25.8.2013 | 06:26
Graham Hancock
Graham Hancock (fæddur 2 ágúst 1950) er breskur rithöfundur, fyrirlesari og blaðamaður. Hancock heldur á lofti óhefðbundnum kenningum um forna siðmenningu, út frá steinmannvirkjum s.s. píramídum ýmissa heimshluta, stjörnufræði og goðsögnum fortíðarinnar. Þessar kenningar eru með allt aðra sýn á mankynsöguna en viðurkennd er af fræðimanna samfélaginu. Hancock hefur í starfi sínu sem blaðamaður og rithöfundur ferðast til allra heimshluta í rannsóknum sínum til að fá hina stóru heildarmynd.
Við að kynna sér verk Hancocks fæst sýn á tínda menningarheima og goðsögur s.s. Atlantis, lok ísaldar, flóðin miklu sem um er getið í flestum fornum menningarheimum og sem syndaflóðið í Biblíunni. Eins hefur hann rannsakað og reynt að komast að niðurstöðu um hverskonar fyrirbæri örk Guðs hafi verið, sem um er getið í Gamla testamentinu og leitt af þeim líkur að þar hafi getað verið um að ræða geislavirkan orkugjafa sem upphaflega hafi átt heima í Egipsku píramídunum. Um þessar kenningar Hancocks má fræðast í bókunum Fingraför guðanna, Eþíópía o.f.l. og svo t.d. á youtube í myndunum Zero Point Volume 1, 2 og 3.
Hancock hefur gefið út fjölda bóka sem hafa verið þýddar á 27 tungumál og selst í yfir fimm milljónum eintaka. Rannsóknir Hancocks hafa notið lítils stuðnings á meðal fræðimanna þar sem þær draga í efa viðteknar kenningar um mankynssöguna, hafa fræðimenn viljað flokka kenningar hans sem skáldskap. Við að kynna sér verk Grahams Hancocks rennur upp fyrir flestum að ekki er allt sem sýnist varðandi sögu mankyns auk þess að hans tilgáta nær lengra aftur í tíma og hefur ólíkt meira samhengi en viðtekin vísindi auk þess að vera mikið áhugaverðari.
Í þessu myndbandi er nýlegur fyrirlestur með Graham Hancock sem gefur stutta innsýn í verk hans þar sem hann fer yfir mankynsöguna á heillandi hátt. Seinni hluti myndbandsins er er um reynslu hans af plöntum sem notaðar eru af indíánum í Amason og hafa áhrif á vitund manna.
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 08:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.