Stalín býr ekki hér.

Það kemur ekkert á óvart að leiksýningin í kringum atkvæðagreiðsluna um fjárlagafrumvarpið hafi verið skipulögð fyrirfram.  Það sem kemur meira á óvart er hversu fáir virðast hafa tekið þátt í samráðinu.  En það kemur sennilega til af því að afstaða annarra þingmanna hefur verið kristaltær.  Engin annar var á móti frumvarpinu hvar í flokki sem hann stóð.

Þegar Alþingi greiddi atkvæði um ESB aðildarumsókn var samráðið flóknara þá þurftu stjórnarandstöðu þingmenn að hlaupa undir bagga með VG.  Í atkvæðagreiðslunni um icesave lögin fyrir tæpu ári síðan var sett upp margföld atkvæðagreiðsla, samningurinn / þjóðaratkvæðagreiðsla osfv, þannig að þingmenn VG gátu verið á móti sitt á hvað og samt komið icesave óskapnaðinum í gegnum þingið.

Staðreyndin er sú að fjórflokkurinn þorir ekki með nokkru móti út í kosningar þess vegna verður boðið upp á leiksýningar við Austurvöll áfram á nýju ári.


mbl.is Samráð um hjásetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Ágústsson

Furðuleikhúsi Austurvöllur ohf

Magnús Ágústsson, 20.12.2010 kl. 10:44

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er spurning hvort við ættum ekki að gera Furðuleikhúsið að sf nafni, þar sem hægt er að sækja persónulega á hvern og einn þegar illa fer.  Þá myndu sennilega fleiri Lilju viljað kveðið hafa.

Magnús Sigurðsson, 20.12.2010 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband