22.2.2022 | 07:36
Bjarmaland
Þá hefur Pútin lagt upp í sína Bjarmalandsför til varnar lýðræðinu. Hver hefði trúað því skömmu eftir fall Sovétríkjanna að Rússland væri í þessu hlutverki. En vestur Evrópa, undir hæl ESB, komin í stöðu fyrr um Sovétríkja, -og það sem kannski verra er, öll komin undir hæl jafnaðarfasita og stríðsglæpamanna.
Íslensk stjórnvöld hafa samsamað sig við ESB í stað þess að halda friðinn með hlutleysi, sem er það eina sem Ísland gæti hugsanlega haft fram að færa. En nei, gamlir herstöðvaandstæðingar hafa marserað flissandi um víðan völl undir handleiðslu NATO og ESB stundandi stríðsglæpi. Írak og Lýbía sælla minninga.
Pútín varar við hærra matvælaverði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér um margt hér. En Hvað kemur Bjarmaland þessu við?
FORNLEIFUR, 22.2.2022 kl. 08:55
Hvað er átt við þegar talað er um Bjarmalandsför einhvers?
Um Bjarmalandsferðir má lesa í fornsögum eins og Heimskringlu, Egils sögu og Örvar Odds sögu. Bjarmaland var við Gandvík þar sem nú heitir Hvítahaf, lengst norður í óbyggðum - séð frá blómlegum landbúnaðarhéröðum Noregs. Þangað sóttu menn skinnavöru í greipar fjölkunnugra Finna (Bjarma) og er Gunnhildur kona Eiríks blóðaxar meðal annars ættuð úr slíkum leiðangri.
Menn lögðu sig í mikla hættu með Bjarmalandsferðum en urðu ríkir og frægir ef þeir komust heim aftur heilir á húfi. Það er í þessari merkingu sem talað er um Bjarmalandsför einhvers, hættuför eða verkefni þar sem menn leggja mikið undir en geta átt von á að auðgast eða eflast verulega ef vel tekst til.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=2062
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 09:07
Gott hjá þér Magnús að minna á þessa merkingu sem ásamt fleirum íslenskum er svo innihaldsrík og fer henni svo vel.
Helga Kristjánsdóttir, 22.2.2022 kl. 15:51
En er Putin-snáðinn í slíkri ferð?
FORNLEIFUR, 22.2.2022 kl. 15:51
Ég vissi vel hvar Bjarmaland var og þaðan kom móðir Geirmundar heljarskinns, sem maður einn sem vill í mál við alla telur hafa verið álíka asíska og tælensku konurnar sem stýra búi sumra manna á Íslandi á okkar dögum.
FORNLEIFUR, 22.2.2022 kl. 15:53
Þakka þér fyrir Helga, mér sýnist ekki vanþörf á að dusta rykið af merkingum gamalla íslenskra máltækja. Sá einhversstaðar að þau væru farin að falla á milli stafs og bryggju.
Ja, nú skal ég ekki segja Fornleifur, en mér skilst á þessari skilgreiningu vísindavefs háskólans, að ekki hafi verið á vísan að róa í Bjarmalandsferðum.
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 16:03
Auðvita vissi ég að þú vissir hvar hið forna Bjarmaland var Fornleifur, skárra væri það nú.
Við þurfum ekki að kýta um asísku konurnar. Mér skildist á þér síðast, að það væri endanlega búið að grafast fyrir um þær hvað fornleifafræðina varðar.
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 16:12
Heyr heyr.
Guðjón E. Hreinberg, 22.2.2022 kl. 16:41
Ég vil fá að vita meira um áhugaverð hugtök svo ég geti bullað meira. Er kominn í þurrð. Varðandi Heljarskinn, sumir telja hann hafa verið Austur-Herúla.
Guðjón E. Hreinberg, 22.2.2022 kl. 16:43
Sæll Guðjón, það er nú ekki bullinu fyrir að fara hér frekar en hjá þér.
Bjarmalandsför er hugtak þess eðlis að eitt samsett orð lýsir stórum áformum, sem gætu haft tvísýnar afleiðingar, og hefur m.a. verið notað í háðungaskyni.
Ef því er að skipta þá erum við afkomendur heljarskinns líklega allir Herúlar, -og samkvæmt Snorra er ætt okkar að rekja fyrir austan Vanakvísl í Asía var kallað Asíaland eða Asíaheimur, en það fólk var kallað Æsir, er þar byggðu, en höfuðborgina kölluðu þeir Ásgarð.
Menn hafa getið sér þess til að þessi Vanakvísl sé það sem menn kalla Don í dag og fellur í Azovhaf, sem er innhaf úr Svartahafi austan Krímskaga.
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 17:40
Þeir sem græða mest á þessu vopnaskaki eru olíufurstarnir, auk hergagnabaróna.
Og skiptir þar engu hvort olígarkarnir eru bandaŕískir, norskir eða arabískir, sem vilja nú ná sneiðinni af rússnesku olígörkunum.
Já, það er hlálegt að sjá gömlu herstöðvaandstæðingana, hér á landi, daðra nú við draumkennda alríkisdrauma ESB og NATO olígarkanna. Þeir hinir sömu og hafa reyndar alltaf beðið eftir sovétinu, falla nú á kné fyrir olígarkí. Já, og það kostar litla þjóð mikið að vera taglhnýtingur EES norsku olígarkanna.
Auðvitað ættum við, þessi litla þjóð norður við Dumbshaf, að standa algjörlega utan við alla þá Heljarslóðaorustu sem olígarkar beggja megin standa fyrir.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.2.2022 kl. 18:19
Fullkomlega sammála Símon Pétur, -og litlu þjóðinni norður við Dumbshaf yrði fyrirgefið hlutleysið af öllum aðilum, jafnvel litið upp til okkar fyrir vikið.
Hvað varð um þá hugsjón norrænna þjóða að miðlað málum með hlutleysis sínu? Hafði prestsonurinn Stoltenberg hana með sér til NATO eftir að hafa gengið fremstur í flokki við að sprengja Lýbíu aftur á steinöld?
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 18:39
Takk fyrir svarið í athugasemdinni.
Tek heils hugar undir réttmætar spurningar þínar um hvað orðið hafi af hlutleysi og sáttamiðlunarhæfileikum og stöðu Norrænna landa.
Kære nordiske venner ... virðist gleymt.
Nú ræður þar olígarkíið eitt. Og Komma-Kata, Valhallar Reykás og Bessastaðaflónið sýna þar listir sínar að stunda villtan stríðsdansinn.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.2.2022 kl. 18:51
Hlutdeild norska olíusjóðsins í sölu olíu til Þýskalands er nú yfir 20% og ætlar sér án vafa stærri hlutdeild. Þá er þekktur vilji bandarískra yfirvalda að ná vænum bita af heildarþörf þýskra og ESB ríkja.
En Rússar hrekjast nú til að senda sitt gas um Síberíuleiðsluna ... til Kína. Neyðast til þess vegna væntanlegra refsiaðerða NATO og ESB og EES ríkisins og hjálendunnar norður við Dumbshaf.
Kína eitt græðir á þessu, og olígarkarnir.
Já, Það er undarlegur hráskinnungshátturinn í heimi olígarkanna.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.2.2022 kl. 19:48
Satt segirðu Símon Pétur, hann er undarlegur hrákinnaleikurinn. Svo kemur þessi tímasetning lyfjaiðnaðinum einstaklega vel, svona ef stríð verður til þess að friða hugann.
Magnús Sigurðsson, 22.2.2022 kl. 20:30
Annars ber það núna hæst í þessum stríðsdansi,
hvað moggabloggið varðar,
að mikill aðdáandi kínverskra leikfimiæfinga
skammar Pútín fyrir að skamma Lenín.
Sá aðdáandi hlýtur þá einnig að vera aðdáandi Lenín, sem kom með fullar kistur gulls og silfurs frá Frankfurt til að kaupa upp hirð og stjórnkerfi gamla keisaradæmis Rússa og drepa svo keisarann og alla keisarafjölskylduna.
Gera þar byltingu í nafni kommúnismans sem þjónaði helst leppunum, nómenklatúru sovétsins.
Það er svo undarlega margt sameiginlegt með sovésku kommanómenklatúrunni og þeirri ofvöxnu nómenklatúru sem kennir sig við Smartland og Valhöll, jötuliðsins sem hangir á spenum ríkisins. Og skylduáfskrift af Rúv/Prövdu.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 22.2.2022 kl. 23:40
Ég þakka góðar útskýringar á hvað Bjarmaland þýðir og Bjarmalandsför. Var ekki alveg viss um það. Ég er einnig sammála því að túlkanir RÚV á atburðunum í Úkraínu þarf að taka með gætni, þar er ekki mikið tekið mið af rússneskum hagsmunum.
Mætti alveg dusta rykið af "Ísland úr Nató og herinn á brott". (Hann er farinn, en ekki virðist manni það í huga utanríkisráðherra).
Ingólfur Sigurðsson, 23.2.2022 kl. 01:54
Símon Pétur; hann getur sýnst sérkennilegur hrævareldurinn sem logar í grafhaug kaldastríðskumlsins en yfirleitt er hann villuljós. Pravda fer með himinskautum þessa dagana.
Ingólfur; íslenskir ráðmenn mættu dusta rykið af svo mörgu þessa dagana og jafnvel leita í smiðju frænda okkar í Færeyjum hvernig smáþjóð stendur sjálfstæð án utanríkisþjónustu, með því einfaldlega að hafa ekki fyrirskrifaða skoðun á málunum.
Færeyingum er hvergi úthýst með viðskiptabönnum, hvorki hjá ESB né Rússum þó svo viðskiptabönnin bíti Íslendinga í afturendann.
Magnús Sigurðsson, 23.2.2022 kl. 07:12
Ég held að Vesturlönd verði að standa gegn yfirgangi Rússaveldis. Kannski hafði Patton rétt fyrir sér, að eftir að hafa afgreitt Hitler, ættu bandamenn að snúa sér að rússneska birninum? Nú er það e.t.v. of seint?
Að öðru þessu ótengt. Hefur einhver tekið eftir dagsetningunni í dag, hvernig hún lítur út?
22.02.2022 - næstum því eins aftur á bak og áfram. Ef við lesum daginn og mánuðinn aftur á bak => 20222022!
Theódór Norðkvist, 23.2.2022 kl. 10:57
Við nánari athugun þá er dagsetningin í heild eins, hvort sem hún er lesin frá vinstri til hægri eða hægri til vinstri.
Theódór Norðkvist, 23.2.2022 kl. 11:00
Dagsetning í gær, átti þetta að vera, dagsetningin sem Magnús skrifaði bloggfærsluna.
Theódór Norðkvist, 23.2.2022 kl. 11:02
Sæll Magnús æfinlega; líka sem og aðrir gestir, þínir !
Jeg vona Magnús; að jeg megi setja hjer inn hjá þjer;; að skaðlausu, þann ritling, hvern jeg sendi Þórdísi Kolbrúnu í gærkvöldi, um leið - og þakka beri þjer raunæji þitt, á hina raunverulegu stöðu mála, þar eystra, sem fram kemur rækilega, í þínum inngangi, að ofan.
Vona einnig; að minn ágæti fornvinur, Theódór Norðkvist og aðrir hans skoðunar fyrtizt ekki við, að nokkru.
Þá ber; að þakka Símoni Pétri hans glöggu yfirsýn, sem oftar.
Hjer; kemur erindið, til Þórdísar Kolbrúnar, frá mjer.:
Frá: Óskar Helgi Helgason <oskarhelgi1958@gmail.com>
Date: þri., 22. feb. 2022 kl. 21:57
Subject: Til alvarlegrar ígrundunar; fyrir Utanríkisráðherra / varðandi Rússneska Sambandslýðveldið, og nágrenni þess
To: <thordiskolbrun@althingi.is>, Jóhann Elíasson <vesturholt@simnet.is>, <ellidi@olfus.is>, Fréttastofa RÚV <frettir@ruv.is>, Skandall.is <skandall@skandall.is>, Halldor Jonsson <halldorjonss@gmail.com>, Sturla Jónsson <stulli66@gmail.com>, <midflokkurinn@midflokkurinn.is>, <flokkurfolksins@flokkurfolksins.is>, Pall Vilhjalmsson <pallvil@yahoo.com>, <kastljos@ruv.is>, <ritstjorn@mbl.is>, <ritstjorn@stundin.is>, <sme@sme.is>, Sveinn Palsson <svenni59@yahoo.com>, <saga@utvarpsaga.is>, <moscow@utn.is>
Moskvu , Stórhertogadæmið Moskvu
Moskvu , Stórhertogadæmið Moskvu
Anna Vasilievna
Andrey Bolshoy
(1428–1443)
Thomas Palaiologos
(1428–1449)
Konstantínópel , Býsansveldi
(nú Istanbúl , Tyrkland )
Konstantínópel , Býsansveldi
( m. 1428; dó 1429 ).
( m. 1441; dó 1442 ).
Белая армия
~1.023.000 (maí 1919)
Í bardagasveitum:
~4.000 (desember 1917) ~
683.000 [1] (júní 1919)
~300.000 [2] (desember 1919)
~100.000 ( 02.01.2000) ~02.02 . (1923)
foringjar
_
Gsm: 618 5748
e.s. Birtist einnig á Miðjunni; í morgun (midjan.is)
Mbkv. /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.2.2022 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.