15.4.2011 | 07:13
Gjaldeyrishöftin í boði Samfylkingarinnar.
Guðmundur Gunnarsson formaður rafiðnaðarsambandsins getur ekki stillt sig um að gera að því skóna að flótti félagsmanna úr landi tengist því að á Íslandi sé ekki brennandi áhugi fyrir ESB aðild auk gengishruns og gjaldeyrishafta. Jafnvel þó flótti félagsmannanna sé alls ekki í atvinnuleysið í ESB, heldur lands sem stendur utan við sambandið.
Hann sleppir því hins vegar að geta þess að Samfylkingin var á hrunavaktinni sem setti á gjaldeyrishöftin og hafði enga tilburði til að sækja um ESB aðild þegar hún komst í ríkisstjórn 2007 og tók við góðu búi ríkissjóðs.
Þúsund rafiðnaðarmenn farnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jamm...getur hann hinsvegar útskýrt það af hverju megnið af þessu fólki flýr til Noregs en ekki í sæluríki ESB þjóða? Tengirnar og réttlætingarnar verða súrrealískari með hverjum degi í undanhaldi landráðamannanna.
Bendi þér annars á að glugga í umræður og tengla sem komu í gær á þessu bloggi. Þar finnst mér endanlega verið búið að fletta ofan af þessu plotti og skil ekki af hverju þingið logar ekki stafnanna á milli vegna þessa.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.4.2011 kl. 07:33
Þakka þér fyrir ábendinguna Jón Steinar, þessi skýrsla verður ekki til að auka fylgið við ESB aðild. Ég hef trú á að þingið logi ekki stafnanna á milli af sömu ástæðu og tillagan um þingrof fékk lítinn hljómgurnn, þingmenn halda ennþá að þeir geti farið á svig við þjóðina og eru hræddir við að missa vel launaða vinnu. Þetta á við þingmenn allra flokka.
Magnús Sigurðsson, 15.4.2011 kl. 07:51
Smá innlegg í umræðuna, og svo er Guðmundur að semja um kaup og kjör fyrir sína félagsmenn, hvað skyldi koma út úr því bulli, samningar hafa verið lausir í 4 mánuði.
Nei við ESB og burt með ríkisstjórnina.
JRJ, 15.4.2011 kl. 08:10
Ef þú gluggar í þetta Magnús, þá sérðu hvaða slagkraft þetta hefur. Stjórnlagaþing er sett til að ná í gegn heimild til að framselja fullveldið. Fyrningarleiðin er liður í því að ná fullu valdi yfir arði og yfirráðum fiskveiða til þess aðeins að framselja það svo aftur til ESB. Þetta kemur fram þarna svart á hvítu. Hvað gæti verið meira vert umræðu en þetta, spyr ég.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.4.2011 kl. 08:16
Magnús Sigurðsson, 15.4.2011 kl. 08:21
Sammála þér Jón Steinar, stjórnlagaþingið snýst um að vana fullveldið svo hægt sé að ganga inn í ESB, fyrningaleið Samfylkingarinnar mun ekki skila fiskimiðunum í hendur þjóðarinnar. Þetta er blekkingaleikur, þess vegna varð maður hugsandi þegar í ljós kom hvernig alþingismenn greiddu atkvæði um þingrofstillöguna. Það setti suma þeirra í nýtt ljós.
Magnús Sigurðsson, 15.4.2011 kl. 08:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.