Hat trick.

En og aftur stunda stjórnmálamenn lýðskrum, nú á að láta lýta út fyrir að kvótafrumvarpið, sem gengu út á þjóðnýtingu sjávarútvegsins hafi hagsmuni fólksins í landinu að leiðarljósi.  Það væri hægt að samþykkja það ef kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar gengi út á jafnan aðgang þegnanna að auðlindinni á svipaðan hátt og var á árunum fyrir kvótakerfi.

Það vill þannig til að íbúar landsbyggðarinnar greiða nú þegar til samfélagsins eins og aðrir þegnar þessa lands í gegnum skattkerfið.  En nú á að þjóðnýta vinnu þeirra sem við starfa við sjávarútveg til að ríkið hafi fjármagn til að greiða erlendum kröfuhöfum botnlausar skuldir sem stjórnmálamenn komu skuldlausum ríkissjóð í haustið 2008.  Ekki dettur Steingrími eitt augnablik í hug að skera niður sjálfan sig og stjórnkerfið, heldur beitir hann sömu aðferðum og hver önnur skiplögð glæpasamtök. 

Það má segja að staðan sé 3:0 fyrir gamla Ísland núna tæpum fjórum árum eftir hrun.  Náhirðin sem setti Ísland á hausinn nýtur ævikvöldsins á fínum eftirlaunum greiddum úr ríkissjóði, landsliðið í kúlu hefur afskrifað skuldirnar af sjálfu sér með afrakstur kúlulánanna í verðtryggðu skjóli ríkisins og helferðarhyskið sér um þjóðnýta vinnandi fólk til að borga brúsann.  Sannkallað "Hat Trick".


mbl.is Boðar ríkisstyrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Þór Strand

Stjórnmálaflokkar ERU skipulögðglæpasamtök.

Einar Þór Strand, 31.3.2012 kl. 07:37

2 Smámynd: Magnús Ágústsson

sammála þér nafni og Einar ég hef oftar en einu sinni kallað þetta lið Hriðjuverkamenn

Magnús Ágústsson, 31.3.2012 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband