I told you so

er einhver ömurlegasta orðræða sem hægt er að viðhafa. Þess vegna ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þá vexti sem fara með himinskautum úr Svörtuloftum, enda hef ég undanfarið ár svo oft komið inn á þá græðgi og illsku sem þeir eru af sprottnir. Heldur ætla ég að endurtaka tvær sögur úr sveitinni.

Þessar sögur voru sagðar hér á síðunni fyrir tæpum tveimur og hálfu ári þegar Why Iceland viðundrið hafði náð sér á flug á Svörtuloftum og gírað sig upp fyrir sína umbjóðendur. Pistillinn sagði frá glópum og síðan sölumanni skítadreifara í athugasemd. En sögurnar eru þessar með postullegri kveðju á milli.

"Það hefur varla farið fram hjá neinum að fasteigna og jarðaverð er í hæðstu hæðum, og fer hækkandi í vaxtaleysi bankanna. Þeir eru margir sem trúa á góðgeðastarfsemi fjármálastofnanna í þetta skiptið og telja sig hafa samning til margra ára um fasta lága vexti, en eru kannski ekki eins öruggir á smáletrinu um hversu fast vaxtaálag kjörvaxtanna sé.

Í svona árferði finnst flestum þeir vera að græða, kaupandi kaupir eign á lágum vöxtum á áður óþekktu verði, seljandi seldi sína eign á miklu hærra verði en hann keypti. Greiningadeildir segja að ekkert bendi til annars en verð haldi áfram að hækka, sem eru náttúrulega byggt á hinni heilögu hagfræði.

En þegar málið er skoðað þá eru skuldir á lífsnauðsynlegt þak yfir höfuðið einungis að hækka, og þegar fram í sækir gæti orðið sífellt erfiðara að standa í skilum með brauðstritinu, -það þurfa jú allir bæði að éta og þak yfir höfuðið. Þessa hundalógík þekkti gamli presturinn á Héraði. Þegar hann frétti af því að bújörð í hans sveit hefði selst á áður óþekktu yfirverði þá setti hann saman þessa vísu.

Glópur hitti glóp á ferð,

glópur beitti skrúfu.

Glópur keypti á geipiverð

græna hunda þúfu.

það tapa í raun allir á þeirri hundalógík, sem kölluð er hagvöxtur sem er ekki annað en skuldsett sóun. Hagvöxtur er fallegt orð, en hann er allt eins fenginn með kostnaðar hækkunum og verðbólgu, eða hverjum þeim ráðum sem mögulegt er að brúka við að auka skuldir fólks.

Það er aftur á móti verðhjöðnun sem gagnast venjulegu fólki og afkomendum þess, en hún er eitur í beinum þeirra auðróna sem með bókaldið hafa að gera.

Hvað á svo auðróninn að gera við þetta skuldsetta talnabókhald? -kannski flytja það aflands til að vera maður með mönnum meðal sinna líka?

Hvað á svo venjulegt fólk að gera við dýrara hús eftir að það þarf ekki að borga meira af lánunum? -ímyndar það sér kannski að afkomendurnir hafi svipaðar hugmyndir um hús?

Því fer kannski best á því að setja sig í spor bóna á Héraði. En hann hafði unnið dagana langa fram á gamals aldur, þegar sölumaður landbúnaðarvéla heimsótti hann og vildi selja honum nýjan og afkastamikinn skítadreifara.

Bóndinn svaraði honum því að gamli skítdreifarinn væri góðu standi og þó svo að afköstin væru minni þá myndi hann duga sinn búskap.

Sölumaðurinn grunaði að bóndinn ætti því sem næst fyrir nýja flotta skítadreifaranum, og væri þá ekki í vandræðum með að fjármagna afganginn.

Sölumaðurinn manaði því bóndann, "þú ættir nú að létta þér lífið í ellinni og kaupa nýjan skítadreifara - þú ferð hvort er eð ekki með peningana með þér til himna". -Bóndinn svaraði; "-þá ekki heldur skítadreifara"."


mbl.is Gengur illa að kæla fasteignamarkaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Og verðbólgan er búin til með eignasköttum, sem dreift er eins og mörgum ryksugustútum á hvað sem er.

Já, told you so, er ósiður, en í rauninni er það svo hjá mörgum okkar í dag, að það hrekkur upp úr manni í angist og örvinglan drukknandi manns sem kallaði eftir björgunarvesti, kút og hring, löngu áður en flóðbylgjan kom upp fyrir sjónarröndina.

Guðjón E. Hreinberg, 4.10.2023 kl. 14:23

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er agalegt að þurfa að segja I told you so við drukknandi mann.

Hagvöxtur verðu til eftir að lán hafa bæði verið tekin fyrir eignasköttunum og því að vera til.

Auðrónar er yfirleitt bæði tekju- og eignalausir en eiga aflands félög sem fjárfesta í elítunni sem nærist á talnaverkinu. 

Þetta er skítadreifara hagfræði í ryksugu samfélagi, nokkurskonar haugsugur.

Magnús Sigurðsson, 4.10.2023 kl. 16:26

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Framangreind athugasemd ætti að prentast út á plaköt. Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 4.10.2023 kl. 18:28

4 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Ferðu með eitthvað til Himna, farir þú þangað á annað borð?

Enginn kemst í gegnum Gullna hliðið án þess að skuldabréf hans hafi verið greitt. Kvittun þarf að vera með í farteskinu.

Þér voruð dauðir sökum afbrota yðar og umskurnarleysis. En Guð lífgaði yður ásamt honum (Jesú Kristi), þegar hann fyrirgaf oss öll afbrotin. Hann afmáði skuldabréfið, sem þjakaði oss með ákvæðum sínum. Hann tók það burt með því að negla það á krossinn. Kól. 2:13-14.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 4.10.2023 kl. 21:16

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Guðmundur Örn, -þakka þér fyrir ritninguna, mér skilst að með veraldlegum verðmætum fari maður ekki til himna og varla í hinn staðin heldur.

Það getur svo vel verið að einhverjir trúi því að í neðra yrði skítadreifari góðkenndur, -ekki ólíklegt ef tekið er mið af vöxtunum. 

Á síðunni Stormsker Fan var saga sem vel er þess virði að lesa í þessu sambandi.

"Sál þingmannsins kemur til himna og Lykla Pétur tekur á móti honum og segir: Áður en þú kemur þér fyrir þá er smá vandamál sem við verðum að leysa. Við fáum ekki svo oft alþingismenn hingað svo við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera við þig.

Ekkert vandamál, hleyptu mér bara inn.

Nei ég er að bíða eftir skipunum að ofan.

Jæja þá er það ákveðið: Við leyfum þér að eyða einum degi í helvíti og öðrum degi á himnum og þá getur þú ákveðið hvoru megin þú vilt vera til eilífðar.

Virkilega?? Þá vel ég bara að vera hér á himnum. Því miður, við verðum að fylgja reglum hér.

Og að svo búnu fara þeir inn í lyftu sem tekur þá niður, niður niður, alla leið til helvítis. Þegar dyrnar opnast þá sjá þeir grænan stóran golfvöll með flottu klúbbhúsi og fyrir framan húsið eru allir gömlu vinir hans og aðrir pólitíkusar sem höfðu unnið með honum.

Allir eru glaðir og þeir taka vel á móti honum og taka í höndina á honum, tala um góðu tímana þegar þeir voru að verða ríkir á kostnað almúgans.

Fóru 18 holur á golfvellinum og borðuðu humar, kavíar og drukku Kampavín með. Djöfullinn kom sjálfur, var rosa fínn og sagði brandara.

Það var svo gaman að tíminn var fljótur að líða og allt í einu voru þessir 24 tímar liðnir og tími til að fara.

Allir kvöddu hann með virtum og lyftan fór upp,upp,upp, alla leið til himna.

Nú er tími til að heimsækja himnaríki!

Svo næstu 24 tímana þá var hann að ræða við sáttar sálir og ferðaðist milli skýjanna, spilaði á hörpu og söng.

Tíminn leið hratt og eftir 24 tíma kom Lykla Pétur og sagði, nú ert þú búinn að vera einn dag í helvíti og annan dag á himnum… Hvort velurðu??

Alþingismaðurinn hikar aðeins við en segir svo: Ég átti nú ekki von á að ég mundi svara svona, en eins og þetta er fínt og flott hérna uppi þá held ég að ég velji helvíti frekar.

Svo Lykla Pétur fylgdi honum niður í lyftunni. Þegar dyrnar opnast þá sér hann bara ógróið land fullt að sorpi, allir gömlu vinir hans eru klæddir í gamla garma og eru að tína upp rusl og alltaf er meira að detta niður.

Djöfullinn kemur og setur höndina yfir herðar hans og býður hann velkominn. Ég skil þetta ekki alveg??? Í gær var hér golfvöllur, við borðuðum kavíar, humar og drukkum Kampavín og nutum hverrar mínútu… Hvað skeði?

Djöfullinn lítur í augu hans og segir: Í gær vorum við í kosningabaráttu… “Núna ert þú búinn að kjósa."

Magnús Sigurðsson, 5.10.2023 kl. 06:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband