17.12.2010 | 09:44
Þarf Breta til?
Einu sinni var það svo að það nægði að Bretar réðust gegn hagsmunum Íslendinga til að stjórnmálamenn stæðu saman. Það var í þá gömlu góðu daga þegar landhelgin fór úr 3 mílum í 200.
Nú er öldin önnur ríkisstjórnin klauf þjóðina með ESB aðildarumsókn, þar sem VG gekk á bak orða sinna við kjósendur. Eins taka stjórnmálamenn í mál að greiða ólögvarða icesave kröfur í andstöðu við sína þjóð.
Þarf Breta til að benda á um hvað málið snýst?
Hefnd fyrir Evrópumálin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Takk Magnús! Þetta þyrfti að koma í kvöldfréttum!!! En NEI..... RUV og Stöð2 fela svona frábærar viðvaranir og halda áfram að mata okkur á einræðisherrarugli
anna (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 11:21
þetta er þörf ábending
og Anna ég held að við værum betur sett með einræðisherra sem hefur kjark heldur en þessar bleyður sem lút í gras fyrir AGS
hvað sagði annars Steingrímur AGS áður en hann komst til valda
Magnús Ágústsson, 17.12.2010 kl. 14:58
Nákvæmlega og frettaflutningur og UMRÆÐUR FJÖLMIÐLA á lægsta plani ......ÞAR RIKIR " EINRÆÐIS RUGL " og þar á enginn að komast upp með að hafa sjalfstæðar skoðanir ................
ransy (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 15:02
Anna; nei svona er ekki haft í frammi í stóru fjölmiðlunum á Íslandi í dag. En það eru nú þegar um 16.000 manns búin að skora á forsetan að hafna icesave 3 á Facebook
Magnús Sigurðsson, 17.12.2010 kl. 15:16
Nafni; við sitjum uppi með bleyður sem beita fjölmiðlunum á einræðislegan hátt. Fáum forsetan til að stoppa icesave ruglið aftur með því að fara á Facebook
Magnús Sigurðsson, 17.12.2010 kl. 15:20
Ransy; Sammála það eru bleyðurnar sem ráða á Íslandi Facebook
Magnús Sigurðsson, 17.12.2010 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.