Helferðarhyskið.

Vantraust landsmanna á stjórnmálamönnum  þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart.  Bankar og lánastofnanir hafa rænt íslensk heimili í skjóli stjórnmálamanna.  Fjórflokkurinn neitaði þeim heimilum landsins sem eitthvað skulduðu í sínu húsnæði um eðlilega leiðréttingu.  Eftir að dómstólar höfðu dæmt lánastofnanir fyrir glæpi gegn almenningi settu stjórnmálamenn afturvirk lög á alþingi sem kölluð er 110% leiðin og verðtryggðu hana.  Þau 12,4% sem segjast treysta alþingi eru ca. þeir sem mata krókinn í ástandinu.  Þvílíkt glæpahyski.
mbl.is Meiri áhersla á banka en heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fátt er svo með öllu illt.

 

Þeir eru nú alltaf að misskilja Íslensk efnahagsmál blessaðir sérfræðingarnir í útlöndum  Nú þykist Tom Asprey sérfræðingur í markaðsviðskiptum hafa komist að því að Íslenska krónan hafi verið ofmetnasti gjaldmiðill í heimi á árunum 2004-2007, með því að bera hana saman við Big Mac vísitöluna.

Þarna snýr hann öllu á hvolf, afrek krónunnar eru ótvíræð það hefur engum gjaldmiðli tekist að koma McDonald á kaldan klakann, þeim einokunar sinnaða fjanda.  En hann starfar undir einkaleifum þar sem sá sem leyfið hlýtur ber skylda til að versla við ákveðna byrgja og þannig tókst Donald gamla að útiloka íslenska framleiðslu í búllu sínum á Íslandi.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.  Við losnuðum við Big Mac úr landi og Mc Donalds óþverrann allan.  Geri aðrir gjaldmiðlar betur.


mbl.is Ofmetnasti gjaldmiðillinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpslaus fáráðlingur

Nú er svo komið fyrir mér hérna í Noregi að einna helst má líka því við lesblinda prófessorinn sem ætlaði að ferðast yfir þver Bandaríkin í sumarfríin sínu en var ekki kominn lengra en í næsta fylki þegar sumarfríið varð búið.  Þetta sagði hann hafa gerst vegna þess að það var svo margt áhugavert að skoða.  Hann sagði að þeir sem kynnu að lesa færu margs á mis vegna þess að þeir létu leiðbeiningar sem þeir læsu segja sér hvað væri áhugavert. 

Þegar ég kom hingað hafði ég uppi góð áform, líkt og prófessorinn, um að nota frítíma til að ferðast um nágrennið og skoða Nord Norge en get varla sagt 11 vikum seinna að ég hafi komist út fyrir bæjarmörkin hérna í Harstad, hvað þá yfir í næsta fylki.  Ég get hvorki kennt bullinu sem ég á það til að lesa né annríki um að svo er komið.  Það er einna helst að ég geti kennt sjónvarpinu um þetta, sem ég hef ekki séð allan þennan tíma og veit þar af leiðandi ekki hvað er merkilegt. 

Því hafa kvöldin og frítíminn farið í að lalla niður í næstu fjöru og fylgjast með fuglunum.  Þar hef ég séð æðarkolluna ala upp ungana sína, kríurnar baða sig, hnísur kinka kolli til mín í flæðarmálinu, marglittur svífa um eins og engla innan um krossfiska og ígulker, stöku sinnum hefur mús stytt sér leið úr fjörunni í holuna sína yfir tærnar á mér.  Mínir helstu félagar hafa verið kettir sem setið hafa með mér og fylgst með af andakt hvað hefur fyrir augu hefur borðið. 

Svona er nú  ástandið þegar sumri er tekið að halla og það þrátt fyrir að ég hafi aðgang að þremur bílum til ferðalaga, hef hreinlega ekki komist hænu fet.  Þess í stað hefur það verið að renna upp fyrir mér hvað fékk David Attenborouh til að gera alla þessar náttúrulífs myndir sem sýndar eru í sjónvarpi og verð að segja það sem mig hefur alltaf grunað að þættirnir hans Attenboruoh eru mislukkaðir miðað við original útgáfuna.

Þegar ég var nýkominn hingað voru allir boðir og búnir til að útvega mér sjónavarp, það væri svo gott að hafa það til að læra norsku og komast inn í norskt mannlíf.  Vinnufélagarnir spurðu með mikilli umhyggju hvort ég hefði ekki sjónvarp og voru strax boðnir og búnir til að útvega mér svoleiðis grip.  Vinnuveitandinn vildi kaupa sjónvarp handa mér en ég kom mér undan því með því að gefa í skyn að ég hefði ekki efni á að kveikja á því, en útvarp skyldi ég fá mér til að læra norskuna hratt og örugglega. 

Eftir að þeir hættu að spila Sweet home Alabama og allar setningar í útvarpinu mínu byrjuðu á Breivik, hugvekjan hans Stoltenberg svo spiluð næst á eftir "víst einn maður gat alið svo mikið hatur með sér ímyndið ykkur þá bara hvað við öll getum sýnt mikinn kærleika" og þar á eftir fóru svo fréttir af því hvernig lögreglan leitaði hús úr húsi að fleiri hatursfullum hryðjuverkamönnum hefur verið slökkt á útvarpinu mínu.  Þetta var bara farið að minna mig of mikið á skjaldborgarhugvekjurnar hennar Jóhönnu um árið og fleiri skringilegar útfærslur á kærleikanum.  Það getur vel verið að ég prufi að kveikja á útvarpinu aftur í september.

 

 

Það er kannski komin tími á að ég geri aðeins grein fyrir vinnufélögunum, enda kom ég hingað vegna vinnu og það eru þeir sem ég hef mest samskipti við, því ekki hef ég séð Íslending síðan í maí frekar en sjónvarp og sakna íslendingana meira.  Múrarahópurinn samanstendur af allra þjóða gersemum, þrír er norskir, tveir eru frá Afganistan og einn frá Súdan og svo náttúrulega þessi þrjóski Íslendingur.  Ég verð að segja það alveg eins og er að mér líkar betur að heyra Afganana kyrja slagara frá heimahögunum heldur en Breivik þvælan í útvarpinu, jafnvel þó Norsararnir tuði "for helvide er det arbisk musik". 

Hjá þverhausum mér þá hefur sagan um apana fimm oftar en einu sinni komið upp í hugann þegar mér hefur fundist vinnufélagarnir vera að gera hlutina fyrir aftan rassgatið á sér.  Því hef ég reynt eins og mér er unnt að hafa orð Bóa félaga míns að leiðarljósi þó misjafnlega hafi gengið.  En hann gaf mér það heilræði áður en ég fór;  "vertu svo ekkert að kenna þeim þó þeir geri allt með handabökunum, þeir hafa einhvern vegin slampast í gegnum þetta fram að þessu".  En mikið rosalega eru þessir apakettir búnir að missa af mörgum bönunum en skýringuna á því er best að sjá á videoinu hérna fyrir neðan.

Stundum hef ég átt það til að vorkenna mér yfir því að hafa verið þessar 11 vikur að heiman frá fjölskyldu og vinum.  En þegar ég heyri vinnufélagana tala um sína fjarveru frá heimahögunum get ég bara ekki vorkennt mér lengur.  Afganarnir eru flóttamenn og nýkomnir með Norskt vegabréf þannig að þeir fóru báðir til að hitta fjölskyldu sína núna í sumarfríinu sínu, en það hafði ekki gerst í mörg ár.  Ekki fóru þeir til Afganistan því þangað geta þeir ekki komið, heldur Pakistan, þar hittu þeir ættingja sína.

Juma sá sem er frá Súdan er nýlega komin með norskt vegabréf og fer í október að í fyrst skipti heim til að hitta foreldra sína og systkin sem hann hefur ekki séð í 11 ár en að heiman fór hann um tvítugt, þá í til að sækja vinnu í Líbýu og nú þarf hann vegabréfsáritun til að fá að fara í heimsókn heim.  Svona getur heimurin verið undarlegur. 

Matthildur mín kemur á föstudaginn og ætlar að skoða sig um, kannski gengur mér betur að kanna umhverfið með henni heldur en lesblinda prófessornum, þó er ekki ólíklegt að ég sýni henni fuglana í fjörunni.  Í lok ágúst tek ég svo frí og við förum heim til Íslands, þá verður þeim þriggja mánaða starfssamningi sem ég gerði lokið og staðan tekin upp á nýtt.  Mikið er mig farið að hlakka til að koma heim til Ísland og taka upp kartöflurnar mínar og kíkja á trénaða njóla, því þó undarlegt sé þá átti ég þar gott líf í yfir 50ár.

Að lokum vil ég beina því til þeirra sem hafa nennt að lesa svona langt að forðast sjónvarpið og fjölmiðlana sem heitan eldinn.  Því þá er nú eiturlyfja- og íþróttabölið hreinn barnaleikur við að eiga hjá þeim ósköpum sem t.d. sjónvarpið er, enda hefur það eyðilagt líf fjölda fólks án þess að það viti af því.


Hvað gerir Darwin?

Hvað gerir Darwin nú, skildi hann snúa sér við í gröfinni? 

Eða þá vísindasamfélagið sem hefur haldið svo fast í þróunarkenningu Darwins að farið er að minna á hugmyndir um fyrri tíma heimsmynd þegar jörðin mátti einungis vera flöt.

Ég vil vekja athygli á þessar stórskemmtilegu fræðslumynd sem vekur upp spurningar um uppruna mannsins sem falla kannski ekki alveg að Darwins tímarammanum né flatneskju jarðar.

 


mbl.is Fundu 20 milljón ára gamla hauskúpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlaut að vera.

"Seðlabankinn bendir á að miklar skuldir íslenskra heimila skýrist að hluta til af því að hlutfall heimila í eigin húsnæði er með því hæsta sem gerist í heiminum." 

Það hlaut að vera eðlileg skýring á þessari skuldaukningu í íbúðarhúsnæði langt um fram 110% leiðina.  Ég ætlaði líka að fara að segja það að hvort hagfræðingarnir í Seðlabankanum ætluðu að kenna guðdómlegri vertryggingunni um þetta, nei þá er þvælt yfir í óskyld mál.

Núna eru að verða liðin því sem næst þrjú ár frá hruni og fjögur frá því að bankarnir byrjuðu að spila markvist, svo ekki fór framhjá neinum, á víxlhækkanir verðlags og eigna sinna í skuldum almennings í gegnum verðtrygginguna.  Stjórnmálamenn sitja enn allir sem einn með hendur í skauti og horfa upp á heimilin rænd.

Í siðuðum ríkjum eru heimili ekki talin hafa möguleika á að eignast íbúðarhúsnæði fyrir meira en 2,5 - 3-föld árslaun, hvað skyldi þetta hlutfall talið vera á Íslandi og hvenær ætla stjórnmálamenn að hafa kjark til að leiðrétta kúrsinn, hvað þá að skikka þjófana til þess að skila þýfinu?  


mbl.is Verðbólgan étur skuldalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrun-vaktin lætur ekki deigan síga.

Fjármálaráðherra keppist við að gefa út yfirlýsingar um að skattahækkanir skili árangri, tekjur ríkisins standist. 

Sala á áfengi hefur dregist saman um 15% milli ára svo ekki fer velta svarta hagkerfisins í áfengiskaup. 

Samtök iðnaðarins kepptust við að kosta auglýsingar í öllum fjölmiðlum fyrir rúmu ári síðan þar sem gefið var í skin að verktakar, iðnaðarmenn og prjónakonur væru þess valdandi að skólabörn og vegfarendur hefðu verið hlunnfarin vegna svartrar atvinnustarfsemi. 

Verkalýðsforingjar hafa sakað bændur á öskufallssvæðunum sunnanlands um að gera út á túrista án þess að hengja á sig vinnustaðaskírteini og skila sköttum og gjöldum til verkalýðsfélaga á réttum tíma.

Það verður annars að segjast eins og er, það er alveg merkilegt hvað þeir aðilar sem stóðu hrun-vaktina og standa hana enn kunna við að láta frá sér fara þegar það kemur að því að saka annað fólk um þjófnað.


mbl.is Svört starfsemi í blóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samhryggist Norðmönnum.

 


mbl.is Margir sýna Noregi stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bólusetning nei takk.

 

Þessu Pandermix sulli kepptust heilbrigðisyfirvöld á Íslandi við koma í landsmenn í svínaflensufárinu, með sóttvarnalæknir fremstan í flokki.  Keyptu 300.000 skammta á toppverði í miðjum niðurskurði.  Það voru einstaka fuglar sem vöruðu við sullinu á bloggi á sínum tíma enda nægar upplýsingar fyrirliggjandi um að það væri meir en lítið vafasamt. 

http://www.magnuss.blog.is/blog/magnuss/day/2009/10/20/


mbl.is Tengsl við drómasýki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau geta fengið hyskið.

Mín vegna mættu þjóðir í skuldbasli fá Steingrím, Jóhönnu og allt helferðarhyskið sér til aðstoðar.  Almenningur í þessum löndum myndi þá gera eitthvað róttækt til að losa sig við það hyski í eitt skipti fyrir öll þegar það kæmist að því að það ætti að borga heimili sín aftur og það ekki einu sinni heldur oft. 

Íslenska leiðin felst í því að það var farið inn á heimilin og þau rænd svo hægt væri að halda bönkunum og hyskinu uppi.


mbl.is Íslenska leiðin til fyrirmyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverk!

 

Hvernig í ósköpunum komst maðurinn inn í þinghúsið með raksápu?  Það er auðséð að þeir verða að bæta öryggiseftirlitið þarna áður en fólk fer að valsa út og inn með vatnsflöskur.  Þeir geta varla verið með lakara öryggiseftirlit en flugfélögin á sjálfri hryðjuverkalagasamkuntunni.


mbl.is Kastaði raksápu á Murdoch
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband