Færsluflokkur: Dægurmál

Bólusetning við bílslysum á næsta leiti

Visku mannfólksins fleytir fram um leið og hún er öll að færast í tæki. Svo er komið að síðasta kynslóðin sem hefur náttúrulega heilaburði til að keyra bíl er að renna sitt skeið, eftirleiðis verða það að mestu fjarstýrð öryggisforrit og gps leiðsögutæki sem sjá um aksturinn í gegnum 5G. Auðvitað er þetta allt gert til að við getum haft hugann við eitthvað viskulegra, t.d. snjallsímann.

Þessar tækniframfarir við akstur ættu ekki að þurfa að koma nokkrum á óvart ef miðað er við hve stutt er síðan að kunnátta manna við siglingar á sjó var vædd tækjum svo ekki þyrfti að rýna í himintungl og hafstrauma. Nú er sennilega fáum orðið fært að sigla eftir fallaskiptum og stjörnum og myndu segja sem svo tækjalausir í þoku; Haah, hvað gerum við nú.

Sjálfur hef ég ekki ennþá eignast snjallúr, ekki einu sinni haft vit á að fá mér snjallsíma og keyri þar að auki um á bíl án navigation frá því á síðustu öld eins og hver annar lúser. Og kannski ekki nema von að á mér hafi bæði dunið hjartaáföll og bílslys, en það verður nú væntanlega boðið upp á fríar bólusetningar við þessu öllu saman fljótlega.


mbl.is Drukkin í sjálfkeyrandi bifreiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það skeður ekkert fyrr en ég kem

sagði maðurinn, sem var á leiðinni í eigin hengingu, við fylgdarmenn sína þegar þeir ráku á eftir honum því hann væri að verða of seinn. En þetta var um árið, nú eru heldur betur breyttir tímar, ekki þarf lengur að bíða eftir þeim sem á að taka af lífi.

Ef meðfylgjandi frétt væri sú eina af því það þegar computer says no væri þetta náttúrulega bara fyndið, en svo er ekki. Langt er síðan rafræna samfélagið tók upp á því að grafa fólki gröf í lifandi lífi.

Nú er svo komið að fólk með gráður hefur upphugsað allskonar rafrænar gáttir sem það varla hefur hugmynd um hvernig virka. Fólk sem varla dregur andann fyrir framan skjáinn er látið búa til app fyrir fólk sem á ekki að þurfa að gera meira en í mesta lagi segja ég bara vinn hérna, -límt við skjáinn.

Hvað er svo til ráða, annað en að fólk taki sig saman um að segja sig úr hinu rafræna samfélagi og taki upp samskipti við hvort annað með því einfaldlega að slökkva á símanum og sjónavarpinu?


mbl.is „Þú ert látinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísrael

Mikið hefur gengið á í landinu helga undanfarna daga. Þar sem ég átti því láni að fagna að starfa um stund í Ísrael á árunum 1997 og 1998, þá hef ég reynt að venja mig af því að hafa skoðun á málum í margslungnu landinu, því þar var fæst eins og sýndist í fréttum fjölmiðlanna. Áður hafði ég sveiflast eins og pendúll eftir fréttunum og haldið með Ísrael og Palestínu til skiptis. En eftir þessa dvöl áttaði ég mig á því hvað erfitt er að halda með öðru en venjulegu fólki. -hvernig sem er í pottinn búið.

Ég skýrði frá því hér í bloggi s.l. desember að ég hefði farið niður í geymslu og fundið gamlar hugleiðingar, þar á meðal dagbók frá því í landinu helga. Þar er reyndar meira um að ræða dagbókarslitrur því ég hef ekki enn fundið öll blöðin sem ég man þó eftir að hafa párað á, en þau voru flest um epoxy steypu. Ég ætla samt að setja hérna inn fjóra daga frá því 1998 en þá var það helst á seyði að Saddam heitinn Hussen hafði í hótunum. En þá eins og nú var Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels.

3. febrúar# - Fórum á Bethaemek í hádegismat. Það var svipað og koma heim. Útsýnið yfir arabísku nágrannaþorpin og út á Haifa flóann heillaði. Ruggustólakvöldin í 30 stiga hita með syngjandi kryppur og köll til bæna í moskum arabísku þorpanna, tunglið fullt yfir Carmelfjalli og pípan tottuð, -alt rifjaðist þetta upp.

Við hittum Jaron vin okkar eftir matinn og spurðum hann hvort eitthvað óöryggi væri í Miðausturlöndum vegna Saddam Hussen. Hann hló og sagðist ekki hafa heyrt fréttir í dag, en utanríkisráðherra USA hefði ekki getað ábyrgst í fréttaviðtali í gær, hvort og þá hvernig sprengjum yrði varpað á Bagdad.

Hann sagði að vissulega væri ástandið viðkvæmt í þessum heimshluta. Þar sem Arafat væri orðinn gamall og lasburða, Hassan Sýrlandsforseti á sjúkrahúsi og Saddam í Írak. Menn vissu hvaða leiðtoga þeir hefðu í nágrannalöndunum en ekki hverja þeir fengju í staðin ef þessir féllu frá.

Það var mikill hávaði frá orrustuþotunum í dag og þær flugu lágflug yfir landinu. Á akri fyrir ofan Haifa voru eldflaugavagnar með eldflaugarnar í stöðu til himins. Hermenn voru víða eins og alltaf.

4. febrúar# - Veðrið gott eins og í gær, 20 stiga hiti og sól. Sláttuvélarnar komnar í gang hjá innfæddum og byrjað að snyrta beð og garða. Eyddi deginum á hnjánum eins og undanförnum dögum, farið að verkja í. Hringdi heim, kalt heima, sjómannaverkfall, engin loðna og lítil vinna. Strákarnir í verki á Dalvík í norðan stórhríð, ég vildi ekki skipta við þá.

5. febrúar# - Á leiðinni í vinnu voru miklar tafir á hraðbrautinni milli Yoqneam og Haifa. Lögreglan var alvopnuð við vegtálma með naglabretti og stoppaði suma bíla, aðra lét hún nægja að líta inn í, svo var með okkur.

Á akrinum sem við sáum eldflaugarnar um daginn var nú engar flaugar lengur að sjá, kannski komnar inn á milli trjánna. Ofan við veg þar sem arabarnir voru með sölutjöldin sín þar er hægt að fá appelsínur og allskonar ávexti keypta, -en þeir voru ekki þar í morgunn. Kassar og annað drasl var þar á hreyfingu í hlýrri austan golunni.

Við töluðum um að ástandið virtist viðkvæmt um leið og orrustuþyrla skreið yfir hraðbrautina og hvarf yfir næstu hæð. Veðrið var hlýtt og gott yfir daginn. Gummi kominn með flensu svo við hættum kl 5, þetta er annar dagurinn síðan við komum sem við hættum í björtu.

Síðdegissólin skein á lauftrén, ávaxtaakrana þar fyrir innan og byggðina fyrir ofan. Mikil friðsæld er í andrúmsloftinu á svona fallegu síðdegi. Þegar við komum heim á Ramat HaSofet var kvöldgolan orðin þægilega svalandi í myrkrinu.

6. febrúar# - Lítil umferð á leiðinni til vinnu. Vegtálmi með naglabrettum. Stoppaðir aftur í Nahariyya fyrir of hraðan akstur. Gott veður og mikið af fólki í miðbæ Nahariyya. Í dag er föstudagur og frídagur hjá flestum gyðingum, svipað og laugardagur heima.

Í kvöld borðurðum við á Betahemek í boði Jarons vinar okkar. Það var verið að halda upp á nokkurs konar sumardaginn fyrsta, með söng og góðum mat. Minnti svolítið á Pesra apríl síðastliðinn, nema þá var dagskráin mun lengri.

Það er alltaf jafn þægilegt að koma í Betahemek, Jaron og Dina eins og góðir fjölskylduvinir og buðu okkur að sitja við borð fjölskyldunnar í matsalnum. Þetta er í annað sinn sem við erum staddir á hátíð gyðinga og Jaron skýrir serimoníuna. Í apríl s l var verið að halda upp á það þegar Mose fór með Ísraela frá Egiptalandi og mig minnir að þá hafi einnig verið dagar hinna ósýrðu brauða. Gyðingar kalla það Pesra, en á ensku “pass over”.

Eftir matinn sátum við úti við leikvöllinn, þar sem krakkarnir léku sér í hlýrri kvöldkyrrðinni. Dina sagði okkur hversu gott væri að búa á samyrkjubúi fyrir konur með börn, sameiginlegt þvottahús og mötuneyti, því nægur tími til að sinna börnunum. Hún taldi að það væru helst þær konur, sem ekki hefðu búið annarstaðar, sem ekki kynnu að meta þennan lífsmáta.

Jaron sagði okkur að hann kynni vel við kristnu arabana í nágrannaþorpunum, sem við verslum við og gott væri að eiga viðskipti við þá. Hann sagði að ef múslímar næðu yfirráðum í þessu landi hefðu þessir kristnu arabar meira að óttast en gyðingar.

Einnig taldi hann, að ef Írak gerði árás á Ísrael færu Ísraelsmenn í stríð. Hann gerði lítið úr eldflaugavögnunum sem við höfðum séð á akrinum og sagði þá eðlilega ef litið væri til ástandsins. Yfirleitt gera Ísraelar mjög lítið úr ástandinu, svona eitthvað svipað og Siglfirðingar úr snjóflóðahættu.

Að koma við í búðinni hjá kristnu aröbunum í Kafr Yasif var svipað og venjulega, viðmót og augnaráð svipað og maður kannast við heima og maður hefur á tilfinningunni að þetta fólk sé með svipaðan þankagang og maður sjálfur. Það var hlýtt kvöldið þegar við komum heim á Ramat HaSofet söngur í froskum og kryppum í næturkyrrðinni.

Ps. Við vinnufélagarnir frá Íslandi vorum yfirleitt þrír, og dvöldum á samyrkjubúum, 1997 Betahemk og 1998 á Ramat HaSofet. Samyrkjubúin voru þá á hverfanda hveli, en framan af höfðu þau verið kjarni Ísraelsríkis, -að okkur var sagt.


Undir Borginni

"Einhverntíma var sagt að orðtakið – Heima er bezt – væri rétta forskriftin að góðu lífi, en eftir að heimilin hættu að vera skjól fjölskyldunnar og urðu aðeins stoppistöð til að skipta um föt eða sofa blánóttina, er sú stefna úr sögunni. Hún er líka sögð gamaldags eins og allt annað sem ætti að teljast gott og gilt ! , , ,

-Megi svo jafnan vera í landinu okkar að stjórnarfarið einkennist af frjálsu lýðræði en ekki baktjaldabundnu haftakerfi, sem á eingöngu að þjóna kerfislímdum sérgæskuöflum sem ekkert eiga skylt við almenna velferð !"

Mig langar til að vekja athygli á pistili Rúnars Kristjánssonar hér á mbl blogginu, en hann er eins og talaður úr mínu hjarta.

https://undirborginni.blog.is/blog/undirborginni/#entry-2264866


Þrjú áheit á Strandarkirkju

Það hæfir kannski ekki á trúleysis tímum að segja sögur af áheita kirkju suður með sjó. Mikið hefur verið heitið á Strandarkirkju í gegnum tíðina, og vegna þeirra er hún sögð ríkust allra kirkna á Íslandi. Sagt er að heitið hafi verið á kirkjuna í tengslum við alls konar erfiðleika.

Ætla mætti nú á tímum þyrfti maður að vera annað hvort örvinglaður eða trúgjarn, til að láta sér detta í hug árangur af slíku, þó ekki væri nema einu sinni. En þar sem ég hef verið hvoru tveggja þá ætla ég að segja frá þremur áheitum, og það ætti ekki að koma þeim á óvart sem eiga það til að líta inn á þessa síðu að Matthildur mín komi við sögu.

Veturinn 1986 vann ég við múrverk á byggingaráfanga öldrunardeildar heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum þar sem Baldur og Óskar sf voru aðalverktakar. Frá því í október fram í apríl bjó ég hjá afa mínum og nafna á Selásnum. Þar las ég þjóðsögur auk þess að fræðast af afa um gamla tíð.

Þennan vetur rakst ég á frásagnir af áheitum á Strandarkirkju í Selvogi. Sumarið áður hafði ég hitt Matthildi á balli á Djúpavogi og litist ljómandi vel á að kynnast henni betur. En vegna þess hvað ístöðulaus ég var gagnvart brennivíni var ég hræddur um að ég myndi klúðra málum nema að koma mér úr allri óreglu.

Það var þarna um veturinn sem mér datt í hug að heita á Strandarkirkju svo mér mætti auðnast að ná um Matthildi. Þegar ég kom í Berufjörðinn, eftir vetrarverkefnið, fór ég á ball á Djúpavog, Matthildur var þar og í sem allra stystu máli þá höfum við höfum verið saman síðan í meira en 35 ár og innan skamms verða einnig 35 ár síðan ég síðast bragðaði brennivín.

Sumarið 1993 vorum við Matthildur með börnin okkar í heimsókn hjá systur hennar og fjölskyldu í sumarbústað sem þau voru með í viku í Grímsnesi. Þetta sumar var afspyrnukalt á norður og austurlandi, og ekki var hlýtt í Grímsnesinu þó svo sólin skini.

Einn þessara daga var farið í Selvoginn og þá sá ég í fyrsta sinn Strandarkirkju. Fyrirtækið mitt Malland var á þessum tíma mjög illa statt. Margir sem töldu sig vita hvað til rekstrarhæfis heyrði, sögðu það gjaldþrota. Hvað mig varðaði þá vissi ég, að ef af gjaldþroti yrði þá töpuðum við Matthildur öllum okkar eignum.

Þar sem ég stóð í Strandarkirkju og minntist fyrra áheits, þá datt mér í hug að heita á kirkjuna um áframhaldandi lífdaga Mallands. Árið 1997 voru allir rekstrarörðuleikar fyrirtækisins úr sögunni, það skuldlaust og á eftir fóru einhver bestu ár sem við höfum átt fjárhagslega. Árið 2000 seldi ég Malland og við fluttum frá Djúpavogi til Reykjavíkur. 

Þegar við fluttu aftur austur í Egilsstaði árið 2004, stofnaði ég ásamt félögum mínum Múrberg, sem var með rekstur í múrverki. Stuttu seinna, ásamt örðum félaga, stofnaði ég Varberg sem hélt utan um fasteignir. Árið 2007 keypti ég félaga mína út úr rekstri Múrbergs og árið 2008 hrundi um allt Ísland. 

Við Matthildur höfðum gengist í persónulega ábyrgð við kaupin á Múrberg. Árið 2009 flutti félagi minn í Varberg til Noregs. Það fóru erfiðir tímar í hönd hjá okkur Matthildi föst í persónulegri ábyrgð vegna Múrbergs og skuldir Varbergs stökkbreytt erlend lán. Veturinn 2011 missti Matthildur heilsuna og ég var atvinnulaus.

Um vorið flutti ég til Noregs þar sem ég fékk vinnu hjá norsku múrarafyrirtæki. Þriggja ára tekjur í Noregi dugðu til að losa um persónulegar ábyrgðir og ég flutti aftur heim. En áfram voru mál Varbergs óleyst sem var svo sem í lagi heimilisins vegna. En í Varbergs eignunum var gullmolinn Sólhóll, -gamall dekurkofi leigður sem orlofshús, auk Salthússins þúsund fermetra aflagt fiskvinnsluhús, leigt út sem húsbílageymsla.

Árin eftir Noreg til 2016 voru vörðuð hjartaáfalli og fjárhagslegum vonbrigðum. Mér kom reyndar Strandarkirkja í hug til bjarga gullmolanum Sólhól, en þorði ekki að heita á hana einu sinni enn af ótta við að missa trúna. Þegar öll sund höfðu lokast hét ég enn einu sinni á Strandarkirkju ef það mætti verða til bjargar því að Sólhóll lenti í gini bankans. Þá kom óvænt símtal hvort hægt myndi vera að fá Salthúsið keypt og þá á hvað.

Salthúsið hafði verið auglýst hjá fasteignasölu í mörg ár, ásamt Sólhól. Ég skýrði út hvað kauptilboðið þyrfti að vera til að bjarga Sólhól, sem var ekki langt frá ásettu verði, -af sölu varð. Í öll þrjú skiptin sem ég hef heitið á Strandarkirkju var upphæðin svipuð, eða ígildi svipaðrar upphæðar, ca. 50.000 krónur.


Glópar

Það hefur varla farið fram hjá neinum að fasteigna og jarðaverð er í hæðstu hæðum, og fer hækkandi í vaxtaleysi bankanna. Þeir eru margir sem trúa á góðgeðastarfsemi fjármálastofnanna í þetta skiptið og telja sig hafa samning til margra ára um fasta lága vexti, en eru kannski ekki eins öruggir á smáletrinu um hversu fast vaxtaálag kjörvaxtanna sé.

Í svona árferði finnst flestum þeir vera að græða, kaupandi kaupir eign á lágum vöxtum á áður óþekktu verði, seljandi seldi sína eign á miklu hærra verði en hann keypti. Greiningadeildir segja að ekkert bendi til annars en verð haldi áfram að hækka, sem eru náttúrulega byggt á hinni heilögu hagfræði. 

En þegar málið er skoðað þá eru skuldir á lífsnauðsynlegt þak yfir höfuðið einungis að hækka, og þegar fram í sækir gæti orðið sífellt erfiðara að standa í skilum með brauðstritinu, -það þurfa jú allir bæði að éta og þak yfir höfuðið.

Þessa hundalógík þekkti gamli presturinn á Héraði. Þegar hann frétti af því að bújörð í hans sveit hefði selst á áður óþekktu yfirverði þá setti hann saman þessa vísu.

Glópur hitti glóp á ferð,

glópur beitti skrúfu.

Glópur keypti á geipiverð

græna hunda þúfu.


Möguleikar á upplýsingaöld

Það má segja að tikkandi tíminn á milli lífs og dauða sé línan með öllu atburðum þessa jarðlífs. En frumkrafturinn, sem heldur öllu saman gangandi er engu að síður óendanlegur og hvorki á tímalínu né honum hægt að eyða. Hann er á hinni eilífu hringrás eyktarinnar. Óendanlegir möguleikar sveiflast hinsvegar stöðugt á milli póla gleði og sorgar. Allt getur verið gott eina stundina og þá er skyndilega staðið frammi fyrir hörmungum þá næstu, og þá á tíminn að lækna öll sár.

Það eru hugsunin sem er það lifandi afl sem greinir og tekur af skarið, og það skiptir máli að það sé gert. Því annars hefur tilfinningin sett upplifunina í undirvitundina án ályktunar. Tifinningar eru fræ hvaða ásetnings sem er, og eru gróðursettar í garð huga okkar, -ósýnilega hluta tilveru okkar. Hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki bera þessi fræ ávöxt í samræmi við tegund þeirra. Sum meðvitað í vitundinni, önnur ómeðvitað í undirvitundinni.

Mörg máltæki hafa orðið til um þetta í gegnum aldirnar, s.s að það sem þú sáir, það munt þú uppskera. Þetta er hið óendanlega lögmál endurgjaldsins, - orsök og afleiðing , , , því sem þú sáir munt þú uppskera – þú ert það sem þú hugsar daglangt. Óheppni er því óbeint ásköpuð með eigin hugsunum eða hugsanaleysi, meðvitað eða ómeðvitað. Hugsanir eru ekki möguleikar, og heppni ekki til án ásetnings. Því geta óþrjótandi óskilgreindir möguleikar haldið okkur endalaust í kyrrstöðu ómöguleikans.

Spurningin ætti því að vera þessi; var þessi hugsun upprunnin innra með mér, eða kom hún utan frá?

Hver sá sem hefur orðið fyrir andlegri vakningu getur vottað að bókstaflega er hægt að endurskapa lífið, með því að vera meðvitaður. En það kaldhæðnislega er að það er einmitt það sem við gerum á hverjum degi í flóði óþrjótandi upplýsinga án þess að veita tilfinningunum eftirtekt. Meðvitundin um stórbrotna náttúru hugsana okkar, -til að gera eins og við óskum er því nauðsynleg. Annars verður okkur stöðugt haldið uppteknum með upplýsingum

Það er kominn tími til að vakna og sjá að tíminn, sem slíkur, er blekking, hann er aðeins mælikvarði, sem við reyndar vitum innst inni. Hvernig tíminn er notaður í daglegu lífi með síauknum upplýsingum veldur tímaskorti. Tíminn er grundvallaratriði þegar kemur að því vita hvers vegna við erum hér, - s.s. vegna fyrri áfalla, þjáninga, eftirsjár og langana. Það sem við hugsum á að þroska okkur og gera hamingjusamari.

Með upplýsingar má vinna meðvitað, skilgreina þær sem skipta okkur máli og álykta í huganum, en það verður að gera samkvæmt hjartanu annars munu þær halda okkur takmörkuðum. Um leið og við erum meðvituð augnablikinu, fullkomlega í núinu tilfinningalega, greinum við sjálfkrafa tilfinningalegar gildrur þeirra upplýsinga sem fylgja möguleikunum. Þannig nær eilíf sálin að efla sjálfsmyndina með tímanum.


Eru ekki allir í stuði?

Nú er aldeilis kátt í Höllinni á bólusetningadögum heilbrigðisiðnaðarins, sannkölluð Þórðargleði. Ice Hot One töff í dag eins og sá klári, -æðstistrumpur og popparinn. Heilbrigðisráðherfan, ný bólusett blessunin, sagði að þetta væri svolítið eins og í söngleik.

Heyrst hefur að þeir sem líði út af séu bornir til hliðar og að þeim hlúið, þangað til þeir ná að skjögra heim í fráhvarfi, -sem staðfestir jú bara stuðið.

Facebook vinur minn var ekki í hátíðarskapi með Dadda disco plötusnúð í dag. Á vegginn hafði hann skrifað þetta:

Fékk í vikunni boð í "bólusetningu", mitt svar til þeirra  "Sæl verið þið. Ég hef verið boðaður í bólusetningu 06.05.21 klukkan 11:00.

Þar sem ég hef ekki nokkurn áhuga á að gerast tilraunadýr fyrir alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem stjórnað er af siðlausum glæpamönnum, þá getið þið strokað mig af þessum lista ykkar.

Þá vil ég einnig benda ykkur á að þið sem takið þátt í að sprauta þessu efni, sem þið kallið "bóluefni", í fólk, munið eflaust ekki geta frýjað ykkur af ábyrgð ef/þegar þetta tilraunaverkefni fer illa. Ekki frekar en böðlar Hitlers sem voru bara að framfylgja skipunum og vinna sína vinnu, við vitum flest hvernig fór fyrir þeim. Kveðja"

Já, sumir lemja hausnum við steininn, á meðan flestir eru í taumlausu stuði innan um alla þá sem snappa með selfý. Sjálfur er ég farin að þrá kyrrðina til fjalla.


mbl.is „Þjóðhátíð“ í Laugardalshöllinni í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekki eitt einasta orð


Ísbjörn og lopapeysa

Nú streyma ferðamennirnir til landsins og kannski má búast við að innan skamms opni lundabúðirnar aftur með gore-tex ísbirni við innganginn og asískar lopapeysur á boðstólunum. Sennilega verður minna um grímulaus viðskipti handverksfólks við túristana eins og þegar það sat auðum höndum fyrst eftir "hið svokallað hrun", sælla minninga.

Það var einn sumarmorgunn í Sólhólnum á Stöðvarfirði um árið að Matthildur mín hafði sett út prjónelsið sitt til viðrunar, lopapeysur og fleira, að það kom þýskur ferðamaður að forvitnast. Hann keypti eina peysu og Matthildur kallaði svo í mig og bað mig um að tala við manninn því hann væri að spyrja um eitthvað sem hún væri ekki viss um að geta svarað. Maðurinn var að spyrja um opnunartíma á sjoppunni upp á morgunnhressingu.

Þar sem klukkan var ekki orðin átta og langt í að yrði opnað, þá bauð ég honum inn í kaffi. Þegar við fórum að spjalla þá sagði hann vera nýkomin frá Grænlandi og hefði þurft að millilenda á Íslandi. Hann sagðist hafa tekið skyndiákvörðun um að stoppa í nokkra daga en það hefði ekki verið planið. Til Íslands hafði hann komið 4 sinnum áður, en aldrei á Austfirðina og þessa daga ætlaði hann að nota til að skoða þá.

Hann sagðist vera atvinnuljósmyndari, sem hefð verið ævistarfið til þessa, og þegar ég spurði hann hvort það væri ekki gott starf til að ferðast, -þá sagðist hann vera atvinnulaus. Hann sagði að þangað til fyrir nokkrum árum hefði starfið boðið upp á mikil ferðalög s.s. þegar hefði þurft að gera auglýsingaefni fyrir nýjar árgerðir af bílum þá hefði jafnvel bíll verið fluttur alla leið til Íslands.

Myndtökumenn hefðu fylgt með bílnum og lifað við lúxus til að gera sem flottast auglýsingaefni með myndum af nýjustu árgerðinni í framandi umhverfi. Nú væri svoleiðis vinna framkvæmd af forriturum í tölvu, þar í heiminum sem launin væru lægst. Síðan hefði hann farið að vinna fyrir STO í múrefnageiranum.

Þar sem ég hafði farið í starfsþjálfun til Þýskalands hjá STO árið 1989, þá var þarna komin áhugaverður umræðugrundvöllur. Svo ég spurði hvort STO væri ennþá með höfuðstöðvar í S-Þýskalandi. Hann sagði svo vera, alla vega þegar hann vann síðast. En nú væru fyrirtæki í byggingageiranum farin að gera allt sitt auglýsingaefni í ódýrum tölvum þannig að hann hefði notað tímann til að ferðast og hefði hann farið til Grænlands þetta sumarið.

Ég spurði hvort hann hefði ekki náð góðum myndum á Grænlandi, -og kannski af ísbjörnum. Þá tók hann upp símann sinn og sýndi mér myndir í honum. Þetta voru ekki góðar myndir og satt best að segja átti ég erfitt með að átta mig á hvað væri á þeim í fyrstu, að öðru leiti en þær voru teknar úti á berangri, í móum með snjó í bakgrunni.

Þegar hann stækkaði mynd kom í ljós ísbjörn sem sat í litríkri hrúgu sem voru rústir eða rifrildi af tjaldi. Hann sagði mér að þetta væri tjaldið hans. Hann hefði vaknað snemma morguns og fengið sér göngutúr en þegar hann kom aftur í sjónfæri við tjaldið hefði ísbjörn verið að snuðra í kringum það og rifið svo gat á það, og þarna á myndunum væri hann að gæða sér á nestinu. Allur ljósmyndabúnaðurinn hafði verið í tjaldinu og hann aðeins með snjallsímann til að ná myndum af ráni ísbjarnarins.

Þegar ísbjörninn var búinn að borða morgunnmatinn og farinn, hafði hann tekið saman dótið sitt. Hann sagðist ekki hafa gist fleiri nætur í tjaldi á Grænlandi, heldur keypt sér gistingu með morgunnmat.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband