18.1.2024 | 20:41
Friðþæging
Á meðan mennskan
speglar sig í blóðabaði barnanna
sem birtist í mósku daganna
á flatskjá staðreynda
varðveitum við mennskuna
með yfirgangi orðanna
í dómgreindum kærleika
- - og með því að lúta höfði
í hinni skinhelgu bæn
anginn litli anginn minn
ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn
Hafi sú hugmynd kviknað í höfði einhvers að þessi orðhengilsháttur hefði eitthvað með keppnis að gera þá er það misskilningur, þetta er sett hér inn á síðuna sem firðþæging í vonleysi andleysis.
Mín upplifun af landinu helga er sú að þar eigi ég mörgum gott upp að unna. Um veru mína þar setti ég inn örstuttan pistil fyrir tæpum þrem árum síðan, með tengli á annan sjö sekúndur, sem má lesa hér
Dægurmál | Breytt 19.1.2024 kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)