7.2.2011 | 12:17
Hvað með vatn?
Til er einfaldur búnaður til að setja í bíla, bæði bensín og diesel, sem býr til hydrogen sem eldsneyti. Sagt er að þessi búnaður geti sparað 25 - 75% í eldsneytiskostnað. Það að er hægt að fá þennan bunað m.a. á ebay og kostar hann um $-100 eða ca. eins og ein tankfylling á meðal bíl. Það væri gaman að heyra af því hvort einhver hefur prófað þetta.
![]() |
Steinolía notuð í stað dísels |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.2.2011 | 21:49
Holl ráð.
Allt frá fyrsta degi mótmælanna í Egyptalandi hafa Bandarísk stjórnvöld ausið úr viskubrunnum sínum til handa Egyptum. Það ætti engum að koma á óvart enda búa þeir yfir mikilli reynslu heimafyrir hvernig má nota fjölmiðla í þágu stjórnvalda.
![]() |
Egypsk yfirvöld hætti að handtaka blaðamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2011 | 08:02
Bræðralag fyrir frelsi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.2.2011 | 17:46
Geta haldið áfram að gera í buxurnar.
Sturla Jónson verktaki og mótmælandi var fulltrúi litla mannsins í Valhöll í dag eftir eftir því sem fram kemur í Pressunni. Sturla var með fyrirspurn til formanns Sjálfstæðisflokksins.
"Sturla líkti fyrsta IceSave samkomulaginu við slitnar gallabuxur sem kostuðu 10 þúsund krónur. Nýja IceSave samkomulaginu líkti hann við sömu slitnu buxurnar, sem væru á útsölu og kostuðu
3 þúsund krónur. Hann sagði að það sem Bjarni væri að bjóða upp á með afstöðu sinni væri það að taka slitnu buxurnar á 3 þúsund.
Bjarni svaraði því til að þeir sem keyptu ekki ódýru buxurnar gætu lent í því að enda allsberir.
Þá sprakk salurinn,
eins og einn fundargestur orðaði það við Pressuna."
Það er nokkuð ljóst að Bjarni og elítan hafa orðið sér úti um buxur á útsölu til að gera í, en fyrir litla kalla eins og okkur Sturlu verður eitthvað í að við komumst aftur í buxur. Útsölubuxur þeirra Bjarna og félaga kosta hvern vinnandi mann í landinu ca. 500.000 ef allt fer á besta veg.
![]() |
Sætti mig við þessi málalok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.2.2011 | 11:11
Létum þjóðina falla.
Það sem vantar upp á að myndin sem forsetinn dregur upp sé sönn er sú staðreynd að stjórnvöld frá hruni hafa látið skuldara og skattgreiðendur landsins axla tapið og eru á góðri leið með að gera almenning eignalausan.
Því sem rænt hefur verið frá almenningi hefur verið notað til að endurreisa bankakerfið í öllu sínu veldi, Sjóvá, Sparisjóðina, Húsasmiðjuna og stórauka umsvifin í stjórnkerfinu svo lítið eitt sé upptalið.
Og nú hyggjast alþingismenn láta almenning taka ábyrgð á icesave. Þetta heitir ekki að láta bankana falla. Þetta heitir að láta þjóðina falla.
![]() |
Leyfðum bönkunum að falla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.2.2011 | 08:22
Er offita ímyndunarveiki?
Væri ekki munur að geta hugsað sig frá aukakílóunum? Þá ætla ég að segja frá því að það er hægt. Ég átti við það að stríða að vera of feitur árum saman. Aðferðin til árangurs við að léttast var allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér. Hún fólst í að ég át meira en nokkru sinn áður, stundaði enga líkamsrækt, léttist samt um tugi kílóa á fáum mánuðum. Ég breytti mataræðinu, en fyrst og fremst hugsunarhættinum. Flest mín megrunarátök höfðu mistekist eftir ákveðinn tíma, en með því að hafa engin tímamörk, heldur breyta mataræðinu þá skipti ég um stöðu og fann út hvaða mataræði þyrfti til að ná kjörþyngd.
Því hefur verið haldið fram að genunum verði ekki breytt og þau stýri því hvort fólk verður feitlagið. Munurinn á því hvernig vísindin og skammtafræðin sjá heiminn kollvarpa þessum hugmyndum. Skammtafræðin gefur þau skilaboð að hlutirnir séu ekki eins fastskorðaðir og vísindin gefa til kynna. Þetta er því á valdi hvers og eins. Skammtafræðin tekur mið af andanum og því sem hann fær umbreytt, hvort sem við viljum kalla það trú eða eitthvað annað.
Út frá sjónarhorni vísindanna er fátt sem hægt er að gera til að lækna sjálfan sig með því einungis að nota hugann. En allir hafa heyrt af því að sjúkir hafa læknast við að taka óvirkar hveitipillur og þannig læknast, af ímyndunarveiki. þetta sýnir best hversu öflugur hugurinn er ef þú hefur jákvæða væntingu til lyfsins þá mun árangur nást jafnvel þó notuð sé hveitipilla. Hvað þá ef afstöðunni er breytt til alls sem er yfir í jákvæða, ekki einungis til hveitipillu.
Hérna er video þar sem vísindamaðurinn Bruce Lipton skýrir það hvernig þetta getur virkað. Eins eru hugleiðingar um þessa aðferð á bloggsíðunni minni Mason.
![]() |
Tíundi hver fullorðinn of feitur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2011 | 23:35
Þjóðaratkvæði takk.
Vonandi ganga einhverjir málsmetandi menn fram í því að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um icesave3. Verður það þeir í Indefense?
Það hefur verið sagt oft áður á þessu bloggi að að kæmi ekki á óvart að icesave3 renni hljóðlega í gegnum þingið með samþykki fleiri þingmanna sem hafa verið á móti í þessu grundvallarmáli hingað til, um það hvort réttlætanlegt sé að setja skuldir gjaldþrota einkabanka á ábyrgð almennings.
Það sem kemur á óvart núna er að 1% lægri vextir miðað við fyrri samning skulu teljast frábær árangur, og væntingar um betri heimtur í þrotabúi Landsbankans. Það verða að uppistöðu til sömu þingmenn og tóku fullan þátt í því að setja Ísland á hausinn sem ætla að samþykkja icesave3.
Þegar kemur í ljós hver þessi reikningur í raun verður, stendur þjóðin frammi fyrir þeim kostum, að taka hyskið af launaskrá, eða lifa sjálf við stórskert lífskjör. Að samþykkja icesave3 verður dýr lexía. Því er nauðsynlegt að þjóðin fái að segja sitt álit, þjóðaratkvæði takk.
![]() |
InDefence styður ekki Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.2.2011 | 14:43
Keyrt í gegnum mannfjöldann.
Þær segja oft meira en fréttir og fréttaskíringar myndirnar sem eru teknar af fólki á vettvangi án þess að vera klipptar og það sé talað ofaní þær það sem fjölmiðlinum finnst skipta máli.
Það er ótrúlegt að horfa sjá hvað mikil munur er á þessum ritskoðuðu myndum og á þeim myndum sem teknar eru af óbreyttum borgurum. Það hefur ekki farið hátt í fjölmiðlum að hinir svokölluðu stuðningsmenn Mubaraks eru í raun borgarlega klæddir öryggissveitir ríkisins.
Þessar myndir sem almenningur birtir á youtub sína oftar en ekki villimennsku stjórnvalda. Hér má sjá hvernig bíll er notaður til að keyra niður tugi manna. Þessi mynd er tekin af óbreyttum s.l. föstudag 28. jan..
![]() |
Mikill fjöldi á götum Kaíró |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2011 | 21:13
Trillion cubic feet á Farhenheit.
Það hefur verið einkennandi í Global warming áróðrinum hvað hitastigið hefur oft verið í sögulegu hámarki á stöðum sem engin venjulegur maður kemst á til að mæla hitan. Nú er meir að segja farið að segja trölla sögurnar í vísinda fréttum mbl með mælieiningu sem er fáum töm. Kannski eru tölurnar dramatískari í Farhenheit en á Celsíus en svo getur verið þeir félagar Farhenheit og Celsíus hafi ekki báðir komist til að mæla hita sjáfarstrauma í Framsundi á miðöldum. Þess vegna sé stuðst við mælingu Fareinheits heitins.
Mikið hefur farið fyrir fréttum af bráðnun heimskautaíssins eftir að upp komst að jöklarnir í Himalaja voru ekki bráðnaðir enda mikið færri sem komast á heimskautin til að vefengja niðurstöðurnar. Samt má víða finna úttektir sem benda til annars en norðurskautsísinn sé að minka þó svo að þær komist ekki á vísindasíður stórfjölmiðlanna.
70 Trillion cubic feet of New Arctic Ice: Comparing imagery of January arctic sea ice from 2009 to 2011 sourced from the U.S. Navy Polar Ice Prediction System, it appears as though the ice sheet has thickenedsubstantially. That is, the arctic ice during January 2009 compared to January 2010 compared to January 2011, all purposefully compared during the same month of each year. This observation is looking at ice thickness - not surface area - although some retreat of 1 meter ice can be seen in the Labrador Sea. Meira
![]() |
Sjór í Framsundi ekki verið hlýrri í 2000 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)