Atvinnuhorfur ekki góðar.

Ef að ástandið fer ekki að breytast verulega til hins betra hvað fjármögnun verkefna varðar gæti 7% atvinnuleysi í lok janúar verið varlega áætlað.

Það er sama við hvern er talað í bygginga og verktaka geiranum það er algjör stöðnun, fyrirhugaðar framkvæmdir að falla út og fjármögnun á því sem er í gangi í uppnámi.  Flestar þjónustugreinar eins og verslun eru að fækka starfsfólki svo ekki sé talað um bankastarfsemi.  Í útflutningsgreinum eins og sjávarútvegi vantar ekki fólk.

Hjá mínu litla fyrirtæki sagði ég upp meira en helming starfsmanna minna um mánaðarmótin ágúst-september, ástæðan var ekki eingöngu  verkefnaskortur heldur sú að treg innheimta og tapaðar viðskiptakröfur ógnuðu rekstrinum.  Í byrjun Desember verða 4 starfsmenn eftir hjá fyrirtækinu en voru flestir 12 á þessu ári.  Verkefnastaðan er nú í algjöru uppnámi eins og víðast hvar hjá fyrirtækum í byggingariðnaði.

Sú tilfinning hefur orðið sífellt sterkari, eftir því sem á október hefur liðið, að við séum að sigla inn í tímabil svo mikils atvinnuleysis að annað eins hafi ekki áður verið hér á landi.  Því miður hafa stjórnvöld ákveðið að fara þá leið að hækka vexti og ríghalda þannig í það stjórntæki sem átt að halda niðri verðbólgu undanfarin ár en án árangurs.  Þegar þessari aðferð er beitt í algjörri lausafjárþurrð getur það varla leitt til annars en keðjuverkandi gjaldþrotahrinu hjá fyrirtækjum með tilheyrandi fjölda atvinnuleysi.


mbl.is Hrina hópuppsagna hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Þetta er bara skelfilegt ástand, og án þess að mála skrattann á vegginn áður en að hann er komin á hann, þá er ég hrædd um að þetta eigi eftir að versna, eigðu góða helgi.

Sigurveig Eysteins, 31.10.2008 kl. 23:39

2 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Ég held ad thú hafir alveg rétt fyrir thér. Ég held thetta sé miklu stærra og erfidara en fólk grunar. Thad verda alvarleg dómino-áhrif, thar sem allt fellur.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 1.11.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband