Breytir engu um ices........

Samkvæmt þessum dómi halda neyðarlögin og breytir hann því engu hvað mati skilanefndar Landsbankans hvað varðar endurheimtur upp í icesave.  Neyðarlagaþegarnir geta einnig andað léttar. 

Eina efnislega breytingin sem var gerð á fyrri icesave samningi sem þjóðin hafnaði og þeim sem nú er í boði er 8. grein fyrri samnings var sleppt í icesave3   Greinin sem sögð er hafa fengið margann neyðarlagaþegann frá því haustið 2008 til að meta málið út frá "ísköldu hagsmunamati". 

Greinin hljóðaði svona; 

8. gr. Endurheimtur á innstæðum.
Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave-reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave-reikningunum voru fluttar. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.
Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess að þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnast hafa vegna Icesave-reikninganna verði látnir bera það tjón.

Þær eru athyglisverðar upplýsingarnar sem eru að koma fram þessa dagana um það hvernig stórleikarar í íslensku viðskipta- og stjórnmálalífi gátu selt hluti sína í Glitni og fleiri gjaldþrota fyrirtækjum rétt fyrir hrun.  Sérstaklega í ljósi þess að eina efnislega breytingin á icesave 2 og 3 er að 8. gr. er sleppt. 

Ískalt hagsmunamat hvaðan halda menn að peningarnir hafi komið sem notaðir voru til að kaupa verðlaus hlutabréf korteri í hrun?

Heykvíslahjörðin, ómenntaða liðið og landsbyggðarskríllinn hefur verið notað til að lýsa þeim sem segja NEI við icesave.  Þessi lýsingarorð eiga ágætlega við fólk sem hefur hjartað á réttum stað.   Rökin fyrir því að segja NEI eru einföld og skýr.  Þau kristallast m.a. í þessu myndbroti.

 


mbl.is Heildsöluinnlán forgangskröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Getur þú kannski útskýrt nánar hvaða hópur það er sem þú kallar landsbyggðarskríl, heykvíslahjörð og ómenntað lið? Veit ekki betur en þeir sem stýrðu bönkunum hafi verið bæði vel menntaðir, búsettir í miðbænum og gengið í armani jakkafötum, en ekki með heykvísl í hönd. Samt tókst þeim að setja allt á hausinn með glans.

joi (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 10:21

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

joi, þeir sem þú ert að tala um hafa verið hvítskrúbbaðir á milli eyrnanna, það er stundum kallað menntun.

Magnús Sigurðsson, 1.4.2011 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband