Hvaða íslendningar hafa náð frumkvæðinu?

Það er nokkuð ljóst að þeir stjórnmálamenn sem leggja nú nótt við dag að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu eru ekki þeirra hópi.  Það er nokkuð ljóst að þeir stjórnmálamenn sem samþykktu hörmungarlögin 30. des. s.l. eru ekki þar á meðal og hæpið er að telja þá með sem samþykktu fyrirvararuglið í ágúst.

Það er fylgst með framvindunni á Íslandi um allan heim.  Stjórnmálmenn hafa víða get sig seka um að þjóna sömu öflum og þeir íslensku í viðleitni sinni við að koma skuldum gjaldþrota einkabanka yfir á almenning.  Hérna má sjá undirkriftasöfnun til stuðnings almenningi á Íslandi.  Það er athyglivert að skoða athugasemdirnar sem þar eru, þær segja margar hverjar allt sem segja þarf.   Eða eins og Tomoko Kotaka, Colorado segjir, "The people of Iceland are an example of courage and solidarity to the rest of the world".


mbl.is Íslendingar hafa náð frumkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Fyrst samþykktu þingmenn Samspillingarinnar IceSLAVE samninginn ÓLESINN (glæsilegur samningur..lol..:), síðan samþykktu þessir sömu FÁBJÁNAR Icesave drápsklyfjar TVISVAR sinnum á alþingi, allir sem einn.  Annað eins DRASL hefur ekki sést á alþingi frá stofnun þess.

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 24.2.2010 kl. 12:12

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála þér Jakob, öðrum eins stjórnmálamönnum og nú sitja á Alþingi man ég ekki eftir, enda eru tímarnir sérstakir.  En þetta fólk ætti samt sem áður að sjá sóma sinn í að verja eigin þjóð, en láta ekki útlendinga eingöngu um það.

Magnús Sigurðsson, 24.2.2010 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband