Gömul steypa

Það hefur sjálfsagt farið framhjá fáum að þessari síðu ritstýrir steypukall, sem hefur einstöku sinnum komið til hugar að skrifin séu það merkileg að þau ættu heima á prenti. Vegna óstöðugleika hugarfarsins hefur lítið orðið úr, og sjaldan hafa aðrir séð ritsmíðarnar sömu augum. Kannski er þetta vegna þess að síðuhafa finnst þjóðsagan mun merkilegri en sú skólaða, -hafa skal jú það sem sannara reynist, -eða þannig.

Einu sinni fyrir margt löngu reyndi ég að fá skrif birt í tímariti, þau skrif voru náttúrulega bara steypa um gamla steypu og ekki við hæfi málefnalegs tímarits, en var samt komið í annarskonar rit. Ritstjóri þess sagði mér, nokkru eftir að það kom út á prenti, og þegar hann vissi hver ritdólgurinn var, að af þessum skrifum hefði hann bæði haft raun og mæðu.

Hann sagði eitthvað á þá leið að ekki hefði verið gert ráð fyrir svona barnaskap í heimildariti og neyðarlegustu gagnrýnendur ritsins hefðu þar að auki látið í veðri vaka að þetta væri eitt af því fáa sem væri rétt með farið. Ég gat huggað hann með því að þetta væru náttúrulega ekki heimildir heldur barnalegur hugarburður.

Þar sem andleysi hefur hrjáð mig undanfarið, þá birti ég þennan hugarburð mér til andagiftar og sem sérstaka sárabót fyrir þá sem eiga það til að líta hér inn og grípa í tómt, -sem broti úr bók daganna.

- 0 - 0 - 0 - 0 - 0 -

Ég hafði komið hingað í bæinn fyrir nokkrum vikum til að vinna ákveðið verk ásamt vinnufélögum mínum. Nú þegar ég stend hér síðdegis í miðsumarsólinni finnst mér eins og tíminn hafi staðið í stað en þó flogið áfram.

Hér á þessum bletti man ég fyrst eftir mér um fjögurra ára aldurinn. Einhvern veginn koma freknur og svíðandi sólbruni fyrst upp í hugann en það er eins og vanti moldina sem alltaf rauk upp í suðvestangolunni á svona heitum dögum. 

Það er reyndar margt fleira sem er breytt. Í þessari brekku þar sem áður var fjalldrapi, berjalyng og holtasóleyjar breiðir nú blá lúpína úr sér inn á milli trjánna og vindurinn þýtur í laufinu.  Héðan sést yfir mestan hluta bæjarins, þó best yfir elsta hlutann; Lagarás, Selás, og Laufás en að baki er hæðin, en ég stend nú fremst í henni gengt Selásnum.

Húsin í gamla bænum standa lítil inn á milli hárra trjánna en áður voru húsin stór og trén lítil. Snyrtilegar gangstéttar liggja meðfram götunum og bílarnir þyrla ekki lengur upp rykmekki. Þorpið eins og ég minnist þess fyrst, var aðeins um það bil einn fimmti af því sem nú er. 

Þá voru hús við Selás, Laufás, ytri hluta Lagaráss og innri hluta Tjarnarbrautar út að húsinu hans Egilsens. Gaggabúð stóð mitt á milli þar sem Búnaðarbankinn og Pósthúsið standa nú og búð Verslunarfélagsins á neðri hæðinni í Odda. Kaupfélagið er á sama stað og áður en nú eru braggarnir horfnir og reisulegri hús komin í þeirra stað. Tehúsið var innst í þorpinu og skólinn ystur. Útgarður, sem þá var kallaður Búbót, var nánast langt út í sveit. 

Hæðin var að mestu leiti nýbyggingarsvæði nema Hamrahlíðin.  Þá voru engin götunöfn, húsin hétu hvert sínu nafni. Samkomuhúsið Ásbíó stóð þar sem Shell er núna  Þar voru haldnar almennar samkomur, bíósýningar og böll. Skammt utan við Ásbíó var tukthúsið þannig að stutt var að fara með þá sem fóru yfir strikið.

Það var hérna á hæðinni sem ég lifði mín æsku ár. Einmitt hérna undir þessum kletti reyktum við Maggi í Kongó fyrstu sígaretturnar. Það var filterslaus Camel úr pakka sem einhver hafði misst. Við þurftum að kveikja í fyrstu sígarettunni í ruslatunnunni hjá Halldóri úrsmið.  Það var ekki vandalaust. Sviðnir á augnabrúnum og hári sáum við að best væri að kveikja í þeirri næstu með stubbnum og svo koll af kolli. Við reyktum sjálfsagt einar fimm en þá var Maggi orðinn öskugrár og vildi fara heim. 

Hann hafði pakkann með sér. Ég sá Magga ekki meir þann daginn og Camelpakkann aldrei framar, því sá mamma hans fyrir. Ég man að mér varð ekki meint af Camelnum og þannig varð það nú reyndar einnig við fyrstu kynni mín af áfengi þó svo síðar kæmi allt annað í ljós. Vafalaust hefðu áhrifin sem Maggi hafði út úr þessu, einnig verið hollari fyrir mig.

Skammt héðan byggðu foreldrar mínir sitt hús og varð það æskuheimili mitt. Fyrst var bílskúrinn byggður, um fjörutíu fermetrar, og þar bjuggum við í fimm ár þar til við fluttum í húsið. Skúrinn hét Hábær og ég var stundum kallaður Maggi í skúrnum til aðgreiningar frá öðrum Möggum en nú er hann Bjarkarhlíð 5. 

Við systkinin vorum orðin fjögur þegar flutt var úr skúrnum haustið 1969. Pabbi var sjaldan heima á þessum árum, hann vann hjá Síldarverksmiðjunni á Seyðisfirði. Mamma var með okkur krakkana. Ég var elstur og eitt af þeim verkum, sem ég minnist að voru mér erfið, var að sækja mjólk niður í Mjólkurstöð en þá var mjólkin afgreidd á brúsa. 

Oft var erfitt að drösla brúsanum upp Mjólkurstöðvarbrekkuna og stundum heltist niður hjá mér þótt brúsinn væri ekki stór. Á sólríkum sumardögum þurfti að færa mjólkurbrúsann í kringum skúrinn eftir því hvar skugginn var. Síðar komu mjólkurpokar og enn síðar ísskápur í skúrinn. Heitt vatn var aldrei í skúrnum og fróum við stundum til Frænku í Varmahlíð til að komast í gott bað, annars var það balinn.

Þegar ég man fyrst eftir voru húsin við Hamrahlíð, og hús Kjartans Ingvarssonar og Jóhanns Stefánssonar þau einu á hæðinni.  Mig minnir að Jói og Unnur hafi byggt sitt hús um svipað leiti og foreldrar mínir byggðu skúrinn. Hæðin byggðist nokkuð hratt upp. 

Ari og Begga byggðu sitt hús rétt fyrir innan okkur við Bjarkarhlíð, Halldór og Nanna rétt fyrir neðan við Hjarðarhlíð, Völundur og Guðný við Hjarðarhlíð, Siggi og Silla að Bjarkarhlíð 1, Sveinn Árna og Stella að Bjarkarhlíð 6, og þannig koll af kolli.

Félagahópurinn samanstóð af krökkunum á hæðinni. Þetta var skemmtileg veröld að alast upp í, alltaf verið að byggja og nægar spýtur til kofasmíði, Hamrarnir með sína töfra rétt fyrir innan og leikir krakkanna báru auðvitað svip af nánasta umhverfi. Það var oft rígur á milli hæðara og þorpara sem stundum braust út í sverðabardaga og stundum í fótbolta.

Einhvern tímann um það leiti sem ég var sex ára var komið upp gæsluvelli úti í skóla.  Þangað var ég sendur mér til mikilla vonbrigða. Einn daginn kom Héðinn vinur minn, ásamt Yngva, bróður sínum, og Þór Guðmunds að leikskólagirðingunni. Þá voru þeir í einhverjum leiðangri og ég man enn hvað mér fannst frelsisskerðingin algjör þennan dag. Sem betur fór var dvöl mín á leikvellinum ekki margir dagar enda erfitt fyrr krakka, sem hafa haft ofan af fyrir sér með leikjum, að sætta sig við svona framfarir.

Í mínum augum var heimurinn svo sem ekki stór fyrir utan hæðina á þessum árum. Það voru þau Ari og Bjarghildur í Varmahlíð, Bjarghildur í huga okkar systkinanna aldrei önnur en Frænka enda held ég að maður hafi lengi vel getað þrætt fyrir að hún héti annað. Svo voru Dúna og Villi í Borgarfelli með stærsta strákahóp þorpsins. Þar var nú oft mikið um að vera. Rétt hjá þeim var Ingimar Þórðarson með vöruafgreiðsluna í skúr með Coca Cola merki, okkur þótti hann vera með almerkilegustu mönnum enda var það hann sem flutti kókið til Egilsstaða. Seinna flutti Ingimar vöruafgreiðsluna upp á hæð mörgum hæðarstráknum til óblandinnar ánægju. 

Stundum gerði maður sér langferð upp í Miðhús en þar bjuggu Einar og Gerður frænka mín, á meðan þau voru að byggja sitt hús í nýja hverfinu, en það var kallað þar sem göturnar með skóganöfnunum eru nú. Svo var náttúrulega Egilsstaðabúið sem hafði talsvert aðdráttarafl, þar voru meðal annars svín og voru það dýr sem ekki var hægt að sjá hvar sem var. Afi og amma bjuggu á Jaðri í Vallanesinu og hjá þeim var ég oft en þau fluttu í Egilsstaði árið 1970. Stærri var heimurinn ekki þá.

Ég held að hápunktur bernskunnar hjá mér hafi verið sumarið 1969. Það var áreiðanlega þá sem við Héðinn fórum í leiðangur með nesti inn á Egilsstaðakoll á góðviðrisdegi sem þessum. Þegar við vorum á bakaleiðinni stoppuðum við við kirkjugarðinn og lögðumst í grasið til að horfa upp í bláan himininn, sem var miklu blárri í þá daga en hann er núna. Þarna komumst við að því að við vorum akkúrat á hinum eina og sanna aldri og menn hefðu ekkert að gera við að verða eldri. Ég held að þetta hafi verið hárrétt athugað hjá okkur því eftir þetta fóru hlutirnir að verða flóknari, litirnir gruggugri og himininn pastelblár.

Það var eins og þessi bær tæki mikinn vaxtarkipp upp úr 1970 og hefði tilhengingu til að breiða hratt úr sér fram yfir 1980. Fólki fjölgaði hratt og það var mikil hreyfing á íbúum þannig að sá kjarni, sem ég man best eftir frá mínum bernskudögum, var ekki jafn auðsjáanlegur og áður. Stundum heyrðist frá Fjarðabúum að ekki væri auðskilið á hverju þessi bær ætlaði að lifa þegar menn hættu að byggja hverjir yfir aðra.

Á árunum upp úr 1971 byrjaði margur unglingurinn starfsferil sinn við byggingavinnu. Ekki var óalgengt að strákar byrjuðu í sumarvinnu um tólf ára aldurinn. Við vorum margir, strákarnir, sem byrjuðum okkar fyrstu vinnu hjá Kaupfélaginu og unnum í trésmiðjunni undir stjórn Völundar. Þá var verið að byggja núverandi kjörbúð Kaupfélagsins. Okkar helstu störf voru að naglhreinsa, skafa og stafla timbri.

Einn af þeim mönnum sem við strákarnir unnum talsvert með var Jón gamli frá Skeggjastöðum, tengdafaðir Völundar. Þegar við strákarnir lögðumst í leti og sjálfsmeðaumkun yfir því hvað leiðinlegt væri að naglhreinsa og skafa timbur þá benti Jón okkur á að líta þannig á verkefnið að verið væri að byggja upp stórt og mikið verslunarhúsnæði, sem myndi þjóna samfélaginu um ókomin ár, og seinna meir gætum við litið með stolti til þess að hafa verið þátttakendur í  því.

Þegar ég las eftirfarandi dæmisögu ekki fyrir svo löngu kom Jón upp í hugann. En hún var á þá leið að maður kom á byggingarstað á björtum góðviðrisdegi. Fyrst kom hann að smið sem var að höggva til planka, og spurði hvað hann væri að gera. Smiðurinn svaraði önugur; "Þú hlýtur að sjá það sjálfur maður ég er að höggva til spýtu". Þá kom maðurinn að múrara, sem var að hlaða vegg, og spurði hvað hann væri að gera. Hann svaraði jafn önugur og smiðurinn; "Eins og þú sérð er ég að hlaða vegg". Næst kom maðurinn að verkamanni, sem hamaðist kófsveittur við að moka sandi og maðurinn spurði hvað hann væri að gera. Verkamaðurinn ljómaði allur í ákafa sínum og sagði;  "Við erum að byggja dómkirkju". Jón gamli var mikill félagi okkar strákanna og reyndi að leiða okkur fyrir sjónir þá einföldu lexíu hvað viðhorfið til hlutanna skiptir miklu máli.

Sumarið eftir sátum við nokkrir strákarnir sunnan undir bröggunum og höfðum þann starfa að höggva til steina sem Hringur Jóhannesson notaði í orminn á Kaupfélagsveggnum. Þegar ég kem að þessari stóru mynd nú er ég ánægður með að hafa verið þátttakandi, þó það sé aðeins í einum litlum steini.

Kirkjan var í byggingu í allnokkur ár og eftir að hún komst undir þak var hún kjörinn leikvangur þar sem sett voru upp mörk við sinn hvorn enda salarins og spilaður handbolti eða fótbolti. Kirkjan var vígð sem guðshús 16. júní 1974 og daginn eftir vorum við krakkarnir af mínum árgangi fermd í henni. Á þessum áratug voru einnig byggð Mjólkurstöð, Menntaskóli, byggt nokkrum sinnum við grunnskólann, byrjað á íþróttahúsi auk alls þess aragrúa af íbúðum sem spruttu upp. Þetta voru sannkallaðir gósentímar, við unglingarnir gáum haft næga vinnu á sumrin og vaðið í peningum.

Ég man sjaldan eftir því að fjárhagsáhyggjur hafi verð til umræðu á þessum árum enda kannski óþarfi, verðbólgan sá fyrir því. Það var samt ekki allt sem háð var lögmáli verbólgu þessa áratugar. Upp úr 1970 voru sett á stofn tvö iðnfyrirtæki, skóversmiðjan Agila og prjónastofan Dyngja. Rekstur þessara fyrirtækja gekk ekki alveg snurðulaust fyrir sig og Agila lagði upp laupana 1974. Dyngja er enn til í einhverri mynd en hefur oftar en ekki átt erfiða tíma. Það má færa að því rök að hagkerfi þessa lands hafi um langt skeið verið miðað við sjávarútveg og þess vegna ekki undarlegt þótt iðnfyrirtæki í framleiðslugreinum ótengdum sjávarútvegi hafi átt erfitt uppdráttar hér sem annarsstaðar.

Áratugurinn milli 1970 og 1980 var sennilega um margt sérstakur. Raunveruleikinn var kannski um margt frábrugðin því sem hann oftast er, unglingar og jafnvel börn gátu fengið launaða vinnu og frjálsræði var að aukast. Það var þess vegna ef til vill ekki skrítið að hjá mér snérust hlutirnir hraðar á þessum árum en raunveruleikaskyn mitt og þroski.

Samfara því að hafa peninga milli handanna ánetjaðist ég víni og rataði svo í marga blindgötuna. Óknyttir mínir voru margir og nú finnst mér að þetta samfélag hafi sýnt mér mikla þolinmæði við að snúa frá villu míns vegar og í raun meiri en efni stóðu til. Tifinningin segir mér að þessi staður búi yfir meiri ró og þolinmæði en aðrir staðir. Hraðinn er oft á tíðum ekki eins mikill og niður við sjávarsíðuna en það vinnst upp með jöfnum hraða og vel það.

Sumarið 1981 varð Björg amma áttræð á sólbjörtum góðviðrisdegi eins og afmælisdagarnir hennar yfirleitt voru. Í áttræðisafmæli ömmu var margt gesta, meðal annarra Sveinn á Egilsstöðum þá á 89. aldursári og við hestaheilsu. Sveinn talaði um vegagerð fyrri ára og hversu mikil breyting hefði orðið með tilkomu vegar yfir Fagradal, uppbyggingu þessa bæjar og gæði landsins, sem enginn þekkti eins vel og gat lýst betur en hann, en hér sagði hann vera Paradís á jörðu. Sveinn hafði svo vistaskipti þennan sama sólbjarta sumardag efalaust ánægður með sitt umhverfi sem hann átti stóran þátt í að skapa.

Ég yfirgaf þennan bæ að mestu upp úr 1982. Hvar rætur manna liggja er ekki gott að segja, sjálfsagt liggja þær hér og þar eftir því hvar þroskinn og augnabliksstemming hafa haft mest áhrif á sálina. Það er orðið nokkuð síðan mér hætti að finnast þessi bær vera það sem ég kallaði heima þó stór hluti af mínum rótum liggi hér.

Þegar ég horfi, þaðan sem ég stend, í átt að Egilsstaðakollinum merlar sólin grágrænt Lagarfljótið sem hlykkjast að því er virðist frá Snæfellinu og út í bláma Héraðsflóans. Fokkerinn er að koma að sunnan og flýgur út yfir Fellin til lendingar. Túnið á Egilsstaðanesinu eru alsett hvítum rúlluböggum sem trú bernskunnar hefðu sagt mér að væru flugvélaegg. Á svona augnabliki getur fátt annað komið upp í hugann en paradís á jörð.

- 0 - 0 - 0 - 0 - 0 -

Þessi frásögn var birt í Egilsstaðabók sem kom út 1997 í tilefni 50 ára afmælis þéttbýlisins á Egilsstöðum. Hugrenningarnar áttu sér samt stað 5 árum fyrr, eða sumarið 1992. Það var svo árið 2012, -tuttugu árum seinna, þegar ég var í útlegð í Noregi að fjársjóður minninganna endurheimtist. það var þegar Matthildur mín fann gamlar videospólur og lét setja þær á dvd.

Vídeoið hér að neðan var tekið sumarið 1992 þegar frásögnin að ofan varð til. Eins og ég sagði í upphafi, -gömul steypa og hugarburður, -en videoið sýnir auk þess hvunndagshetjur, sem í sannleika sagt, gera mun á dagsins önn. Sjálfur var ég á bak við myndavélina, lemstraður eftir bílslys, en gat þó auk þess hrært steypuna. Í andleysi daganna endurtek ég hér 30 ára gamlan tíma, -og finnst það í góðu lagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegar endurminningar sem ríma við æsku mína á hæðinni.

Ólafur Arason (IP-tala skráð) 12.2.2022 kl. 13:12

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka fyrir það Óli. Ætli Hæðin hafi ekki verið víða um land á þessum árum. Þegar fólk hafði bæði getu og óskorðaðan rétt til að koma sér upp eigin þaki yfir höfuðið.

Magnús Sigurðsson, 12.2.2022 kl. 18:15

3 identicon

 Þú ert frábær ljósmyndari, Magnús. Leiðinlegt að myndirnar skuli ekki birtast þar sem fleiri sjá þær.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 12.2.2022 kl. 22:10

4 identicon

Sæll Magnús.

Þar sem einungis er að finna sviðna jörð
og land allt sem í árdaga, jörðin auð og tóm, -
þá legg ég til að þú gefir út hljóðbók hvar þú lest
allt efnið sjálfur, - og fyllir með því, hvort heldur
vísdómur eða steypa, - í þær eyður verðleikanna
sem að framan eru taldar. Margur kynni þér þökk fyrir.

(sjálfur getur þú auðveldlega staðið fyrir útgáfu þessari)

Húsari. (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 04:30

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæl Ingibjörg, þakka þér fyrir ljósmynda lofið. Kannski væri rétt að þakka tækninni fyrir allar fallegu ljósmyndirnar sem víða má finna núna seinni árin. Fasebook er ágætis síða fyrir ljósmynda sýningar sennileg betri en bloggið en ég leifi þeim að fljóta með til hliðar hérna á blogginu.

Snjallsíminn er orðin að einum færasta ljósmyndara sem völ er á, ef einhver hefur rænu á að smella á réttu augnabliki. Ég hef reyndar aldrei átt snjallsíma en hef oft með í för litla einfalda Canon myndavél, stillta á auto og ef maður dettur inn í augnablikið þá er bara að smella.

Þegar ljós og skuggar leika sér

mundaðu myndavélina kvika

leifðu sól að skína í augu þér

á meðan ský himins blika

 Flóknara er það nú ekki,

Magnús Sigurðsson, 13.2.2022 kl. 08:44

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Húsari og þakka þér fyrir heilræðin. Fyrir málhaltan og lesblindan mann er þetta ekki nein smá áskorun. Ég var reyndar einu sinni beðinn um af kennara að skrifa erindi um barnaskóla göngu mína, skrifaði um markmið hennar og helstu hápunkta.

Þetta var svo lesið upp á 60 afmæli skólans, af skörulegum upplesara. Ég lét eðli málsins samkvæmt ekki sjá mig á við þá athöfn. Ég heyrði svo af því að vel hefði verið látið af erindinu, en geri mér fulla grein fyrir því að það var alfarið frábærum upplestri að þakka.

Ætli maður haldi sig ekki bara við bloggið, hvað þá þörf varðar að pára meiningar um daginn, veginn og liðna tíð.

Magnús Sigurðsson, 13.2.2022 kl. 08:50

7 identicon

Hafðu góðar þakkir, meistari Magnús, fyrir þessa góðu lýsingu á þeim tíðaranda sem ríkti út um allt land, þegar Ísland var Ísland, á þeim miklu uppbyggingartímum sem ríktu þá í byggðum landsins.  Og gleðinni og æskuþróttinum sem við munum svo vel.  Já, þegar himinninn var alvöru blár, gróður jarðar í háskerpulitum og sjórinn beið fullur af fiski fyrir trillukarla og báta.

Þá var alltaf hábjargræðistími og allt iðaði hér af lífi dugmikillar þjóðar.   

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 12:25

8 identicon

Sæll Magnús.

Fæstum fellur að hlýða á eigin rödd.

Lestur þeirra Halldórs og Guðbergs á verkum
sínum er fjarri því að vera hnökralaus en
þeir ná því samt að koma efninu til skila og
gera það áhugavert,- og gott betur yfirleitt.

Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur hefur
lesið minningabrot Málmfríðar Einarsdóttur
seinustu vikur og með miklum ágætum, -
áhugavert og stórfróðlegt út í gegn.
Tök hennar á efninu eru ekki síður athyglisverð.

Þér er frásagnarlistin í blóð borin, 
tungutakið klárt og kvitt og ekki ólíklegt
að margur njóti þess að bergja á þeim brunni
að ég ekki segi hafsjó.

Vildi einungis nefna þetta, - þitt er valið!

Húsari. (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 15:26

9 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Pétur Örn, og þakka þér fyrir að lyfta undir pistilinn á þann höfðinglega hátt sem þér einum er lagið. Það er einmitt þetta með tíðarandann um allt land sem mér þykir svo vænt um að heyra. Þetta eru þá ekki staðlausir stafir.

Stundum hef ég haldið að það hljóti að vera barnalegt misminni og jafnvel rangfærslur að venjulegt fólk afi getað komið sér upp þaki yfir höfuðið án þess að steypa sér í botnlausar skuldir. Og það með eigin höndum í sveita síns andlits.

Foreldrar mínir byggðu litla bíl skúrinn eftir sínu höfði. Fengu síðan arkitekt í heimsókn í skúrinn til að teikna húsið og útfæra eftir sínum þörfum. Hátíðleg heimsókn sem er mér vel í minni. Hófust síðan handa án þess hafa nokkuð á milli handa annað en heilsu og bjartsýni hins unga fólks með fullan skúr af börnum.

Oft hef ég hugsað til þess að á mínu æskuheimili var heimavinnandi húsmóðir, vélvirki og fimm systkina hópur. Þar var til sími, sjónvarp og bíll, stundum tveir, -farið í ferðalög í sumarfríum. Húsnæðisskuldir fóru sennilega aldrei mikið yfir 20%, það tíðkaðist bara ekki að steypa fólki í skuldir.

Nú vinna hjónin bæði úti, -stórkuldug út yfir gröf og dauða. Hafa það sama auk snjallsímans og utanlandsferðanna, en án flestra barnanna. Húsnæðið í ævilangri skuld og jafnvel bílinn líka.

Þetta hafa verið kallaðar framfarir, en það sem hefur breyst er að fólki hefur verið meinað að koma sér þaki yfir höfuðið með eigin höndum í sveita síns andlits í samstarfi við þá sem það þarf á að halda.

Þetta er gert með regluverki djöfuls snillinga, allt undir formerkjum eftirlits, öryggis og gæða. Og nú er svo komið að skuldabagginn með þakinu eru fluttir inn í heilu lagi með CE vottaðri myglu og silfurskottum, skepnunni til dýrðar.

Magnús Sigurðsson, 13.2.2022 kl. 16:39

10 identicon

Sæll aftur.

Málfríður Einarsdóttir > Samastaður í tilverunni.

Húsari. (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 17:17

11 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér fyrir að benda á þetta Húsari, ég get ekki verið annað en snortinn af tiltrú þinni. Svo nú á sá kvölina sem á völina nema að hann hætti við allt saman. Þessi prentsverta í mér á sér ástæðu. Þannig er að ég skrifaði fyrir skemmstu pistil um Sautjánhundruð og súrkál; þegar dansinn dó.

https://magnuss.blog.is/blog/magnuss/entry/2275407/

Daginn sem hann birtist hér á blogginu var haft samband og spurst fyrir hvort í lagi væri að birta hann í tímariti, sem hefur komið út í meira en hálfa öld, nokkurskonar bók. Ég var upp með mér og samþykkti það eins og skot.

Seinna sá ég hverjir voru komnir í ritstjórn þessa rits og það runnu á mig tvær grímur, með það hvort að svo langskólagengið fólk ætlaði að fara slett steypu í kringum sig, en þessu riti hefur fram til þessa verið stýrt af allskonar fólki í gegnum tíðina, ekkert endilega latínu liði. Þannig að það kom mér ekkert á óvart að ekki væri haft frekara samband vegna súrkálsins.

Svo var það fyrir nokkrum dögum síðan að sá sem bað mig um þetta hafði samband og sagði að ekki hefði verið stemming fyrir skrifunum. Ég sagði honum að það hefði mér ekki komið á óvart. En hann sagðist vilja fá að birta þau í öðru tímariti þá með smávægilegum breytingum. Sagðist senda mér þær á mail-i ef ég væri til í slaginn.

Þegar ég fékk mail-ið þá var búið að taka út kaflann þar sem ég vitnaði í þjóðsöguna, það eina sem latínu liðið hafði aldrei fjallað um, kaflann um Rögnvald halta, en hann er fengin úr því sjaldgæfa riti Sópdyngja. Samtímaheimild sem flæktist í handriti vestur um haf með afkomendum Rögnvaldar á sínu tíma og væri glötuð annars.

Mér datt strax í hug þegar runnu á mig tvær grímur að það væri þjóðsagan sem hefði orðið til þess að skrifin fengu ekki inni. En allur pistillinn Sautjánhundruð og súrkál; þegar dansinn dó var byggður utan um frásögn Rögnvaldar halta, -þjóðsöguna sjálfa, sem oftar en ekki áhrifaríkust reynist.

Magnús Sigurðsson, 13.2.2022 kl. 17:29

12 identicon

Kærar þakkir Magnús

fyrir kraftmikið svar í athugasemd þinni.

Tek algjörlega undir allt sem þú segir þar.

Við erum svo andlega skyldir í þeim viðhorfum

að eiginlega erum við algjörir andans tvíburar.

Ítreka, tek algjörlega undir snilldarsvar þitt.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 17:30

13 identicon

Sæll Magnús.

Stundum getur það verið næsta ótilhlýðilegt
þegar vendingar örlaganna eru þann veg
að þeir sem var verið að verjast og öllu tjaldað til
að svo tækist til eru oft þeir sem fyrir margt löngu
eru horfnir af sjónarsviðinu og fá því ekki notið þess
að sjá þegar það vald sem jafnan þvældist fyrir
hrynur til grunna og umvendist í eigin lygi.

Þeir hefðu hlegið dátt að þeirri glettni sólarlagsins!

Lifðu heill!

Húsari. (IP-tala skráð) 13.2.2022 kl. 22:41

14 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þetta er mikil nostalgía hvað snertir íbúðarhúsnæði hér á Klakanum og fleira en margt fegrast í minningunni. cool

Verðbólgan hér var einfaldlega það mikil að litla eða enga þýðingu hafði að leggja fyrir í nokkur ár til að kaupa eða byggja eigið húsnæði.

Verðbólgan hér á Íslandi 1940-2008

Mörlendingar lögðu því launin sín strax í steinsteypu og þeir sem voru svo heppnir að fá lán í banka þurftu í raun ekki að greiða nema hluta lánanna til baka, því vextirnir voru mun lægri en verðbólgan. cool

Enginn átti peninga í banka nema börn og gamalmenni og á hverjum virkum morgni voru langar biðraðir fólks fyrir framan skrifstofur bankastjóranna, sem reyndi að fá hjá þeim lán út á skuldabréf eða víxil.

En bankastjórarnir gáfu oft það svar að engir peningar væru til í bankanum.

Kaupmáttur almennings var almennt miklu minni en nú, ungt fólk ók flest um á gömlum bíldruslum og utanlandsferðir urðu ekki algengar fyrr en undir lok síðustu aldar. cool

Eina vitleysan sem mörlenskur almenningur gat eytt peningunum sínum í þar til Lottóið og bjórinn komu til sögunnar var brennivín á föstudags- og laugardagskvöldum.

Og allir voru álitnir drykkjusjúklingar sem drukku áfengi á öðrum tímum, einnig þeir sem fengu sér rauðvínsglas í miðri viku.

En nú getur ungt fólk, sem býr hjá foreldrum sínum og byrjað að vinna fullt starf, lagt fyrir í hverjum mánuði til að kaupa íbúðarhúsnæði. cool

Þannig geta flest pör lagt fyrir samtals hálfa milljón króna á mánuði, 12 milljónir króna á tveimur árum, fyrir útborgun í íbúð, til dæmis 24% af verði 50 milljóna króna íbúðar. Og fengið bankalán fyrir afganginum, til dæmis 38 milljónum króna til 25 ára.

Afborgunin af því láni er 127 þúsund krónur á mánuði plús vextir. cool

Og vextir þurfa að vera að minnsta kosti jafn háir og verðbólgan til að raunverulegt verðmæti þess fjár sem lagt er fyrir eða fengið að láni minnki ekki.

Margt ungt fólk kaupir fyrst gamalt húsnæði, gerir það upp sjálft og með aðstoð annarra. Fjölmargir sem eiga íbúðarhúsnæði kaupa stærra eða minna húsnæði og ungt fólk þarf ekki að byrja á að kaupa nýja íbúð.

Og almennt hefur ungt fólk það miklu betra núna hér á Klakanum en fyrir nokkrum áratugum. Nú fer ungt fólk í utanlandsferðir, jafnvel tvær á ári, á nýja bíla og fer út að borða nokkrum sinnum í mánuði en fyrir 40 árum voru örfáir veitingastaðir í Reykjavík.

Þar að auki hafa ungir Mörlendingar mun meiri formlega menntun og hærri laun en fyrir nokkrum áratugum og geta nú auðveldlega fengið vinnu við sitt hæfi hér á Klakanum, enda þótt margir kjósi að starfa erlendis. cool

Þorsteinn Briem, 14.2.2022 kl. 09:42

15 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Steini og þakka þér fyrir þessa ágætu upprifjun. Það er alveg hárrétt hjá þér þetta með lánin og verðbólguna, þess vegna komst allt venjulegt fólk ekki mikið lengra en í 20% skuldsetningu vegna húsnæðis á 8. áratugnum og vissi að það yrði að bjarga sér sjálft.

En þú ert kannski að gleyma 90 og 100% lánunum um árið, þegar hátt í 10.000 fjölskyldur voru bornar út af helferðarhyskinu, sumt af því fólki ber þess aldrei bætur ekki einu sinni vaxtabætur varla þeir sem tóku 110% tilboðinu. Margt af þessu fólki býr ekki á landinu lengur, plummar sig sem betur fer ágætlega erlendis, eins og þú bendir réttilega á, láttu mig þekkja það.

Þetta voru ólán og við skulum vona að unga fólkið eigi aldrei eftir að lifa aðra eins tíma og helferðahyskið bauð upp á, þó ekki sé það nú beint björgulegt í augnablikinu. Sýnist skepnan vera farin að gíra sig upp, og gæti þá 127 þúsunda afborgunin farið í 200 þúsund plús að mér skilst.

Minnstu ekki á sparnaðinn á þeim áttunda ógrátandi, ég man sparimerkin enn þann dag í dag, þau voru af sama kalíberi og greiðslur í lífeyrissjóði nú til dags, lögbundinn þjófnaður. En það er nú ágætt að fólk þurfi ekki ennþá á lánsfé að halda til þess að éta snakk og sulla í bjór yfir boltanum. Með bestu kveðju í kjallarann.

Magnús Sigurðsson, 14.2.2022 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband