Færsluflokkur: Dægurmál

Ríki Orwells í Egyptalandi.


mbl.is Múbarak setur á útgöngubann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu hætt að verpa.

jóhanna 

 

Sem stjórnmálamaður og ráðherra til margra áratuga ætti Jóhanna að hafa dregið sig í hlé haustið 2008 , sem og margir fleiri stjórnmála menn sem enn sitja sem fastast á launaskrá þjóðarinnar.  Ekki dettur Jóhönnu í hug að bryðjast afsökunar á 280 milljóna klúðri , enda smá aurar miðað við gjaldþrot Íslands.  Líkt og áður á fólk ekki að leita sökudólga heldur horfa til framtíðar.

Það að Jóhanna skuli hafa verið gerð að formanni SF og forsætisráðherraefni á sínum tíma var hreint lýðskrum eins og öllum er orðið ljóst nema henni sjálfri.  Ákvörðun SF var þvílíkur blekkingarvefur að helst má líkja við manninn sem fór til læknis og sagði honum að konan hans væri orðin eitthvað skrítin, hún héldi að hún væri hæna.   Læknirinn rétti honum töflu glas og sagði; gefðu henni eina svona og þá mun þetta lagast.  Þú ert nú eitthvað að miskilja þetta, sagði eiginmaðurinn við lækninn, við í fjölskyldunni þurfum egg.


mbl.is Biðst ekki afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland.

Og Haukur með sigurinn.  Ekki það að fleiri tónverk hefðu ekki getað hæft stað og stund þegar elítan kemur saman til að fagna afrekum sínum..

 

 


mbl.is Haukur verður með fyrsta tónverkið í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byltingin í N-Afríku og fjölmiðlar.

Netsamband og sms-þjónusta liggur nú niðri um allt Egyptaland, en þessi samskiptaform hafa verið notuð til að skipuleggja mótmæli víða í N-Afríku undanfarnar vikur m.a. Túnis. 

Það er greinilegt að elítan á vesturlöndum á orðið sinn fulltrúa við mótmælin Egyptlandi  en Mohamed ElBaradei, sem er handhafi Friðarverðlauna Nóbels mun taka þátt í mótmælunum.  Því má búast má við að mótmælunum þar verði gerð góð skil í fjölmiðlum.

Það er athygliverð fréttaskýring á Aljazeera um byltinguna í Túnis og aðkomu fjölmiðla að fréttum þaðan.  Í þættinum er meðal gefin sýn á ný fjölmiðlalög í Ungverjalandi sem fer nú með forsæti ESB.  Ekki kæmi á óvart að þrengt verði að netinu og samskipta síðum þess víðar í heiminum í kjölfar þessara rósta í N-Afríku.

 


mbl.is Ráðherra varar mótmælendur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem verður skattlagt næst.


mbl.is Eykur líkur á greiðsluþroti ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn geispar greiningadeildin.

Þeir gætu örugglega sparað talsverða peninga hjá Íslandsbanka með því að loka greiningadeildinni, og setja tengil á "before it´s news".  Það er leitun að annarri eins atvinnubóta vinnu og þar er stunduð, nema að þessi deild sé rekin í þeim eina tilgangi að blekkja almenning.

Það vita það allir að matarverð hefur farið hækkandi og mun hækka stórlega á næstunni, þessi greining er einungis samantekt á því sem allir, sem ekki eru algerlega úr tengslum við fréttir vita.   

Mig langar til að benda á stutta grein eftir eftir Valgarð Egilsson lækni um matvæla öryggi, sem birtist í Fréttablaðinu og á viðtal við Gerald Celente til mótvægis við  geispið frá greiningadeildinni.

 


mbl.is Landbúnaðarvörur hækka á heimsmarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moving Forward.


mbl.is Of dýrt fyrir Bandaríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að trúa á Darwin.

Það er greinilega ekki til vinsælda að trúa ekki á Darwin.  Það fékk stjörnufræðingurinn Martin Gaskell að reyna þegar háskólinn í Kentucky hafnaði honum um starf forstöðumanns nýrrar rannsóknarstofu á trúarlegum forsendum. 

Fyrir það eitt virðist honum hafa verið hafnað, að greina frá því á fyrirlestrum hjá hópum trúaðra háskólanema að hann ætti í engum erfiðleikum með að samræma biblíuna við þróunarkenninguna en það væru hins vegar meiriháttar gallar á kenningunni.  Þá mælti hann með við nemendurna að þeir læsu sér til í verkum gagnrýnenda þróunarkenningarinnar. 

Það þarf hvorki að lesa Biblíuna, Buddha eða nokkur trúarrit yfir höfuð til að getað tekið undir með sjónarmiðum Gaskell um að á þróunarkenningunni eru meiri háttar ágallar, til þess er nóg að líta í eigið hjarta.  Þessi afstaða Kentukcy háskóla sínir hverskonar trúarbrögð akademísk vísindi geta verið, þegar þeir  eru útilokaðir frá starfi sem mæla með við nemendurna að þeir lesi sér til í verkum gagnrýnenda þróunarkenningarinnar.  Með því er verið að útiloka aðra þekkingu en akademíunni er þóknanleg. 

 


mbl.is Sköpunarsinni fær bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bullshit í boði BBC.


mbl.is Synti stanslaust í níu daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn klýfur hún þjóðina.

Hvaða þjóð er sú gamla að tala um? kannski þessi 36% sem kusu? 
mbl.is Kemur ekki til greina að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband