12.7.2023 | 08:52
Ísland úr NATO og herinn burt !
Hlýtur að teljast til hatursorðræðu eftir að dragdottningin í Davosdúkkulýsu dragtinni smurði kyssitauið í Vilníus til að gleðjast með stríðsglæpamönnum yfir inngöngu Svía í NATO.
Þar var leikarinn ástsæli ennig kjassaður vegna engrar ákvörðunar um framtíð Úkraínu, -annarrar en áframhaldandi stríðsrekstri m.a. í boði íslensku þjóðarinnar.
Fölsku tennurnar eru nú þegar farnar að glamra af spenningi í kaldastríðs kumlinu, eftir að 90% Íslendinga lýstu yfir einlægri ánægju með NATO.
Keflavíkur göngur heyra því sennilegast sögunni til og framvegis verði gleðigangan ein leifð á landinu bláa og hatursorðræðu haldið niðri með klasasprengjum.
Framtíð Úkraínu liggur í NATO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vel orðað Magnús og sorglega satt.
Sigurður Kristján Hjaltested, 12.7.2023 kl. 09:27
Flottur pistill Magnús, sem gefur vel til kynna að þessar Davos-dúkkulísur njóta síður en svo stuðnings almennra Íslendinga......
Jóhann Elíasson, 12.7.2023 kl. 09:47
Takk fyrir athugasemdirnar Sigurður og Jóhann.
Ekki veit ég á hvaða forsemdum þessi almenni stuðningur Íslendinga við NATO er reistur, -ég var ekki spurður.
En mér þykir grunsamlegt ef Íslendingar telja sig ekki lengur friðelskandi þjóð á móti stuðningi við hernaðarbrölt, hvaða nafni sem það nefnist.
Magnús Sigurðsson, 12.7.2023 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.