Sama gamla tuggan

Nú hefur Seðlabankinn skitið á sig einn ganginn enn og styttist í að fnykinn leggi um land allt.

Viðundrin þar á bæ hræra í soppunni, þvæla um hagvöxt og vendipunkta, -hækka svo vexti. Verðbólga og lækkandi gengi er árangurinn, -Jóni og Gunnu til stórtjóns. Gengi, sem viðundrin hafa verið að fikta í, svo sérvaldir auðrónarnir fái meira fyrir sitt innanlands til að flytja aflands.

Það er ekki heil brú í kjaftavaðlinum ef litið er til verðbólgu markmiða Seðlabankans. Ef svo væri þá ættu viðundrin að segja sig frá milljónunum sínum á mánuði ásamt öllum þeim flissandi fábjánum sem raðað hafa sér á jötuna.

Ef hagvöxtur innmúraðs sértrúarsafnaðar er málið þá getur hver sem er fixað svoleiðis með því að keyra upp verðbólgu, hækka vexti og auka skatta, -bara spurning hverjir fá að tilheyra klaninu.

En það þarf ekki mann með meðal minni til að muna hvert þessi aðferðafræði leiðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að hækkun stýrivaxta á Íslandi geri frekar lítið til að slá á verðbólgu erlendis.  Og svo hefur nú komið í ljós að  samband stýrivaxta og verðbólgu er ekki til staðar eins og áður var haldið, þannig að stýrivaxtabreytingar eru í besta falli bara VINHÖGG en í versta falli geta þær haft mjög alvarlegar afleiðingar......

Jóhann Elíasson, 24.8.2022 kl. 20:01

2 identicon

Þá er nú lífið betra í Tyrklandi þar sem stýrivextir eru lækkaðir til að hemja verðbólguna. Og veitir víst ekki af...

ls (IP-tala skráð) 24.8.2022 kl. 21:30

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hækkun stýrivaxta er ávísun á uppskeru auðsins, -Jóni og Gunnu er ætlað að tapa sínum skerfi af ávöxtunum.

Þetta er orðið frekar fyrirséð, lúið og laskað leikrit hjá viðundrunum í Seðlabankanum og vesalingunum við Austurvöll, sem nóta bene hefur allt meir og minna selt sig glóbalnum.

Magnús Sigurðsson, 24.8.2022 kl. 21:30

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gleymum því ekki að viðundrin og vesalingarnir við

Austurvöll njóta góðs af þessu í formi hærri launa sem nb. lækka

ekki aftur ef vextir fara niður. Jón og Gunna geta farið fjandans til.

Enda heyrist ekki eitt aukatekið orð eða mótmæli frá þessum vesalingum.

Þeir eru í fullri vinnu fyrir þjóðina ekki satt..?

Sigurður Kristján Hjaltested, 25.8.2022 kl. 02:33

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Já, vel á minnst Sigurður, og trúi þeim svo hver sem vill.

Magnús Sigurðsson, 25.8.2022 kl. 05:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband