11.4.2011 | 06:34
Hættið þessu röfli og farið í vinnuna.
Þetta eru öfugmæli hjá Gylfa, óvissunni hefur að hluta verið eytt. Neyðarlögin eru fyrir dómstólum því verður óvissa á komandi misserum um hvernig forgangskröfum í þrotabú Landsbankans verður háttað sem kemur NEI við icesave ekkert við. Ef neyðarlögin halda og skilanefndin selur Iceland á þá upphæð sem haldið var fram seinnipart síðustu viku verðu ekki vandamál að gera upp við Hollendinga og Breta.
Ekkert af ofantöldu hefði átt að setja strik í reikning krafna ASÍ fyrir launafólk. Það er fyrir löngu komið að því að Gylfi og félagar fari að vinna fyrir sína umbjóðendur og leggi ESB pólitíkina á hilluna. Hvernig væri að standa við rúmlega 10% kauphækkun á næstu þremur árum og 200 þús kr lágamarkslaun til að byrja með, eins og látið var í veðri vaka fyrir helgi. það er engin ofrausn miðað við það sem á undan er gengið.
Óvissan meiri en áður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Thad er kominn timi a hallarbyltingu tharna og koma grasrotinni inn folk sem vinnur fyrir verkalidinn eins og formanninn a Akranesi og a husavik sjalfsagt er lika fleirri heidalegir til en veit ekki um adra
Magnús Ágústsson, 11.4.2011 kl. 06:46
Sammála þér nafni, fuglarnir í ASÍ eiga bara að fara út í pólitík á vegum Samfylkingarinnar og láta þá um að berjast fyrir kjörum launafólks sem til þess eru færir.
Magnús Sigurðsson, 11.4.2011 kl. 06:54
Það er nöturlegt að heildarsamtök launafólks séu afkimi í samfylkingunni en ekki óháð samtök sem berjast fyrir hagsmunum félaga sinna.
Hreinn Sigurðsson, 11.4.2011 kl. 07:38
Hreinn, það er þyngra en tárum taki, enda hefur launafólk ekki átt aðra málsvara en utangarðs síðan kreppan skall á.
Magnús Sigurðsson, 11.4.2011 kl. 07:43
sammála þér Magnús - eins og Hreinn þá segji ég;
Það er nöturlegt að heildarsamtök launafólks séu afkimi í samfylkingunni en ekki óháð samtök sem berjast fyrir hagsmunum félaga sinna.
Jón Snæbjörnsson, 11.4.2011 kl. 08:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.