setja sig inn í málefni frétta tekur einfaldlega of mikla athygli frá öðrum áhugamálum.
Á þessari síðu hef ég m.a. leitast við að koma að annarri hlið á málefnunum fréttanna þar sem sérviska mín hefur verið látin óspart í ljós. Í mörgum athugasemdum hafa komið fram upplýsingar og ábendingar sem hafa gefið mér nýja sýn á málefnin, þó svo að ég hafi ekki viðurkennt það umbúðalaust. Öll samskipti á þessari síðu hafa verið ánægjuleg og aukið mér víðsýni.
Hér til vinstri á síðunnar má finna "myndaalbúm", "færsluflokkar" og "mínir tenglar" þar hef ég sett inn það sem hefur verið mér hugleikið undanfarin ár, þar má fá innsýn á hverju sjálfsánægja mín og þrjóska hefur byggst.
Mínir tenglar eru;
Sólhóll sælureitur við sjóinn. Síða sem býður til útleigu orlofshús.
Múr, skraut og myndlist er síða af múrverki og myndlist sem ég hef unnið að undan farin ár.
Múrarinn er betri síðan mín á mbl blogginu, hefur að geyma glósur um jákvæða hugsun. Á þá síðu mun ég væntanlega bæta við efni á næstu mánuðum.
Falið vald er síða Jóhannesar Björns Lúðvíkssonar sem gaf út bókina Falið vald 1979, sem ég las þá um tvítugt og hefur haft mikil áhrif á mína heimsmynd. Jóhannes sem er hagfræðingur, hefur reynst sannspár í gegnum tíðina þó svo að upplýsingar hans séu ekki þær sem haldið er að okkur í gegnum fjölmiðla.
Kryppan, annað sjónarhorn er ný íslensk fréttasíða þar sem önnur sýn er gefin á málefni dagsins. Þessi síða er glæ ný, vonandi nær hún að dafna. Það er í það minnsta húmor í fréttunum þar.
The Crowhouse er síða Ástralans Maxwell Igan sem hefur margt forvitnilegt efni að geima.
The Awakening er mynd Maxwell Igan þar sem almenningur er vakni til vitundar um það sem er að gerst á þeim tímum sem við lifum.
Beyond The Cutting edge er fyrirlestu David Icke í Brixton Agademy þar er öðruvísi sýn gefin á veruleikann og bent á að það erum við sem ráðum okkar veruleika.
Zeitgeist The Movie er frábær mynd til að komast að á hverju valdakerfi samfélagsins byggir, hvernig fjármálakerfið virkar. Það mun enginn líta peninga sömu augum eftir að hafa horft á þessa mynd.
Zeitgeist Addendum er mynd um upphaf og endir fjármálkerfis okkar tíma, auk þess að gefa innsýn í þá framtíð allsnægta sem framundan er.
Þeir eru spennandi tímarnir sem við lifum. Heimurinn sýnist útblásinn og spilltur með öllum sýnum launhelgu leyndarmálum. Leyndarmálum sem nú er sópað undan teppinu, dregin fram úr skúmaskotunum þar til þau liggja fyrir almannasjónum. Á þessum tímum þegar lögregla ætti að standa í fjöldahandtökum á þeim sem fara með valdið, hef ég reynt að láta ljós mitt skína hér á þessari síðu.
Lög verða ekki betri þó þau séu sett samkvæmt leikreglum lýðræðis. Ef þau eru setta af siðblyndum einstaklingum sem hafa tvöfalt siðgæði til að bera, eitt sem er í boði á fjögurra ára fresti fyrir almenning og hitt sem þjónar valdinu.
En hver eru þau lög sem ber að virða? Þau getur hver manneskja fundið í hjarta sínu. Öll höfum við leiðsögukerfi hjartans sem segir okkur hvað er rétt og hvað er rangt. Ef við efumst er gott að grípa til gullnu reglunnar "Allt sem þú vilt, að aðrir menn geri þér, það skalt þú þeim gera". Því eins og meistarinn sagði á þeirri reglu hvílir lögmálið.
Ég vil þakka öllum þeim sem haf litið hérna inn til að lesa þessi sjálfumglöðu skrif. En nú er mál að linni "the show must go on".
Athugasemdir
eg a eftir ad sakna tinum blobbskrifum tad er venjulega tad firsta sem eg geri tegar eg fer a faetur er ad skoda siduna tina . en eg skil tig alveg rosalega vel , ma eg radlegja ter ad slokva lika a sjonvarpi og utvarpi skoda ekki mbl eda visi i 6 manudi og tu munt verda miklu anaegdari og bara lida miklu betur . tad er ekki got firir lidan folks ad vera endalaust haft ad fiblum
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 28.2.2010 kl. 00:41
Þakka þér fyrir Helgi. Það er akkúrat það sem þú tilgreinir sem gerir það að verkum að það er eins og ég geti ekki tuggið tyggjó né labbað samtímis. Fjölmiðlar halda að okkur brenglaðri mynd kreppu og skorts. Heimurinn býður allsnægtir eins og við vitum innst inni. Sammála þér, ég mun reyna að sniðanga fjölmiðlana þeir eru ekki að vísa veginn til allsnægtanna.
Þegar hrunið varð og allt rótið í kringum það lagði ég til hliðar hluta af áætlun sem ég hef haft að leiðarljósi til margra ára. Nú ætla ég að einbeita mér að því sem mig dreymir um að gera. Fyrir það fyrsta hef lengi ætlað að koma mér að verki við að mála en bloggskrifin hafa tekið þann tíma frá mér, nú fær sú skemmtilega sköpun sem myndlist er, þann tíma sem fór í bloggskrif um fréttir.
Ég mun halda áfram að skrifa hugleiðingar á betri bloggsíðuna mína á mbl.. Þar er ekki boðið upp á athugasemdir. En við skiptumst á hugmyndum um þau málefni eftir öðrum leiðum eins og við höfum gert hingað til.
Magnús Sigurðsson, 28.2.2010 kl. 08:59
Gangi þér allt í haginn Magnús - þín verður saknað héðan frá "amstrinu"
heyri svo kanski frá þér einhvern sólríkann dag
Jón Snæbjörnsson, 8.3.2010 kl. 08:26
Takk fyrir það Jón. Ég er ekki frá því að það séu sólríkir dagar framundan, alla vega auka atburðir helgarinnar verulega á þær vonir.
Magnús Sigurðsson, 8.3.2010 kl. 09:38
Ég þakka áhugaverð samskipti, eitt af fáum bloggum sem ég kíki reglulega á hér á mbl.is. Skil þig vel, hef sjálfur minnkað veru mína hér stórlega og æ færri færslur líta dagsins ljós...enda nóg af öðrum hnöppum að hneppa
SeeingRed, 8.3.2010 kl. 13:12
Takk fyrir Seeing Red. Þú hefur bent mér á mörg áhugaverð sjónarhorn með athugasemdum þínum og linkum. Það er fólk eins og þú sem hefur aukið mér víðsýni. Það hefur verið ómetanlegt að fá ábendingar um efni sem ekki flokkast "main stream media", þínar ábendingar hef ég kynnt mér vel og þær hafa sannarlega verið þess virði. Haltu áfram að miðla upplýsingum, heimurinn mun verða betri.
Magnús Sigurðsson, 8.3.2010 kl. 15:42
Takk sömuleiðis, mun eflaust belgja mig eitthvað áfram, en mestur frítíminn fer í tónlistarprojektið mitt Inside Bilderberg, en þar reyni ég að ýta aðeins við fólki þó að enginn sé textinn, nota andrúmsloft og stíganda í tilraun til að vekja til umhugsunar, mun þakklátara en bloggskrif og afar gefandi vegna stöðugs og jákvæðs feedbacks. Vel á minnst, græjaði mig einmitt upp í Rín á síðasta ári og var afgreiddur af þér, fékk mér rafmagnsgítar og midi-hljómborð á raðgreiðslum, besta fjárfesting sem ég hef gert á æfinni og finn mig vel í þessu nýtilfundna áhugamáli þó kominn sé af léttasta skeiði .
SeeingRed, 8.3.2010 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.