Hryðjuverkaríki?

Verður Ísland sett á lista hryðjuverkaríka í annað sinn á stuttum tíma?  Fulltrúadeildarþingmaðurinn Peter King bað Hillary Clinton utanríkisráðherra um að setja Wikileaks á lista yfir erlend hryðjuverkasamtök í kjölfar nýrra leyniskjala sem gerð voru opinber í gærkvöldi.   Og Liz Cheney, dóttir Dicks Cheneys ítrekaði á Fox sjónvarpsfrétttastöðinni í gærkvöldi, að hún teldi að stjórnvöld á Íslandi eigi að loka vefsíðunni WikiLeaks. 

Sumir Bandaríkjamenn hafa þó séð ríkisstjórn Bandaríkjanna sem hina raunverulegu hryðjuverkaógn.

 


mbl.is Wikileaks hryðjuverkasamtök?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eruð þið nú farinn að hlusta á öfgvafulla presta í Bandaríkjunum?

Og það er alveg merkilegt að það er ekkert minnst á hryðjuverk Kanans þegar þeir hentu sprengjum á Belgrad til að stoppa þjóðarmorð á Muslímum og ekki heldur þegar þeir voru að sprengja Berlín til að stöðva framgang Nasista, afhverju ekki allt eða ekkert?

Loki (IP-tala skráð) 29.11.2010 kl. 19:08

2 Smámynd: Promotor Fidei

Wikileaks er fjölmiðill. Mönnum má detta svona vitleysa í hug, en ef reynt yrði að koma þessu í framkvæmd myndi sennlega fjórða valdið, eins og það leggur sig á heimsvísu, leggjast gegn þessu.

Promotor Fidei, 29.11.2010 kl. 20:10

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Loki; övgafulli presturinn sleppti líka Víetnam, Laos, og Afganista í þessari ræðu, kannski hefði hún bara engan enda tekið hefði manngæskan ein átt að vera til umræðu.

Promotor Fidel;  ég er ekki viss.  Efnistökin til þessa hafa ekki bent til þess.

Magnús Sigurðsson, 29.11.2010 kl. 20:26

4 identicon

Það þyrfti eiginlega að benda þessari ágætu konu á að skjölin eru ekki geymd í tölvu á Íslandi.  Þau eru geymd á netþjónum víðsvegar í heiminum.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 29.11.2010 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband