Færsluflokkur: Dægurmál

Rugludallar


mbl.is Töldu tillöguna heldur ekki bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ISIS - afsprengi vesturlanda.

Dag eftir dag bunar bullið sem skiptir litlu sem litlu máli í hinu stóra samhengi. Halda mætti að skammtíma minni kranablaðamannanna hafi glatast þegar fréttaskýringarnar buna úr krananum.


mbl.is Gríman féll og dulúðin hvarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blámóðu-gosið.

IMG_3783

11. febrúar s.l. sást síðast greinilega til gasmökksins á Héraði, þar sem hann kom yfir Fljótsdalsheiðina og lagðist yfir Fljótsdal, Hallormstaðaháls og Skriðdal.

Það má segja að eldfjallafræðingur í "helgum stein" hafi haft 100% rétt fyrir sér varðandi þessi goslok. Ef ég man rétt spáði Haraldur Sigurðsson goslokum í byrjun mars 2015 fyrir mörgum mánuðum síðan.

Eldgossins í Holuhrauni verður sennilega helst minnst vegna blámóðunnar sem lagðist yfir landið. Allavega voru fáir sem fengu að sjá gosið með eigin augum, aðrir en þá sérvaldir, eftir að ríkislögreglustjóri og almannvarnir lögðu bann við því. Sennilega hefur ekki áður verið lokað eins stóru landsvæði fyrir almenningi, allt í nafni öryggis. Eins og gasið í blámóðunni haldi sig innan marka stjórnvalda.

Blámóðan skreytti himininn dögum saman austanlands þar sem mengunargildin mældust víða langt yfir heilsuverndarmörkum. Þó svo að ekki hafi mátt nálgast gosið til að berja það augum þá hefur verið einstök upplifun að fylgjast með því hvernig gasmóðan hefur litað himininn.

Gasmyndir.

Videoið hér fyrir neðan er tekið á Stöðvarfirði helgina eftir að gosið í Holuhrauni hófst.

 


mbl.is Eldgosinu í Holuhrauni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldingar og rafsegulstormar.


mbl.is Dularfullt ský á Mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að drepa á dreif.

Þeir Kaupþings kumpánar voru dæmdir fyrir markaðsmisnotkun ef, rétt er skilið. Sjeikinn keypti hlutabréf í bankanum með peningum sem bankinn lánaði sjeiknum. Engir peningar fóru út úr bankanum.

Þetta voru sýndarviðskipti án fjárútláta, öfugt við þann fjölda sýndarviðskipta þar sem bankinn lánaði innherjum sem leistu út söluhagnað hlutabréfa sinna en bankinn átti síðan lánsveðin í eignalausum einkahlutafélögum.

Það hlýtur alltaf að vera lágmarks krafa að opinbera hvað lá að baki þeim ákvörðunum sem urðu til þess að gjaldeyrisforða þjóðarinnar var sólundað. Að kanna bótarétt þessara sýndarviðskipta sértaklega er að drepa málum á dreif.


mbl.is Lánað tveimur vikum eftir brotin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vetur skógarmanns.

Einfaldleikinn er óvenjulegur og það þarf visku til að finna hann, einhvernvegin þannig fórust Paulo Coelho orð í bókinni Alkemistinn þegar hann lýsti ferðalagi fjárhirðis frá Andalúsíu á Spáni yfir til Afríku, síðan þvert yfir Sahara að píramídum Egiptalands þar sem hann taldi fjársjóð vera að finna, en komst þá að því að hans fjársjóður var fólgin hjá rolluskjátunum heima í Andalúsíu.

Kristur dvaldi í 40 daga út í auðninni til að reyna sjálfan sig og stóðst að því loknu tilboð djöfulsins um að erfa öll ríki veraldar fyrir sál sína. Sumir klífa fjöll á meðan aðrir fara í margra daga öræfaferðir til að vera með sjálfum sér. En fyrir okkur sem ekki erum líkleg til stórræða getur verið einfaldast að slökkva á sjónvarpinu og hlusta á vindinn gnauða á gluggann.

Paul Myburgh dvaldi í sjö ár úti í Kalihari eyðimörkinni á meðal síðustu original búskmannana. Í bókinni hans "Bushman winter has come" segir; að í auðninni þar sem andinn er einn með sjálfum sér,geti hver og einn fundið hvað er satt og rétt til þess að lifa. Horfst í augu við óendanleikann, þar til ekkert berst til þín lengur og þú ert neyddur til að leita inn á við. Þegar svo allt sem þú ert og allt sem þú ert ekki stendur fyrir framan þig, þá geturðu valið um hvaða hugsun verður að veruleika.

 


Hvað er TISA?

Á þessari stundu tekur Ísland þátt í leynilegu samningaferli. Það er ljóst að samningurinn, TISA, gengur mest og best út á að við afsölum okkur réttindum og völdum sem hingað til hafa verið talin sjálfsögð. Hliðstæðir samningar sem elítan ætlar að koma í gegn eru Trans-Pacific Partnership (TPP) og Transatlantic Trade and Investment Partnership (T-TIP). Í stuttu máli þá er verið að reka endahnútinn á samninga sem tryggja að 65% mannkyns beygi sig enn frekar undir ægivald fjölþjóðafyrirtækja og risabanka. meira


mbl.is Leyndin nær líka til ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óseðjandi ófreskja.

Almannaréttur íslendinga til umgengni á eigin landi hefur verið til staðar frá landnámi. Með náttúrupassa er meiningin að láta íslendinga greiða sérstaklega fyrir þann rétt. Ráðherrar og æðstu valdastofnanir ríkisins komast alltaf nær því að hegða sér eins og hver önnur skipuleg glæpasamtök gagnvart eigin þjóð.

Þrátt fyrir að ferðamannafjöldi hafi tvöfaldast á örfáum árum með tilheyrandi aukningu skatttekna fyrir ríkissjóð, þrátt fyrir sérstakt gistináttagjald sem lagt var á fyrir örfáum árum til uppbyggingar ferðamannastaða (en hefur nú verið ráðstafað í hýtina) og þrátt fyrir virðisaukaskattskerfi sem mætti beita til að ná inn auknum tekjum fyrir klanið, þá dettur því helst í hug að setja upp nýtt bákn sem kallast náttúrupassi. Í nafni hans verður hægt rukka hvern þann íslending sem opnar augun á morgnanna.


mbl.is Ráðherra valdi verstu leiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sacred Geometry (heil­ög hlut­föll)


mbl.is Hof Ásatrúarmanna rís 2016
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússíbani.

Eins og þeir þekkja sem hafa farið í rússíbana þá getur ferðalag í þeim snúið innyflum á hvolf. Síðastliðinn sunnudag lenti ég í rússíbana sem snéri við fleiru í mér en innyflunum einum.

Aðdragandinn að ferðalaginu var stuttur þó merki um ferðina væru farin að gera vart við sig rétt fyrir hátíðarnar, 19. des átti ég nefnilega erfitt með að bera sementspoka upp á 3.hæð vegna mæði. En ástæðan gat vel verið sú að ég bar þá í kappi við mér yngri menn. Á aðfangadag byrtist mæðinn óvænt upp úr þurru og á laugardeginum eftir jól átti ég í fullu fangi með að koma mér tómhentum upp og niður stigana heima hjá mér vegna mæði og brjóstverkja.

Þetta var náttúrulega allt helvítis gigtinni að kenna enda þekki ég það á eigin beinum að það er betra að strekkja áfram en að slaka á í glímunni við hana. Þessa speki upplýsti ég svo heilsugæslulækninn um á fyrsta virka degi eftir jól, eins það að þessi heimsókn mín til hans væri til að friða nákomna því það væri löngu útséð með hverju þessar þrautir sættu hvað mig varðaði. Með lagni fékk læknirinn mig til að fara í hjartalínurit og blóðprufu, svona til öryggis. Sagði svo eftir að hafa lesið línuritið hvort ég vildi ekki fara í þrekpróf til hjartalæknis til frekara öryggis.

Þannig fór ég inn í áramótin með mína hefðbundnu gigtarverki auk mæði. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli frá mínum nánustu um að ég hætti að þrjóskast við að sjúkdómsgreina mig sjálfur þá tók ég út mína gigtarverki, það var ekkert að mér sem ekki myndi lagast þegar dagarnir tækju upp sinn vanagang. Svo var það núna á sunnudaginn að ég komst ekki lengur á milli herbergja heima vegna verks og mæði sem ekki vildi líða hjá, varð á endanum að mjálma á hana Matthildi mína um að hringja í lækninn.

Eftir það var ekki aftur snúið rússíbana ferðin far hafin. Læknirinn mætti með sjúkrabíl og aðstoðarmenn og ég var tekin fumlausum tökum eftir að fullreynt var með að hefðbundin meðul unnu hvorki á mæðinni né verknum. Ferðin niður þrönga stigana í Útgarðinum var fyrsta salí bunan þar sem ekki var auðvelt að átta sig á hvað sneri upp eða niður hvað þá heiglum hent að halda börunum láréttum í þrengstu beyjunum. Þegar niður kom tók sjúkrabíllinn við niður á heilsugæslustöð,Þrátt fyrir ítrekaðr sprautur þá var þrálátur verkurinn kominn jafnharðan, því var gerð lokatilraun til að fá gigtargreininguna samþykkta á mill þess sem ég spjó. Í bílskýlinu á sjúrahúsinu á Egilsstöðum höfðu ælurnar bæst við, en þar var beðið eftir sjúkraflugvél fyrir næstu salíbunu

Flugvélin fór frá Egilsstaðavelli í hvössum vindi svo hvössum að öðru flugi hafði verið aflýst. Flugvélin hossaðist yfir Holuhraun með mig ælandi og vælandi með blikandi sprautur fluglæknisins á lofti sem barðist með þeim hetjuleg við að losa mig við verkina. Sem betur fer sá ég af og til grilla í hana Matthildi mína þar sem hún sat í skuti. Flugferðin var venjufremur löng vegna veðurs en tók loks enda og lemjandi rgningin á Reykjarvíkurflugvelli minnti mig á að þessari salíbununi var lokið.

Í næstu bunu var brunað með blikkandi ljósum á Landspítalann þar sem mér var síðan brunað ælandi um ganga hjartadeildarinnar á heimsóknatíma og ekki stoppað fyrr en inn á sjúkrastofu. Þar voru mér til mikilla undrunar vinir og vandamenn ásamt hjúkrunarfólki. Fljótlega kom sparifata klæddur læknir og sagði „hann hafði þá rétt fyrir sér sveitamaðurinn ég skal gera aðgerð á þér strax ef þú skrifar undir þetta blað“. Þar sem ég hef slæma reynslu af því að skrifa undir blöð án þess að lesa þau gaumgæfilega yfir þá kom á mig hik. Þá var sagt „mér er nákvæmlega sama hvort að þú stafsetjir nafnið þitt vitlaust það má þess vegna vera ólæsilegt fyrir mér en ég ráðlegg þér að skrifa undir ekki seinna en strax“. Ég var alveg orðin ráðviltur eftir allar salíbunurnar og orkaði ekki að æla gigtargreiningunni upp úr mér einu sinni enn og skrifaði undir.

Þá hófst ein salíbunan enn, en þar dró læknirinn mig vælandi í sjúkrarúmi á eftir sér um ganga og lyftur niður á hjartaþræðingu. Þar var mætt fullmönnuð áhöfn á sunnudagskvöldi með tækjabúnað sem þræddur var upp í slagaæð í náranum alla leið upp í hjarta þar sem búnaðurinn tók myndir, um leið og hann flutti vírslöngubút ásamt loftbelg sem blásin var út þegar búturinn var kominn á réttan stað þannig að slöngubúturinn þrykkti út stýflaðri æð. Læknirnn sagði „þú finnur verk er það ekki en það verður ekki mikið lengur“. Verkurinn hvarf eins og dögg fyrri sólu og læknirinn sagðist vilja draga mig sjálfur, liggjandi eins og grár skata í sjúkrarúmin, til að skila mér til hennar Matthildar minnar.

Núna tveimur dögum seinna er ég farin að rölta fram og til baka um gangana á hjartadeild LSH og þó svo ég fari ekki hratt yfir vegna mæði þá geng ég teinréttur og er orðin alveg laus við gigtina. Ég er búin að komast að því að það er jafn gott að eiga systir sem vinnur á deildinni og það að vera ráðherra, búin að fá upplýsingar um það að sveitamennirnir kunna ýmislegt fyrir sér, auk þess að hafa grun um að við eigum frábærsta heilbrygðisstarfsfólk í heimi.

Mér finnst ekki koma annað til greina en að samið verði við lækna og að þeir Þorsteinn Víglundsson og félagar taki sjálfir á sig þær launaskerðingar sem þarf þar til þeir hafa náð skuldastöðunni á við hinar norðurlandaþjóðirnar eins og var ,,,sko áður en þú veist þú veist.


mbl.is Kröfur lækna úr öllu samhengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband