Veit Castro sínu viti?

Allir sem hafa kynnt sér atburðina 11.09.2001 vita að það eru tvær sögur á kreiki um orsakir þessara atburða.  Sú opinbera er útgáfa Bush stjórnarinnar um að Muslimskir öfgamenn séu ábyrgir fyrir þessum hryðjuverkum.  þessi útgáfa hefur alla tíð verið studd rökum ríkisstjórna sem hafa farið með stríð á hendur öðrum þjóðum með þeim afleiðingum að hryðjuverkið sjálft 9-11 bliknar í samanburði við þau voðaverk sem síðan hafa verið unnin.

Hin útgáfan af orsökum þessara atburða er sú að vantað hafi ástæðu sem alamenningsálitið gæti samþykkt til að ráðist á þann heimshluta sem Afganistan og Írak tilheyra.  Því hafi hryðjuverkin 09.11.2001 sem gerð voru í nafni Osama bin Laden og al-Qaida í raun verið gerð af voldugum öflum innan hins viðurkennda stjórnkerfis.   

Það einkennilega er að að opinbera útgáfan virðist vera það eina sem vestrænir fjölmiðlar eru tilbúnir til að fjalla um, jafnvel þó margir meinbugir séu á þeirri útgáfu og sýnt hafi verið fram á að margt í þeirra atburðarás fáist trauðla staðist.  Frekar en að leggjast í rannsóknarblaðamennsku hafa "mainstream" fjölmiðlar heimsins kosið að flokka allt undir "samsæriskenningar" sem ekki fylgir hinum opinbera sannleika.

 


mbl.is Castro telur Bin Laden og Bush í samvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Enginn vill verða tekinn af lífi eða settur í ævilangt fangelsi og því er skiljanlega erfitt að ræða opinberu ævintýrin um hollywoodsjóið 11. sept. 2001. Hórur á fjölmiðlaruslveitum eru á flótta undan eigin lygum varðandi hrynjandi fjármálaskím og vitleysu um galdrakalla í himninum og annað stórkostlegt svindl og allt mun þetta hrynja með braki og brestum.

Baldur Fjölnisson, 28.8.2010 kl. 22:08

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það eru vafalaust sannleikskorn í þessu hjá þér Baldur.  Það þarf ekki annað en að sjá hvað hvar sá er geymdur sem kom gögnunum um ósóman í Wikiliks.  Umræðan er um hvort það sé rétt að taka hann af lífi fyrir að hafa framið morð í ósýnilegri framtíð, ekki fer mikið fyrir efasemdum um að gögnin eru sönn.  Hollywoodsjóið heldur eitthvað áfram áður en fjölmiðlarnir átta sig á eigin lygum.

Magnús Sigurðsson, 28.8.2010 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband