Ábyrgðin liggur hjá Alþingi.

Nú hlýtur að vera komið að því að Alþingi sýni þjóðinni þann lágmarks skilning að leysa ríkisstjórnina frá völdum.  Það er átakanlegt að fylgjast með því hvernig þingmenn stjórnarflokanna koma sér undan því að bera ábyrgð á ríkisstjórninni. Sumt af því sem þeir láta út úr sér er hreint lýðskrum. Valdið liggur hjá Alþingi, hjá  þingmönnum hverjum og einum sem ber að fara eftir sannfæringu sinni.

Megi Guð gefa að mótmælendur og lögregla komast óslakaddaðir frá þessum atburðum, þetta er fólk sem á við sameginlegan vanda að glíma.   Það er Alþingi sem ætti að sjá sóma sinn í að koma vanhæfri ríkistjórn frá frekar en að etja borgurum þessa lands saman.


mbl.is Enn fjölgar á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Sem betur fer virðist manni að engin hafi slasast. Svaf nú ekki alveg róleg því ég vissi að dóttir mín var að sinna skyldustörfum í miðbæ Reykjavíkur í nótt.

Hulda Margrét Traustadóttir, 21.1.2009 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband