Björgunarpakki til skuldugra fyrirtækja.

Það er spurning hvaða fyrirtæki voru höfð í huga þegar björgunarpakki ríkisstjórnarinnar var settur saman.  Það sem helst má sjá út úr þessu að bjarga eigi eignarhaldsfélögunum og bönkum sem hafa ekkert með beina atvinnustarfsemi að hafa.  Allavega er það alveg ljóst að fyrirtæki þurfa að vera í botnlausum skuldum til að hafa einhverja möguleika í þessum björgunarpakka eða í það minnsta að hafa einbeittan vilja til að stofna til þeirra.

Ég atvinnurekandi beið milli vonar og ótta eftir því hvað þessi björgunaráætlun hefði að geyma.  Nú þegar hún er fram kominn sé ég ekki eitt atriði sem gagnast gæti mínum rekstri eins og staðan er, enda varla von þar sem mitt fyrirtæki er verktakafyrirtæki.  Nú sem oftar virðast bara þau fyrirtæki sem skulda það mikið að bankarnir veigra sér við að gera upp eiga bestu lífsmöguleikana.


mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Þetta er afar yfirborðskennt verð ég að segja.

Hulda Margrét Traustadóttir, 2.12.2008 kl. 20:53

2 identicon

Ég er í sömu sporum. Búin að vera að bíða eftir aðgerðapakkanum fyrir fyrirtæki.

Nú sé ég bara fram á að bankinn yfirtaki fyrirtæki mitt upp í skuldir.

Get ekki séð að það hjálpi mér mikið.

Iris (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband