30.5.2021 | 10:52
Bólusetning við bílslysum á næsta leiti
Visku mannfólksins fleytir fram um leið og hún er öll að færast í tæki. Svo er komið að síðasta kynslóðin sem hefur náttúrulega heilaburði til að keyra bíl er að renna sitt skeið, eftirleiðis verða það að mestu fjarstýrð öryggisforrit og gps leiðsögutæki sem sjá um aksturinn í gegnum 5G. Auðvitað er þetta allt gert til að við getum haft hugann við eitthvað viskulegra, t.d. snjallsímann.
Þessar tækniframfarir við akstur ættu ekki að þurfa að koma nokkrum á óvart ef miðað er við hve stutt er síðan að kunnátta manna við siglingar á sjó var vædd tækjum svo ekki þyrfti að rýna í himintungl og hafstrauma. Nú er sennilega fáum orðið fært að sigla eftir fallaskiptum og stjörnum og myndu segja sem svo tækjalausir í þoku; Haah, hvað gerum við nú.
Sjálfur hef ég ekki ennþá eignast snjallúr, ekki einu sinni haft vit á að fá mér snjallsíma og keyri þar að auki um á bíl án navigation frá því á síðustu öld eins og hver annar lúser. Og kannski ekki nema von að á mér hafi bæði dunið hjartaáföll og bílslys, en það verður nú væntanlega boðið upp á fríar bólusetningar við þessu öllu saman fljótlega.
![]() |
Drukkin í sjálfkeyrandi bifreiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Magnús,


Þetta snýst ekki lengur vísindi heldur trú, þar sem að allar vísindaniðurstöður, alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar sýna fram að þessi bóluefni eru og hafa verið lífhættuleg, því er þetta bara trú á eitrið. Þrátt fyrir að þetta lið viti eins og segir reyndar í öllum læknisfræðilegum bókum, að það er nákvæmlega engin lækning í þessum eiturefnum (eða öðru nafni bóluefnum),því er þetta bara trú á eitrið. Eins og þú veist þá mátti ALLS EKKI minnast einu orði á D-vítamín, ivermectin og hydrochloride á öllum þessum líka yfir 170 fundum þríeykisins, en var einhver að segja að þetta lið hefði eitthvað hjarta- og/eða tilfinningar fyrir þessu fólki sem að var veikt heima af covid19? NEI, NEI þetta er ekki spurning um það lengur, heldur er og var aðalatrið hjá þessu liði að troða þessu voodoo taugaeitri (eða öðru nafni bóluefnum) inn á fólk.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 31.5.2021 kl. 09:32
Sæll Þorsteinn og þakka þér fyrir innlitið og myndskreytta athugasemd.
Ætli við getum ekki sæst á að vúddú-vísindi séu trúarbrögð nútímans.
Annars, þér að segja, þá er íslenska orðið vísindi æva fornt og var haft yfir kunnáttuna við að fremja seið eða galdur, svo kóvít vísindin eru alls ekki langt frá lagi í dag.
Magnús Sigurðsson, 31.5.2021 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.