Fátt er svo með öllu illt.

 

Þeir eru nú alltaf að misskilja Íslensk efnahagsmál blessaðir sérfræðingarnir í útlöndum  Nú þykist Tom Asprey sérfræðingur í markaðsviðskiptum hafa komist að því að Íslenska krónan hafi verið ofmetnasti gjaldmiðill í heimi á árunum 2004-2007, með því að bera hana saman við Big Mac vísitöluna.

Þarna snýr hann öllu á hvolf, afrek krónunnar eru ótvíræð það hefur engum gjaldmiðli tekist að koma McDonald á kaldan klakann, þeim einokunar sinnaða fjanda.  En hann starfar undir einkaleifum þar sem sá sem leyfið hlýtur ber skylda til að versla við ákveðna byrgja og þannig tókst Donald gamla að útiloka íslenska framleiðslu í búllu sínum á Íslandi.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.  Við losnuðum við Big Mac úr landi og Mc Donalds óþverrann allan.  Geri aðrir gjaldmiðlar betur.


mbl.is Ofmetnasti gjaldmiðillinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ég held að þú ert að misskilja fréttina.

Sleggjan og Hvellurinn, 15.8.2011 kl. 22:53

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Prófaðu að lesa fréttina aftur og athugaðu hvort það kviknar ljós?

Magnús Sigurðsson, 16.8.2011 kl. 04:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband