Slæmur fyrirboði.

 

Hún herðir sjálfsagt á kerlingar illfyglinu þessi makríldeila þó svo að löndunarbann skipti engu máli fyrir íslensk fiskiskip sem landa hvort eð er ekki makríl í höfnum ESB.

En það gæti þurft Breskan Evrópu þingmann til að koma fyrir hana vitinu.


mbl.is Tilkynnt um löndunarbann á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst þetta frábært mál. Núna segjum við okkur bara frá ESB aðlögunarferlinu teinrétt í baki. Þurfum ekki einu sinni að segja þeim að við vorum að gera bjölluat ;-)

Björn (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:22

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Satt er það Björn, þeir færa okkur vopnin í hendur, en ég hef ekki trú á að fávitarnir á Alþingi  kunni að notfæra sér þau.

Magnús Sigurðsson, 14.1.2011 kl. 00:24

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Þessar vangaveltur sjávarútvegsstjóra ESB sýna auðvitað að vinstri höndin veit ekki hvað sú hægri er að gera í þessu ágæta Evrópusambandi. Trúlega hefur kerlingar yllfyglið, eins og þú kallar sjávarútvegsstórann, ekki hugmynd um það að Íslendingar landa ekki makríl í höfnum Evrópusambandsins.

Gústaf Níelsson, 14.1.2011 kl. 00:42

4 identicon

Sammála Magnús, lítill möguleiki á því held ég. 13% traust á Alþingi endurspeglar held ég fjölda aðila þar með einhverju viti.

Hvet svo alla til að horfa á sem flest YouTube vídeó með Nigel, hann er tær snilld. Ef við hefðum 63 svona jaxla á þingi þá myndu stórir hópar flykkjast til landsins til þess eins að fylgjast með þingstörfum.

Björn (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 00:43

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Gústaf;  það er ekki fallegt af mér að uppnefna fólk, en ég held að hvorki sjávarútvegsstjórinn eða kerlingin á "gamla sorrí grána" hafi hugmynd um raunverulega hagsmuni Íslendinga.

Magnús Sigurðsson, 14.1.2011 kl. 00:51

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Björn;  hugsanlega eru 13% með glóru.  Það er undarlegt að geta ekki fundið íslenskan samtíma stjórnmálamann til að vitna í þegar hagsmunir Íslands eru annars vegar.  Því verð ég að flagga Bretanum, Nigel Farage þegar það þarf að koma orðum að raunverulegum hagsmunum Íslands

Magnús Sigurðsson, 14.1.2011 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband