24.7.2012 | 20:10
Áfangi 101 í ímyndun fyrir fábjána.
Hérna kemur enn eitt fræðslumyndbandið um það hvernig heimurinn verður til fyrir eintóma ímyndun. Eins og grínistinn Bill Hicks komst að orði þá ert þú ímyndun eigin hugsana og getur því breytt heiminum að vild. Á það sama hefur verið bent af ekki minni spámönnum en Gandih, Buddha og Jesú Kristi ásamt mörgum fleirum. Ef þú vilt breyta heiminum byrjaðu þá á sjálfum þér, við að mála þá mynd sem þú vilt sjá notarðu ímynunarafl en ekki steingelda rökfræðina 2+2=4.
Þegar ég sá þetta video sem hér er kynnt til sögunar vissi ég að hér var vísindaleg sönnun á ferðinni um það að hver og einn hefur allt vald í sínu lífi, það er bara spurning um það hvernig það er notað. Mér varð meir að segja svo mikið um að ég bloggaði um þetta myndband á sínum tíma og tók hálfs árs frí frá bloggi á þessari síðu í framhaldinu til að sökkva ofan í viðfangsefnið laus við allt dægurþras. http://magnuss.blog.is/blog/magnuss/entry/1009444/
Þó ég hætti að blogga um dægurþras um stund þá breytti það samt ekki því að ég birti niðurstöður þess sem ég varð áskynja í rannsóknarvinnunni. Til þess notaði ég sparisíðuna þar sem ég forðast eins og heitan eldinn að nefna það að fólk sem hefur verið hvít skrúbbað á milli eyrnanna af menntakerfinu gæti átt á hættu að öðlast gráðu til fábjána. http://maggimur.blog.is/blog/maggimur/entry/1068933
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 20:12 | Facebook
Athugasemdir
þu ert seigur i þessu Magnus . erviðasta verkið er alltaf að hafa stjorn a tilfinningum og hugsunum mans
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 24.7.2012 kl. 21:47
http://www.youtube.com/watch?v=DfZjeLN5w_E
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 24.7.2012 kl. 21:53
Þetta er satt Helgi enda er það með hugsum sem maður býr til veruleikann og með tilfinningunni sem maður öðlast hann.
Sýnist videoið fjalla einmitt um þetta eða með öðrum orðum "Það er ekki það sem kallað er staðreynd sem skiptir máli heldur viðhorfið".
Magnús Sigurðsson, 25.7.2012 kl. 04:22
Þið allir þrír eruð greinilega á sama máli..:)
http://www.youtube.com/watch?v=5LLq96yzONo
Sólrún (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 14:22
Þetta eru skemmtilegar hugvekjur frá ykkur. Svo er það eins víst og meistarinn sagði "verði þér að trú þinni".
http://www.youtube.com/watch?v=e7kDWGIQcnw
Magnús Sigurðsson, 25.7.2012 kl. 19:36
Allt í einu mundi eg eftir honum Reyni sterka.
Sá álét nú ekki mikið yfir sér og var
hvorki útblásinn af monti eða sterum.
Einstakt prúðmenni að sögn þeirra sem þekktu hann.
http://www.youtube.com/watch?feature=endscreen&v=351Bje9-Nx0&NR=1
Sólrún (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 23:02
Sólrún getur þu sent mer e-mail mig langar til að senda þer nokkrar myndir af orginite eg er að sja oturlega hluti her email adresan min er h----61@v----.is en er viss um að þu getir giskað i eiðurnar
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 26.7.2012 kl. 09:34
Gaman að þú skulir minnast á Reynir Sólrún. Ég var einmitt að segja þeim vinnufélögum mínu quantum sögur í vetur og tók einmitt Reynir sem dæmi. Mér er það minnisstæðast hvernig hann gat vöðlað saman 50 króna mynt á milli fingranna. Svo man ég það nú ekki lengur hvort það var hann sem gat beygt hnífapör með hugarorkunni, eða einhver annar?
Svo rakst ég á þennan núna á eftir Reyni, lok viðtalsins eru nú aldeilis ekki ónýtt.
http://www.youtube.com/watch?v=4h8c_WWkv58&feature=related
Magnús Sigurðsson, 26.7.2012 kl. 19:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.