31.3.2012 | 06:59
Hat trick.
En og aftur stunda stjórnmálamenn lýðskrum, nú á að láta lýta út fyrir að kvótafrumvarpið, sem gengu út á þjóðnýtingu sjávarútvegsins hafi hagsmuni fólksins í landinu að leiðarljósi. Það væri hægt að samþykkja það ef kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar gengi út á jafnan aðgang þegnanna að auðlindinni á svipaðan hátt og var á árunum fyrir kvótakerfi.
Það vill þannig til að íbúar landsbyggðarinnar greiða nú þegar til samfélagsins eins og aðrir þegnar þessa lands í gegnum skattkerfið. En nú á að þjóðnýta vinnu þeirra sem við starfa við sjávarútveg til að ríkið hafi fjármagn til að greiða erlendum kröfuhöfum botnlausar skuldir sem stjórnmálamenn komu skuldlausum ríkissjóð í haustið 2008. Ekki dettur Steingrími eitt augnablik í hug að skera niður sjálfan sig og stjórnkerfið, heldur beitir hann sömu aðferðum og hver önnur skiplögð glæpasamtök.
Það má segja að staðan sé 3:0 fyrir gamla Ísland núna tæpum fjórum árum eftir hrun. Náhirðin sem setti Ísland á hausinn nýtur ævikvöldsins á fínum eftirlaunum greiddum úr ríkissjóði, landsliðið í kúlu hefur afskrifað skuldirnar af sjálfu sér með afrakstur kúlulánanna í verðtryggðu skjóli ríkisins og helferðarhyskið sér um þjóðnýta vinnandi fólk til að borga brúsann. Sannkallað "Hat Trick".
Boðar ríkisstyrki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Stjórnmálaflokkar ERU skipulögðglæpasamtök.
Einar Þór Strand, 31.3.2012 kl. 07:37
sammála þér nafni og Einar ég hef oftar en einu sinni kallað þetta lið Hriðjuverkamenn
Magnús Ágústsson, 31.3.2012 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.