6.5.2021 | 20:09
Eru ekki allir í stuði?
Nú er aldeilis kátt í Höllinni á bólusetningadögum heilbrigðisiðnaðarins, sannkölluð Þórðargleði. Ice Hot One töff í dag eins og sá klári, -æðstistrumpur og popparinn. Heilbrigðisráðherfan, ný bólusett blessunin, sagði að þetta væri svolítið eins og í söngleik.
Heyrst hefur að þeir sem líði út af séu bornir til hliðar og að þeim hlúið, þangað til þeir ná að skjögra heim í fráhvarfi, -sem staðfestir jú bara stuðið.
Facebook vinur minn var ekki í hátíðarskapi með Dadda disco plötusnúð í dag. Á vegginn hafði hann skrifað þetta:
Fékk í vikunni boð í "bólusetningu", mitt svar til þeirra "Sæl verið þið. Ég hef verið boðaður í bólusetningu 06.05.21 klukkan 11:00.
Þar sem ég hef ekki nokkurn áhuga á að gerast tilraunadýr fyrir alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem stjórnað er af siðlausum glæpamönnum, þá getið þið strokað mig af þessum lista ykkar.
Þá vil ég einnig benda ykkur á að þið sem takið þátt í að sprauta þessu efni, sem þið kallið "bóluefni", í fólk, munið eflaust ekki geta frýjað ykkur af ábyrgð ef/þegar þetta tilraunaverkefni fer illa. Ekki frekar en böðlar Hitlers sem voru bara að framfylgja skipunum og vinna sína vinnu, við vitum flest hvernig fór fyrir þeim. Kveðja"
Já, sumir lemja hausnum við steininn, á meðan flestir eru í taumlausu stuði innan um alla þá sem snappa með selfý. Sjálfur er ég farin að þrá kyrrðina til fjalla.
![]() |
Þjóðhátíð í Laugardalshöllinni í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður.
Veit ekki hvort ég á að gráta eða hlægja, vegna skefjalauss stuðs í höllinni.
Múgsefjunin og hræðsluáróðurinn hefur tekist fullkomnlega.
Held ég gráti, því staðan er grátleg.
Nú, rétt rúmu einu og hálfu ári eftir að veiran komst á kreik í alþjóðasamfélaginu, er búið að ´´finna upp bóluefni´´ gegn henni og sprauta í hundruði milljóna manna.
Er hægt að tala um fullrannsökuð langtímaáhrif á svo skömmum tíma?
Ég bara spyr.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 7.5.2021 kl. 00:58
Sæll Halldór, ég hef grun um aðþað séu vegabréf á suðrænar slóðir heilli margan, á meðan aðrir eru fyrir ferðir um fjallabök.
Vonandi fer þetta vel til lengri tíma, en mér skilst að það séu fleiri slappir um stund en bara þeir sem líða út af í Höllinni.
Með kveðja úr efra suður.
Magnús Sigurðsson, 7.5.2021 kl. 04:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.