Svona er Ísland í dag

það verður of seint að ætla að endurheimta landið sitt, tala tungumálið og verja unga fólkið eftir að íslenska þjóðin verður orðin örlítill minnihluta hópur á Íslandi. Nú virðist enn einu sinni stefna í að fyrstu kaupendur, -unga fólkið og innflutta láglaunafólkið, verði sett út á Guð og gaddinn.

Kerfið; -ríki, sveitarfélög og bankar græða á verðbólgu, í það minnsta er komist upp með að hækka vexti og gjöld í takt við síhækkandi verðbólgu gróðaaflanna. Sú fjármálapólitík sem rekin er á Íslandi í dag er hrein illska gagnvart öllum þeim sem draga vagninn, -þó mest þeim sem eru að koma sér upp heimili á landinu bláa.

Tugþúsundir fjölskyldufólks yfirgáfu landið í hinu svokallaða hruni sem öreigar. Hyskið sá um sína með afskriftum, enda vantaði ekki stjórnsýslu sérfræðinga, stjórnmálamenn né bankamenn í nágrannlöndunum. Síðan var tekin sú afdrifaríka ákvörðun á klakanum af þessu fólki, frekar en bæta þeim hlunnförnu tjónið, að skipta um þjóð í landinu, fá í staðinn erlendar hendur á lágum launum og hirða mismun.

Ég ætla ekki ungu fólki né erlendu, að gera sér grein fyrir þeirri illsku sem liggur að baki þeirra klækjabragða sem síendurtekin eru á klakanum við að gera heimili fólks að féþúfu, -og fara síversnandi. Þá illsku höfum við sem eldri erum mátt horfa upp á ítrekað. Það er því okkar - í þessu sem öðru - að vera hollar vættir og verja land og þjóð.

Í vetur hef ég smásaman verið að gera mér grein fyrir hversu ógnvænlega hraðar breytingar eru að eiga sér stað á Íslandi. Það er að verða of seint fyrir íslendinga að ætla að endurheimta landið sitt, tala tungumálið og verja unga fólkið, þegar að íslenska þjóðin er að verða eins áhrifalaus og minnihluta hópur í eigin landi, sem verður þar að auki að gera sér að góðu að gera sig skiljanlegan á hroða ensku.

Um langt skeið hef ég þó unnið með erlendum iðnaðarmönnum bæði hér á landi, og í Noregi þar sem það er frágangs sök að tala ekki þjóðtunguna. Í vetur finnst mér breytingarnar hafa gengið ískyggilega hratt fyrir sig og þá á ég ekki bara við í vinnunni þar sem ég vinn. En þessa dagana vinn ég með ungum Rúmenum, -öndvegis mönnum, -og einum íslenskum gullmola um tvítugt. Það er heiður fyrir gamlan jálk.

Fyrstu árin hjá þessu fyrirtæki var ég oft einn íslendingur með hóp af Pólverjum. Skiljanlega eru ekki allir sem kæra sig um að vinna með erlendum starfsmönnum, stór hluti vinnunnar er félagslegs eðlis. En þar sem ég er bæði gamall og laskaður félagskítur þá þótti mér sjálfsagt að taka það að mér í sérhlífni.

Það hefur tvisvar gerst í vetur að ég hef keyrt fram á menn frá Úkraínu á förnum vegi og tekið þá upp. Í fyrra skiptið vorum við vinnufélagarnir á ferð í snjómuggu í skammdegismyrkrinu úti í sveit og keyrðum fram á einn í blindbrekku, sem ýtti á undan sér pappakassa með eigum sínum í, og núna í vikunni tók ég einn upp í á Seyðisfirði á leið upp í Hérað.

Sá var á fjarfundi hjá Alcoa í símanum sínum vegna starfsþjálfunar. Fjarfundurinn fór fram á austantjölsku og það litla sem ég náði sambandi við hann var á hroðalegri ensku, s.s. Syðisfjördur verí næs sittí, -Egilsstadir túú. Það sem verra er að við landsmenn erum að tapa tungumálinu okkar í þessa hroða ensku, þar sem standardinn er settur af stórfyrirtækjum og þeim sem kunna ekki ensku.

Tengdasonur minn er frá Hondúras, -já einn af þeim sem kom til að leita sér að betri tekjumöguleikum, en ekki til tekjuauka fyrir lögfræðistóð góða fólksins og Útlendingastofnunnar. Hann hefur unnið frá degi eitt á Íslandi og fær greitt eins hver annar og Íslendingur í sinni vinnu. Enda orðinn íslenskur ríkisborgari, og hefur alla tíð verið harðduglegur. Vöntun er á fólki eins og honum, rétt eins og í öll störf sem þarf að vinna með höndum.

Núna eftir áramótin hefur erlent fólk tvisvar fengið gistingu hjá okkur Matthildi minni, stúlka frá Hondúras í nokkra daga á meðan hún var í ökutímum og ungur maður frá Spáni, sem vinnur á Djúpavogi, í sólahring á meðan hann húkkaði sér far. Flest það erlenda fólk sem ég hef samskipti við býður góðan daginn á lýtalausri íslensku og getur gert sig skiljanlegt með einföldum orðaforða, rétt eins og á ensku.

Dóttir mín og fjölskylda hennar eru ein af unga fólkinu sem mér er mikið niðri fyrir vegna stöðunnar á Íslandi í dag. Hún er í hjúkrunarfræði fjarnámi, í háskólanum Akureyri, Þarf að sækja lotur til Akureyrar og Reykjavíkur, vinnur á hjúkrunarheimili á Egilsstöðum og býr á Djúpavogi. Þau hjónin eru nýlega búin að fjárfesta í húsnæði yfir fjölskylduna á Djúpavogi og mega engar tekjur missa.

Það má segja að fyrir okkur Matthildi sé þetta samt allt til ánægju, við höfum haft mikið meira af 5 ára sólageislanum Ævi að segja en annars, þar sem þær mæðgur eru hjá okkur á meðan vinnutarnir standa yfir á hjúkrunarheimilinu, og gestirnir hvaðan svo sem þeir koma lífgi bara upp á tilveruna.

Ævi getur sagt sögur á þremur tungumálum. Hún hefur meir að segja byrjað sögu á íslensku, sagt miðhlutann á ensku og niðurlagið á spænsku án þess að rugla orðum tungumálanna saman. Hún hefur búið til nokkur íslensk nýyrði sem ekki er hægt að hrekja með rökum.

Eins og önnur börn þá er hún ekki alltaf til í að fara að sofa á kvöldin. Þá segir hún að það sé ekki kominn náttatími, þver neitar að náttatími sé sama og háttatími, og rökstyður muninn með því að þá sé komið myrkur en samt ekki tími til sofa.

Um daginn var Ævi að tala við prinssessudúkkurnar sínar á ensku og mér varð á orði, af hverju talarðu ekki bara við þær á íslensku? -ekkert svar, -svo ég endurtók spurninguna og bætti við; -þú átt að tala við þær íslensku.

Þá svaraði Ævi kankvís á svip, en ákveðið; -Afi þú ræður ekki yfir mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bölsótaðist út í nýjustu fjárfestingar útlendinga á voru föðurlandi.Hvenær verða Herðubreið og Þingvellir seldir,reist risagesthús og rafmagnsgirðing allt í kring með vopnuðum lífvörðum og skiltum með viðeigandi hótunum í garð okkar sem í einfeldni héldum að landið okkar væri landið okkar.

Varð kjaftstopp þegar mín unga samstarfskona sagði: Mér er alveg sama,ég ætla aldrei að fjárfesta neitt á íslandi,ég þori ekki að skulda,ég vill búa úti á landi í öruggu,ódýru leiguhúsnæði.Svo vill ég nota allt sem afgangs er til að búa ódýrt í sólarlöndum en koma heim annað slagið og vinna.

Ég sagði annars hugar:"Ókey"

PS (IP-tala skráð) 18.3.2023 kl. 12:02

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll PS og þakka þér fyrir að deila þessari reynslu sögu. Það kemur mér reyndar ekki á óvart að ungt fólk sem þekkir fortíðina hugsi svona eitthvert tímabil ævinnar. En hjá flestum er það svo að þeir snúa heim á varp- og hrygningarstöðvarnar eins og farfuglarnir og laxinn.

Láttu mig þekkja það ég fór til Noregs og bjó þar í nokkur ár eftir hrun, á einu fegursta svæði Noregs. Þó svo að launin væru góð húsnæðisöryggi allt annað og betra en á Íslandi og Norðmaðurinn líti á Íslendinginn sem litla bróðir sem allt ber að gera fyrir, þá skildi ég vel hvers vegna við höfum aldrei snúið austur yfir hafið og heim í meira en 1000 ár.

PS. Ísland er einstakt, þess vegna ásælast erlendu auðrónarnir það og girða af.

Magnús Sigurðsson, 18.3.2023 kl. 14:51

3 identicon

Sæll Magnús; sem og PS, og aðrir gestir Magnúsar !

Það er óhuganlegt; hversu lýsingar ykkar beggja falla þráðbeint, í far

raunveruleikans.

Mögulega; þurfum við (sem komin erum af Landnámsfólki 7. - 9. alda - og síðar) að fara að gera einhverjar þær ráðstafanir, sem duga mættu, til þess að við / sem og afkomendur okkar sjálfra, verðum ekki einfaldlega undir, í þeirri baráttu við INNFÆDDA okur- og græðginnar væddu púka, hver framundan kynni að verða, sem stýra óæskilegum hlutunum sunnan frá Reykjavík, og nágrenni hennar.

Að óbreyttu; stefnir annarrs, í rakið Skrælingja samfjelag hjerlndis, piltar.

Með; hinum beztu kveðjum, af Suðurlandi /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.3.2023 kl. 21:55

4 identicon

Sammála,og takk fyrir alla skemmtilegu pistlana í gegnum tíðina.

PS (IP-tala skráð) 18.3.2023 kl. 21:56

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Óskar, -og takk fyrir innlitið og athugsemdina.

Já, raunveruleikinn er að breytast hratt þessi misserin þó svo að blikur á lofti hafi lengi mátt greina.

Ég held að við sem getum rakið ættartöluna verðum að fara að hugsa okkar gang áður en við verðum safngripir í eigin landi, og það verður best gert með því að viðahalda tungunni og skilningi á málinu.

Það finnst kannski mörgum tungumálið eða ættræknin vera lítið að halda upp á, en það er einstakt að þjóð geti rakið ættir sínir aftur í aldir, jafnvel aftur fyrir Kristsburð.

Einhvern tíma þótt Da Vinci code merkileg skáldsaga. Þann lykil eigum við aftur til Óðins, en verðum að hafa skilning á tungumálinu til að geta lesið okkur í gegnum dulkóðaðan lykilinn.

Ef við setjum tungutakið í hroða-ensku þar sem standardinn er settu af gúggúl þá getum við allt eins lesið upplýsingaóreiðu fjölmiðlanna út í eitt og smælað framan í heiminn eins og gapandi hálfvitar.

Bestu kveðjur af Héraði á Suðurland.

PS, takk fyrir lesturinn.

Magnús Sigurðsson, 19.3.2023 kl. 06:36

6 Smámynd: Haukur Árnason

Alltaf gaman og fróðlegt að fylgjast með þínum pistlum, og þeim kommentum sem oft koma.

 Þú segir hér ofar: „en það er einstakt að þjóð geti rakið ættir sínir aftur í aldir, jafnvel aftur fyrir Kristsburð.“
Á heimasíðu Hörpu Hreinsdóttir er ættfræðisíða. Þar er ætt hennar rakin alla leið til Adams bónda í Paradís og Evu konu hans.
Nú erum Harpa skild, þannig að það væri hæg heimatökin að splæsa sig inná legginn til Adams og Evu. Þar er líka rakið hvernig ætt hennar kemur frá Ingafrey Svíakonungi, hann er fæddur 70 e.k. Og er þá hægur vandi að rekja ættir Ingafreys til Óðins og Adams
Bjarni Harðar á Selfossi er skráður fyrir samantektinni.

Svo getum við líka farið í gegnum Bresku konungsættirnar til Davíðs konungs. Þar með erum við komin í ætt við Jesús að langfeðratali. Hann var jú af ættkvísl og kynþætti Davíðs.

Ég er líka með ættar rakningu frá Benjamín, yngsta syni Jakops (Benjamínsættin) fram til Melkorku Myrkjartansdóttur og Ólafs pá, og hans dóttir Þorbjörg „digra“

Sumir hafa nú dreigið í samhengið með Tamar Tephi.  Aðeins úr Dagrenningu:

„„í fornum írskum þjóðsögunr og Jjóðkvæðum er það beinlínis sagt, að Allamh Fodlha hafi verið Jeremía spámaður og 'Tamar Tephi hafi verið dóttir Zedekia konungs. I þessum þjóðkvæðum er henni mjög hrósað fyrir fegurð og ættgöfgi; þar er sagt frá þcim hættum, sem hún lenti í í Jerúsalem, dvöl hennar í Taphanhes í Egyptalandi og ferðalagi hennar þaðan til Spánar (þar sem systir hennar hafði giftzt) og svo þaðan til írlands. Á eynni Dcvcnish í hinu fagra vatni Loch Erne er gröf höggvin í harðan klett, og hún er enn í dag nefnd „gröf Jeremía“. Skömmu eftir komu þeirra Jeremía til írlands giftist Tarnar Tephi konunginum þar. Hann hét Heremon og var líka af ísraelsætt.                                                                                     Og til þeirra er rakin ætt núverandi Bretakonunga.“

https://timarit.is/page/6327222?iabr=on#page/n31/mode/2up

Kveðja frá Selfossi.

Haukur Árnason, 19.3.2023 kl. 12:51

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér kærlega fyrir þetta Haukur, -það er aldeilis fengur í þessari ávendingu og ekki í fyrsta sinn frá þér.

Eins og ég hef svo oft sagt áður þá eru athugasemdirnar við blogg pistlana það sem gerir það þess virði að skrifa þá, vegna þess að í athugasemdunum getur verið margra ára grúsk sem mann vantar í púslið.

Með bestu kveðju af Héraði á Selfoss.

Magnús Sigurðsson, 19.3.2023 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband