31.3.2021 | 19:22
Hvað gerir Cocoa Puffs kynslóðin nú ?
Varla verður þetta talið til Lucky Charms fyrir ESB, -eða hvað?
Skyldi hún kannski fara fram á að EES samningurinn verði tekinn upp, -eða jafnvel sagt upp?
Mér segir svo hugur að ekkert verði aðhafist. Coco Puffs kynslóðin er nefnilega sú kynslóð Íslandssögunnar sem hefur gengið hvað lengst í að afsala sér fullveldi og yfirráðarétti yfir sjálfri sér.
Cocoa Puffs og Lucky Charms af íslenskum markaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er bara að bíða þess, - að "rétta" litarefnið verði sett í allt tóbak, svo hægt verði að banna innflutning á því.
Þetta er orðið eins og á gosstöðvunum vs skíðasvæðum, - af því bara rökin og allir verða að bukka sig og beygja fyrir gáfumannagenginu.
Vá maður minn hvað við búum í sjúku samfélagi þjóða, vaðandi í fyrirhyggju sem engum tilgangi þjónar.
Benedikt V. Warén, 1.4.2021 kl. 08:58
Já sæll Pelli og takk fyrir athugasemdina. Mikið er ég sammála, og fyrirhyggjan birtist í ýmsum myndum.
Spurning hvort það er boðið grímulaust upp á Cocoa Puffs við togbraut almannavarna á gosstöðvunum.
Magnús Sigurðsson, 1.4.2021 kl. 09:21
Þessi litarefnaumræða er algjör brandari. M&M var einu sinni bannað á Íslandi (utan fríhafnarinnar) vegna litarefna. Season All kryddið var aflífað þótt litarefni þess sé það sama og í raspi og Mexíkóosti Mjólkursamsölunnar. Þetta eru svokallaðar tæknilegar viðskiptahindranir.
Geir Ágústsson, 1.4.2021 kl. 12:36
Sæll Geir og nú er Evrópusambandið búið að flokka sjálft sig að mestu með litakóða. Spurning hvernig eldgos kemur út í því sambandi.
Mér sýnist samt innlend sóttvarnayfirvöld eitthvað heykjast á eldfjallarauðu en það er spurning hvað sambandið gerir svo í málinu.
Kannski fer eins fyrir Geldingadala gosinu eins og Cocoa Puffs-inu.
Magnús Sigurðsson, 1.4.2021 kl. 13:48
Geir.
Þetta eru tæknilegar ástæður þess, að sjálfumglaðir kerfisfávitar geti haft óbærileg áhrif og "vit" fyrir sauðheimskum almúganum.
Benedikt V. Warén, 1.4.2021 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.