22.5.2021 | 06:47
Það skeður ekkert fyrr en ég kem
sagði maðurinn, sem var á leiðinni í eigin hengingu, við fylgdarmenn sína þegar þeir ráku á eftir honum því hann væri að verða of seinn. En þetta var um árið, nú eru heldur betur breyttir tímar, ekki þarf lengur að bíða eftir þeim sem á að taka af lífi.
Ef meðfylgjandi frétt væri sú eina af því það þegar computer says no væri þetta náttúrulega bara fyndið, en svo er ekki. Langt er síðan rafræna samfélagið tók upp á því að grafa fólki gröf í lifandi lífi.
Nú er svo komið að fólk með gráður hefur upphugsað allskonar rafrænar gáttir sem það varla hefur hugmynd um hvernig virka. Fólk sem varla dregur andann fyrir framan skjáinn er látið búa til app fyrir fólk sem á ekki að þurfa að gera meira en í mesta lagi segja ég bara vinn hérna, -límt við skjáinn.
Hvað er svo til ráða, annað en að fólk taki sig saman um að segja sig úr hinu rafræna samfélagi og taki upp samskipti við hvort annað með því einfaldlega að slökkva á símanum og sjónavarpinu?
![]() |
Þú ert látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Frábær saga. Ég sá þessa frétt á NRK, þar sem raunum mannsins var lýst og virkaði lýsingin eins og manngreyið hefði lent í hreinasta helvíti.
Jóhann Elíasson, 23.5.2021 kl. 17:28
Það er ábyggilega ekkert grín að lenda í þessu.Ég er ekki viss um að stjórnsýslan sé allstaðar jafn neytendavæn og í Noregi.
Ég man eftir fréttum frá öðrum löndum þar sem fólk hefur baxað við að fá sig skráð lifandi mánuðum saman, jafnvel árum.
Magnús Sigurðsson, 24.5.2021 kl. 06:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.