Gúrkutíð

Nú hefur ríkt hamfarblíða um heim allan í hálfan mánuð. Stafalogn svo dögum skiptir, ekki er gott að eiga vindrellu í þessum ósköpum. Hitastigið yfir meðallagi þannig að ekki bítur orkuskorturinn. Orkuskiptin þar að auki orðin svo orkufrek að það þarf virkja hverja sprænu, jafnvel leysa carbfixaðan vind á rellu.

Svo þetta sé allt saman gerlegt hyggjast fábjánar, sem fá frábærar hugmyndir á færibandi, flytja inn aðkeyptar hendur, pantaðar úr katalókum með appi á netinu, auk þess að glæða flóttamanniðnaðinn með stríðsrekstrar styrkjum.

Þessi ósköp hafa leikið Evrópusambandið svo grátt í öll gasleysinu að allir málsmetandi vísinda- og stjórnmálamenn, ásamt auðrónum, hafa hug á að lýsa yfir neyðarástandi. Gott ef þeir eiga ekki eftir að þjóta einhverja hringi í kringum hnöttinn með kolefnissporið strókandi aftan úr rassgatinu.

Ósonlagið er þar að auki orðið eins og gatasigti, rétt eina ferðina. Þetta getur varla verið annað en lognið á undan storminum. Hamfarablíðan á örugglega eftir að hefna sín jafn illyrmislega og stormur í vatnsglasi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Og ekki ord um thad meir!

 Takk fyrir mig.

 Kvedja ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 29.10.2022 kl. 06:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband