Lítil stórfrétt.

Það er undarlegt að svona fréttir skulu ekki hafa verið mun fleiri  en raun ber vitni síðan kreppan skall á.  Orka í formi hita og rafroku er næg á Íslandi.  Matvælaverð hefur rokið upp í heiminum frá því 2008 með þeim afleiðingum að byltingarástand ríkir víða.

Fram kemur í bókun bæjarráðs Grindavíkur að með þessu skrefi er stigið fyrsta skrefið í verkefni sem gæti skapað 50 til 70 störf.  Sjálfur bý ég í bæjarfélagi sem hefur því sem næst ótakmarkað landrými og orku í formi heits vatns.  Það er ekki stór upphæð fyrir bæjarfélag að leggja fram 750 þús til að kanna hvort hægt er að koma á fót atvinnustarfsemi sem skapar 50-70 störf. 


mbl.is Leggja fé í ylræktarver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

svo mikið rétt hjá þér Magnús

ég spyr hvert fóru allar nýjar hugmyndir um atvinnutækifæri sem og nýsköpun

svo þekkjum við nú flest fisk - en þar vill ekki nokkur maður vinna svo vel fari í dag .......blblblb

Jón Snæbjörnsson, 25.2.2011 kl. 10:34

2 identicon

Þeir eiga auðvitað að gera þessi gróðurhús loftþétt og dæla svo koltvísýringi inn í þetta sem stóreykur vöxt allra planta....  (..þessi baneitraða lofttegund, eða þannig.)

palli (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 10:51

3 identicon

Ég hef ekki orðið var við neinar kvartanir um að of fáum vörubílsförmum af tómötum sé sturtað á haugana. Og ég get ekki séð neitt frábært við það að bæjarfélög fara út rekstur þar sem bullandi samkeppni ríkir nú þegar með tilheyrandi offramleiðslu, undirboðum og tapi.

Bússi (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 10:58

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Jón, þetta eru al bestu bestu og raunhæfustu aðgerðir til að skapa atvinnu á suðurnesjum sem ég hef heyrt um í mörg ár.  Betri en stálpípuverksmiðja, álver, ganaver, kísilverksmiðja og jafnvel kexverksmiðja völvu vikunnar.  Ekki kæmi á óvart að hún yrði að veruleika fyrr en allar hinar stórframkvæmdirnar.

Magnús Sigurðsson, 25.2.2011 kl. 11:51

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Palli, ekki svo galin hugmynd og þá yrði Ísland orðið umhverfisvænt, eða þannig.

Magnús Sigurðsson, 25.2.2011 kl. 11:53

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Bússi, endilega ef þú veist um íslenska tómata á leið á haugana bentu þeim á að sturta þeim við dyrnar hjá mér.  Ég ét bara íslenska tómata, er góðu vanur, en undanfarið hafa bara fengist innfluttir tómatar í þeim Bónusum og Samkaupum sem ég versla í, þannig að mig er farið að dauðlanga í tómata.

Magnús Sigurðsson, 25.2.2011 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband