Glópar

Það hefur varla farið fram hjá neinum að fasteigna og jarðaverð er í hæðstu hæðum, og fer hækkandi í vaxtaleysi bankanna. Þeir eru margir sem trúa á góðgeðastarfsemi fjármálastofnanna í þetta skiptið og telja sig hafa samning til margra ára um fasta lága vexti, en eru kannski ekki eins öruggir á smáletrinu um hversu fast vaxtaálag kjörvaxtanna sé.

Í svona árferði finnst flestum þeir vera að græða, kaupandi kaupir eign á lágum vöxtum á áður óþekktu verði, seljandi seldi sína eign á miklu hærra verði en hann keypti. Greiningadeildir segja að ekkert bendi til annars en verð haldi áfram að hækka, sem eru náttúrulega byggt á hinni heilögu hagfræði. 

En þegar málið er skoðað þá eru skuldir á lífsnauðsynlegt þak yfir höfuðið einungis að hækka, og þegar fram í sækir gæti orðið sífellt erfiðara að standa í skilum með brauðstritinu, -það þurfa jú allir bæði að éta og þak yfir höfuðið.

Þessa hundalógík þekkti gamli presturinn á Héraði. Þegar hann frétti af því að bújörð í hans sveit hefði selst á áður óþekktu yfirverði þá setti hann saman þessa vísu.

Glópur hitti glóp á ferð,

glópur beitti skrúfu.

Glópur keypti á geipiverð

græna hunda þúfu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Vilt þú henda þessu út fyrir mig, set nýja. 

Nú er þess gætt að hafa skort á íbúðum og íbúðarhúsum, og lága vexti til að auðvelda íbúðakaup.

Þá er byggt of lítið og 20%, einhver prósenta af lausum íbúðunum tekinn úr sölu. 

Þá er kominn skortur og verðið hækkar. 

Næst er útbúin kreppa, minni tekjur og atvinnuleysi. 

Þá getur fólkið ekki borgað af húsunum sínum, og reynir að selja. 

Bankinn segir, það er kreppa, og engin peningur til, við lánum engum til að kaupa. 

Allir greiða af skuldum inn í bankana, en ekkert er lánað út. 

Þá verður þurð á peningum, úti í þjóðfélaginu, með öðrum orðum búin til kreppa. 

Allt er þetta aðeins bókhald, spilað á okkur fíflin. 

Þetta er gert með vissu millibili, síðast 2008. 

Mikið gaman. 

Skildi fólkið vilja læra til að skilja þetta.

Er þetta þjófnaður? 

000 

slóð

 https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2264628

 

 slóð

 Kreppufléttan, endurtekið

14.7.2014 | 20:23 

Egilsstaðir, 14.05.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 12.5.2021 kl. 14:27

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Málið er það Jónas að það tapa allir á hundalógíkinni sem kölluð er hagvöxtur, sem er í raun ekki annað en skuldsett sóun.

Hagvöxtur er fallegt orð en hann er allt eins fenginn með kostnaðar hækkunum og verðbólgu, eða hverjum þeim ráðum sem mögulegt er að brúka við að auka skuldir fólks.

Það er aftur á móti verðhjöðnun sem gagnast venjulegu fólki og afkomendum þess, en hún er eitur í beinum þeirra auðróna sem með bókaldið hafa að gera.

Hvað á svo auðróninn að gera við þetta skuldsetta talnabókhald? -kannski flytja það aflands til að vera maður með mönnum meðal sinna líka?

Hvað á svo venjulegt fólk að gera við dýrara hús eftir að það þarf ekki að borga meira af lánunum? -ímyndar það sér kannski að afkomendurnir hafi svipaðar hugmyndir um hús? 

Því fer kannski best á því að setja sig í spor bóna á Héraði. En hann hafði unnið dagana langa fram að gamals aldri, þegar sölumaður landbúnaðarvéla heimsótti hann og vildi selja honum nýjan og afkastamikinn skítadreifara.

Bóndinn svaraði honum því að gamli skítdreifarinn væri góðu standi og þó svo að afköstin væru minni þá myndi hann duga sinn búskap.

Sölumaðurinn grunaði að bóndinn ætti því sem næst fyrir nýjum skítadreifaranum, og væri þá ekki í vandræðum með að fjármagna afganginn.

Hann manaði því bóndann, "þú ættir nú að létta þér lífið í ellinni og kaupa nýjan skítadreifara - þú ferð hvort sem er ekki með peningana með þér til himna". Bóndinn svaraði; "-þá ekki heldur nýjan skítadreifara".

Magnús Sigurðsson, 12.5.2021 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband