Landráðaliðið

Landsmenn fljóta nú að feigðarósi með augun, vatnsblá glær og galtóm límd við snjall skjáinn. Sjónlausir á það hvað missir fullveldis kostaði í 7-800 ár með öllum sínum hörmungum. Gullaldir þessarar þjóðar hafa verið tvær í þessu landi og báðar með fullveldi.

Og nú er svo komið að fjárplógsfólk ræður allri umræðu og er langt komið með að skipta um þjóð í landinu. Mikið af nýju þjóðinni þekkir ekkert annað en júníonið og svo að búa við velmegnum á Íslandi, en það tvennt á enga samleið eins og sagan sannar.

Þetta vita þeir sem aldir eru upp á Íslandssögunni og eru færir um að halda henni til haga, en ekki bara því sem við blasir hverju sinni á skjánum. Erlend öfl hafa aldrei náð völdum á Íslandi öðruvísi en með landráðum innanlands.

Stjórnvöld sem byggja allt sitt á fölskum forsendum, lygum og blekkingum, eru verri en engin. En alltaf virðist vera hægt að sannfæra almenning um að á því sé eitthvað að græða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það sem hann sagði.

Guðjón E. Hreinberg, 8.6.2023 kl. 16:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já rétt er það Magnús.  Heimur versnandi fer og og okkur rekur sofandi að "feigðarósi"..........

Jóhann Elíasson, 8.6.2023 kl. 18:00

3 identicon

Sæll Magnús!

Kann að vera að fyrirsögn standist sem áætlaður sveifluleiðréttur frumjöfnuður ríkissjóðs sem hlutfall af VLF!

Einhver kynni einnig að freistast til að segja:

Þetta steinliggur hjá þér, Magnús!

Húsari. (IP-tala skráð) 8.6.2023 kl. 18:17

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Svo er það spurning hvort flokka megi sveifluleiðrétta frumjöfnuð ríkissjóðs sem upplýsingaóreiðu í falsréttamennsku eða jafnvel sjálfshatursorðræðu, það þarf varla ósamstöðuleysi til þess. 

Magnús Sigurðsson, 9.6.2023 kl. 05:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband