Oh My God!

Omicron að koma á klakann segir landstjórinn, ásamt nýja stjórnarsáttmálanum. Skerið ekki lengur stjórnlaust. Forseta fífillinn búin að heiðra löggjafasamkomu þjóðarinnar og brýna hana til gamaldags stjörnugjafar fyrir þá sem hvorki þiggja fálkann né bóluefnin. Dýralæknirinn brosir kampakátur í gegnum rykið og tekur undir allt sem til vinsælda horfir. Íslenska sauðkindin verður sett á safn og veiran meira einkavædd.

Það er endanlega komið í ljós landinn situr uppi með sömu flissandi fábjánana í þungunarrofi næstu fjögur árin. Kaus yfir sig alþjóðlegan stöðugleikann enda ekkert annað í boði. Mér sýnist að mitt kjördæmi megi vel við una. Enginn er þaðan ráðherrann enda meiningin að breyta því í stórhuga þjóðgarð fyrir erlenda auðróna.

Hvað verður svo um norska laxeldið og íslenska blóðmera búskapinn í þeim garði er vandi um að spá. Sennilegast að það verði allt saman kolefnisjafnað ofan í svörðinn með innviðauppbyggðri skurðgröfu sem leggur í leiðinni ljósleiðara út um eyðisveitir mílu fyrir Mílu. Síðasta bænum í dalnum er víst meiningin að koma til Akureyris.

Nú skal fyrst og fremst efla þjóðarhag frá Cyber Monday fram á Svartan fössara með sýklalyfjuðum innflutningi og nábrókum frá Kína fyrir keisarann fatalausa. Já blessuð sértu sveitin mín og fjörðurinn spegil slétti.

Þar sem blóðmerar skreyta sinumóann fyrir verksmiðjuframleidd erlend svín, og laxinn svamlar á bakinu í blóðþorranum. Eins gott að kaupendur í viðskiptabanni fáist af loðnuvertíðinni afturgengnu.

Happy hour í höllinni, svo ég seigi ekki meir - Guð blessi Ísland.


mbl.is Ómíkrón berist til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Jamm.

Guðjón E. Hreinberg, 29.11.2021 kl. 14:46

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það virðist ekki vera neitt lát á þeirri ógæfu sem ríður yfir landið þessa stundina, en mér segir svo hugur að ný ríkisstjórn sé mun meiri ógn við landið en þetta nýja afbrigði af veirunni..........

Jóhann Elíasson, 29.11.2021 kl. 21:25

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka ykkur fyrir innlitin Guðjón og Jóhann.

Satt er það Jóhann og ekki síður landið, miðin og sauðkindina. Að gera heilbrigðisráðherrann að landbúnaðarráðherra, sem hefur fengist við veiruna s.l. tvö ár, lýst mér hreint ekki á.

því  mér segir svo hugur að styttist nú óðfluga í að sauðkindinni verði komið fyrir í laxeldiskví án þess að hagur svína, hænsna og blóðmera batni.

Magnús Sigurðsson, 30.11.2021 kl. 06:20

4 Smámynd: Magnús Rönning Magnússon

Góður nafni.

Magnús Rönning Magnússon, 30.11.2021 kl. 06:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband